Tíminn - 07.06.1981, Qupperneq 2

Tíminn - 07.06.1981, Qupperneq 2
HIN NÝJA TÓNLIST Á NÝJALEIK Snorri Sigfús Birgisson tónskáld segir frá ■ — Þa6 er Musica Nova sem er að fara á kreik aftur eftir um tiu ára hlé með svokallað Skerplufestival, segir Snorri SigfUs Birgisson tónskáld og pianóleikari. Þetta er mikið til fólk sem hefur starfað bæði i Tónskáldafélaginu og MUsik- hópnum, ekki að þetta sé ein- hvers konar klofningshópur. Á festivalinu eru fimm tónleik- ar, Stofntónleikar á Kjarvals- stöðum, þar sem fólk getur gerst stofnfélagar i nýju Musica Nova, Kirkjutónleikar i Landakotskirkju. Hinir tón- leikarnir þrir voru uppruna- lega ekki liður i áætlunum Musica Nova en falla prýði- lega inn i heildarmyndina. Til, dæmis vitum við ekki ennþá almennilega hvernig Nýlistar- tónleikarnir i Norræna hUsinu verða. Það er Nýlistasafnið sem stendur fyrir þeim. Af- gangurinn ersvokölluð skrifuð seriös tónlist — nUtimatónlist sem er samin og flutt undir mismunandi höttum og einum aðalhatti. Formið er svipað Myrkum mUsikdögum sem haldnirvoruiveturenþetta er fyrsta Skerplufestivalið. — Þarna veröur einhver elektróni'sk tónlist frumflutt verk á tónleikum MUsikhóps- ins eftirLárus Grimsson, Þor- stein Hauksson og MagnUs Blöndal Jóhannsson. Erlend verk i bland eftir höfunda sem eru vanræktir á tslandi, Webern, Varése og Charles Ives. A tónleikunum á Kjar- valsstöðum verður flutt hóp- verk, Argerö ’81, þar sem tólf tónskáld.leggja fram eitt verk hvert — örstutta kafla um gömlu mánuðina, Skerplu, Sólmáluð, Heyannir osfrv. Þau fengu upp I hendurnar lista yfir hljóðfæri sem verða notuð og gátu þá samiö fyrir einhver þeirra eða öll. Atli Heimir er t.d. með verk fyrir öll hljóðfærin,Harpa. Þorkell Sigurbjörnsson er með verk fyrir sóló-flautu, Þorra. Ég sjálfur samdi Ut frá Góu fyrir selló og klarinett. Þetta verður eitt allsherjar öng- þveiti —tónlistin kemur Ur öll- um hornum Kjarvalsstaöa þegar flutningi á einum mán- uði sleppir tekur annar viö Ur þveröíugri átt. — Fólk getur komið alveg óhrætt, nei, það er engin tólf- tónamUsilc á festivalinu, held ég sé, ekki einu sinni Utlensku verkin sem verða flutt. HUn er nU hálfgerð grýla tólftóna- mUsfkin. — Hvað ég er að gera sjálf- ur. Upp á siðkastið hefur mestur ti'mi farið i að undir- bUa festivalið, fjölrita nótur og slikt sem skrifstofur Ut i bæ ættuauðvitað helst að sjá um. En ég legg undir mig heila Sólstöðutónleika i Háskóla- biói, þar sem veröur frumf lutt eftir mig pianóverk i 21 þætti siðan i vetur og svo tveggja ára gamalt verk fyrir klari- nettog pianó. Þaö fer auövitað mikill timi i að æfa fýrir svona stórtónleika. Tónskáldinu hefnist fyrir að skrifa erfitt verk fyrir pianó þegar hann verður svo að flytja það sjálf- ur á tónleikum. — Markmiðið með þessu öllu — með endurreisn Musica Nova er svo að flytja nýlega tónlist, innlenda og erlenda og hvetja til þess að verk séu samin og flutt. Það eru fyrir- hugaðir fastir tónleikar á næsta starfsáriþar sem verða flutt ný islensk tónverk sem eru samin að tilhlutan félags- ins. Og svo er bara að vita hvort áheyrendur sýna sig, hvort ekki tekst að bæta sam- skiptin milli islenskra tón- skálda og flytjanda og al- mennra áheyrenda. Fyrir þá sem hafa forklár- ast af stórum áformum Musica Nova skal tekið fram að: Stofntónleikarnir eru aö Kjarvalsstöðum mánudaginn 8da jdnikl. 16. Kirkjutónleikar eru i Landakotskirkju mið- vikudaginn lOda júni kl. 20.30. MUsikhópurinn flytur sitt að Kjarvalsstöðum þann 15da á mánudegi kl. 21.00. Nýlistar- tónleikar, likast til æði óvenju- legir verða i Norræna hUsinu fimmtudaginn 18da jUni kl. 20.30. Og undir lokin verða Sólstöðutónleikar Snorra Sig- fúsar i Háskólabiói sunnudag- inn 21ta júni kl. 23.30. — nú- timatónlist i miðnætursólinni. eh Snorri Sigfús Birgisson ■ Erlendur Sveinsson. Varla veröur Þingvallamyndin tekin á þessa vél. AÐ DREKKA I SI6 ÞINGVðLL — Fyrirhuguð kvikmynd Erlends Sveinssonar ■ „Ég skrifaöi handritið að myndinni mér til hugarhægðar