Tíminn - 07.06.1981, Blaðsíða 11
Sunnudagur 7. júni 1981
íþróttir
Víkingar
efstir
— 1 1. deild eftir
3-0 sigur gegn Þór
Vi'kingar hafa tekiö forystuna i
1. deild Islandsmótsins i knatt-
spyrnu eftiraö þeir sigruöu Þór 3-
0 á Akureyri í gærkvöldi.
Vikingar voru betri aðilinn i
leiknum og sigur þeirra var fylli-
lega verðskuldaöur.
Leikurinn fór fram við erfiðar
aðstæður. Leikið var á mölinni og
i norðangarra, en þó brá oft fyrir
skemmtilegum leik sérstaklega
af hálfu Vikinga.
Lárus Guðmundsson var iðinn
við kolann hann skoraði tvö af
mörkum Vikings i leiknum, fyrra
markið og reyndar fyrsta mark
leiksins kom um miðjan fyrri
hálfleik.
Bakvörðurinn Þórður Marels-
son lék þá upp vinstri kantinn og
lék á einn varnarmann Þórs og
gaf sfðan fyrir markið þar sem
Lárus tók boltann viðstöðulaust
og skoraði.
Þannig var staðan i hálfleik en
á 71. mín skoraði Jóhann Þor-
varðarson frá vitapunkti, en Jó-
hann hafði rétt áður átt skot af
svipuðu færi.
Þórsarar hófu siðan sókn og
tökst að skora, en markið var
dæmt af vegna rangstöðu og
fannst mörgum það hæpinn dóm-
Lárus Guðmundsson innsiglaði
siðan sigur Vikings i leiknum er
aðeins um tíu min. voru til leiks-
loka og kom það mark eftir slæm
varnarmistök.
Þörarinn Jóhannesson ætlaði
að gefa til markvarðarins en Haf-
þór Helgason fyrrum Þórsleik-
maður komst á milli og skaut en i
markvörðinn og af honum hrökk
boltinn til Lárusar sem skoraði.
GK-Akureyri.
LétthjáÍBV
- sigraði FH 2-0 i
1. deild í gærkvöldi
Enn einn ösigurinn átti ser
stað hjá FH-ingum og nú var það
gegn Vestmannaeyingum og fóru
Eyjamenn með 2-0 sigur af hólmi
eftir að staðan hafði verið 1-0 i
hálfleik i 1. deild i Hafnarfirði i
gærkveldi.
Sigur IBV var sist of stór og
\éku þeir FH-ingana oft grátt,
sérstaklega i siðari hálfleik, en þá
voru FH-ingar lika einum manni
fiærri.
Gunnar Bjarnason var rekinn
af leikvelli á 64. min. þvi hann
hafði fengið gult spjald i fyrri
hálfleik og braut siðan gróflega á
Sigurlási.
En það var einmitt Sigurlás
sem gerði fyrsta markið á 17.
min. er hann einlék i gegn um
vörn FH og skoraði.
Það var siðan Kári bróðir Sig-
urlásar sem skoraði seinna
markiðum miðjan seinni hálfleik
eftir sendingu frá Sigurlási. röp,-
fréttir
Nýtt fisk-
verð ákveðið
Nýtt fiskverð var ákveðið á
fundi Yfimefndar Verðlagsráðs
sjávarutvegsins i gær. Að meðal-
talierum 8% fiskverðshækkun að
ræða. Gildir hið nýja verð frá 1.
júnf til 30. september nk.
Þorskur og ufsi hækka um
9,1%, grálúða hækkar um 3%,
verð á ýsu verður tíbreytt og aðr-
ar fisktegundir hækka um 8%.
Gert er ráð fyrirað greidd verði
uppbot úr verðjöfnunardeild
Aflatryggingarsjóðs, er nemi 25%
á verö karfa og ufsa, og 15% á
verö skarkola, þykkvalúru og
grálúðu.
Verðið var ákveðið af odda-
manni nefndarinnar, ólafi
Davfðssyni, og fulltrúum seljenda
i nefndinni, þeim Ingólfi Ingólfs-
dyni og Kristjáni Ragnarssyni,
gegn atkvæðum fulltrúa kaup-
enda, þeirra Áma Benediktsson-
ar og Eyjólfs tsfeld Eyjtílfssonar.
Kás
11
Útboð
Vatnsleysustrandarhreppur óskar eftir
tilboðum i gatnagerð og lagnir i Vogum.
Verkið nær til jarðvegsskipta i götuslæð-
um og lagningar vatns og skolplagna.
Heildarlengd gatna er um 460 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Vatnsleysustrandarhrepps, Valfelli Vog-
um og á Verkfræðistofu Suðurnesja h.f.,
Hafnargötu 32, Keflavik gegn 500 kr.
skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
skrifstofu Vatnsleysustrandarhrepps
mánudaginn 22. júni 1981 kl. 11.00
Sveitastjóri Vatnsleysustrandarhrepps
Gaddavír, túngirðingarnet
I f *r -v t j|:*
BESTU KAUPINIAR
ZTR 165
SLÁTTUÞYRLAN
Þeysir inn á íslenska markaðinn
á ótrúlega lágn verði
Sterkbyggð.
Fullkominn öryggisbúnaður.
Driföryggi á reimskífu.
Útsláttaröryggi.
Auðveld i flutningsstöðu.
Einföld hnifaskipting.
Þrir hnifar á tromlu.
Vinnslubreidd 1,65 m.
Orkuþörf 40-60 ha.
Klutningsstaöa tryggð með öryggis-
búnaöi.
Öryggiskúpling.
Staðsetning sláttuhnifa.
Umsögn Kristjáns Finnssonar, Grjótevri, Kjós.
„Ég fékk ZTR sláttuþyrlu sumarið
1976 og hef slegið með henni um 50
ha. á ári s.l. 5 ár og hefur hún
reynst slá mjög vel bæði fyrri slátt
og há. Sláttuskifur eru efnismiklar
og sér ekkert á þeim, þréU fyrir að
mikið grjót er i túnum hjámér.
Engar bilanir hafa átt sér stað á
vélinni utan eðliiegt hnifaslit”.
G/obusn
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
Hafið samband við sölu-
menn okkar sem
gefa nánari upplýsingar