eftir að hafa skilað minu hlut- verki i Snorra-myndinni. Siðan hefur það legið i skúffunni, mig vantaði fé til að starta þessu. Kvikm yndasjóðsstyrkurinn kom mér á óvart, það er i raun makalaust hvað er dýrt að kom- ast i gang við gerö svona mynd- ar”, segir Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmynda- safnsins og annar eigandi „Lif- andi mynda, sem nýverið fékk styrk Ur kvikmyndasjóði til að gera mynd um þjóöarreitinn, Þingvöll.. — Af hverju að gera slika mynd? „Þetta er hugsað sem heimildamynd um Þingvelli, staðinn þar sem þjóðin samein- ast og safnast saman sem heild. Við ætlum að reyna að gefa al- hliða mynd af Þingvöllum, gera grein fyrir sögu staðarins og náttUru, lýsa örnefnum og stöö- um sem hafa komiö við sögu i gegnum aldirnar. Viö viljum reyna aö gefa fólki aukna til- finningu fyrir Þingvöllum. Það veit lítið um hvar ýmsar merkisathafnir áttu sér staö, hvernig þinghaldinu var háttað, hvernig bUðaskipan var, hvaðan menn komu rlöandi til þings — svo er það auðvitað gamalt deilumál hvar lögrétta var áöur en hUn var flutt. Auk þess sýn- um við svo náttúruundrið Þing- velli, samkomustað þjóðarinn- ar. Viö fjöllum liklega eitthvaö um þjóðhátiðina 1874 og bætum kannski við bútum frá alþingis- nátiðinni 1930, lýðveldishátið- inni 1944 og jafnvel frá hátiðinni 1974”. — Er þetta þá þjóöarembu- mynd? „Ja, eru Þingvellir ekki ein- hvers konar samnefnari fyrir þjóðrembu. Þangað kemur fólk I þjóðernisskapi til að sækja sér upplyftingu i náttúrunni eða til að drekka i sig staðinn — mynd- in er nokkurs konar óður til Þingvalla”. — Hvernig ætlið þiö að bera ykkur aö? „Þetta verður heimildamynd, en það er hugsanlegt aö við set j- um eitthvað á svið, annars ligg- ur það ekki fyrir fyrr en við byrjum að kvikmynda. Við sótt- um um sex milljónir en fengum ekki nema þrjár. Filmurnar eins og framköllunin munu kosta um fimm milljónir. Svo BOKIN MKLA... — blundar í Árna Bergmann ■ „Tveir litlir strákar sendu mér einu sinni tóninn þegar ég var á leiðinni heim tilmin. Annar hrópaði: Kommi, kommi, rauður sem rós. Og þegar ég var kominn aðeins lengra i burtu kallaði hinn: Fimmtudagar I Filadelfiu. - eins og þú veist hét bókin min Mið- vikudagar i Moskvu. Ekki veit ég hvort þessi drengur var spá- maður en þetta sýnir að það eru ýmsir möguleikar til.” Árni Bergmann er alveg efunarlaust afkastamesti blaða- maður landsins. Þess utan vas- ast hann i ýmsu en einhvers staðar inná milli finnur hann sér tima til að vinna að bók. „Það blundar alltaf i blaða- mönnum að skrifa Bókina Miklu. Þessi bók min er ekki komin langt, hún kemur alla vega ekki út á þessu ári og það er alltof snemmt að tala um hana núna.” - En þetta er skáldsaga? „Skáldsaga?” Arna virtist reka irogastans. „Þessi bók gæti orðið skopstæling á ýmsum öðrum tegundum bókmennta. Jú, auð- vitað fellur hún endanlega undir einhverja kategóriu en það veit ég annars ekkert um.” .j verður það bara að ráðast i ljósi bjartsýni hvers tima hve langt við hættum okkur. Það er spurning hvað hún endist lengi þessi bjartsýni sem nú rikir i is- lenskri kvikmyndagerð. Hand- ritið var býsna metnaðarfullt, þaö er spurning hvort það stenst. Þó er alveg vist að við stökkvum ekki af stað við vinn- um að þessu i igripavinnu næstu árin”. — Hverjir standa að þessu fyrirtæki? „Það eru „Lifandi myndir”, fyrirtækið okkar Sigurðar Sverris Pálssonar, við fram- leiðum og tökum myndina sjálf- ir. E n eins og ég segi munum við bara vinna að Þingvallamynd- inni i framhjáhlaupi á næstunni. Aðalvinnan hjá okkur núna er viö kvikmyndir úr sjávarútvegi. Við erum að gera mynd um sögu saltfisksins vegna fimmtiu ára afmælis Sambands islenskra fiskframleiðanda og aðra um sögu sildveiða við landið. Þetta eru aðalmálin hjá okkur þessa dagana. Það vantar mynd frá Þingvöllum finnst mér, en það er erfitt að segja núna með hvaða hætti framkvæmdin verður eða hvenær henni lýk- ur”. eh ■ Árni Bergmann

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.