Tíminn - 07.06.1981, Blaðsíða 3
Affelgum, felgum og
jafnvægisstillum
B Svava Jakobsdóttir.
FULLKOMIN HJOLBARÐAÞJONUSTA
pið í dag
Sunnudagur 7. jdni 1981
Smavoriir
fólk í listum
„Ekki hægt að
ákveða að barn
skuli rauðhært”
— segir Svava Jakobsdóttir, sem telur
ófært að spá um hvað verði úr þeim
verkum sem eru í smíðum
09 ferðalagið!
sækjum viö í bensínitððvar ESSO
r
■ „Þetta er alltaf mjög erfið
spurning, svona meðan með-
göngutimi er ekki nema hálfnað-
ur og ekki vitað hver hin endan-
lega framleiðsla verður. Það er
ekki hægt að ákveða fyrirfram að
barn skuli vera rauðhært”, sagði
Svava Jakobsdóttir, rithöfundur
með meiru, þegar Helgar-Timinn
innti hana eftir þvi hvort hún
hefði einhver ritverk i smiðum
um þessar mundir.
,,Ég er raunar nýbúin að ljúka
við gerð smásögu einnar”, sagði
Svava ennfremur, ,,og á sú að
birtast á norsku, i safnriti, sem
samanstanda á af smásögum
kvenna. Það eru lektorar i bók-
menntum við ýmsa háskóla, sem
sjá um að koma þessu saman og
Helga Kress hefur séð um það hér
á tslandi.
Vafalaust andvarpa nú ein-
hverjir, þegar minnst er á safnrit
með kvennasögum. Viö erum svo
einkennilega fljót að verða þreytt
og mædd, íslendingar, hvernig
sem á þvi stendur.
Utan þessa er ég með tvö verk i
smiðum, sem eru öllu meiri. Ann-
að þeirra nokkuð stórt, en hitt
miðlungs. Þetta eru skáldsaga og
leikrit.
Mér er illa við aö ræða þau verk
nokkuðnánar, af fyrrgreindum á-
stæðum. Ég veit ekkert um þau
ennþá.
Ég veit ekki heldur hvað þaö er,
sem veldur þvi að ég er meö
svona margt i ritvélinni i einu.
Hvort þetta er eitthvert kapp-
hlaup við timann, brjálæði, eða
bara nýjungagirni.
Annars hef ég ekki haft mikinn
tima til að sinna þessum ritstörf-
um undanfarið. Þessa siöustu sól-
ardaga hef ég verið önnum kafin
við undirbúning fundar jafnrétt-
isráðs Norðurlanda hér, sem
haldinn verður i næstu viku.
Svo er ég smám saman aö
reyna að vinda ofan af mér eftir
pólitikina. Finna aftur mitt
gamla vinnutempó, sem raskað-
ist mikið þegar ég lenti inn á
þing”.
Svava var að þvi spurð hvort
þátttaka hennar i stjórnmdlum
hefði haft mikil áhrif á hana sem
rithöfund.
„Þetta er spurning, sem ég þarf
oft að svara”, sagði hún, ,,og
vissulega hefur það haft áhrif, en
ekki á þann veg, sem mér finnst
liggja i spurningunni. Mitt lifs-
mat og gildismat hefur ekki
breyst nokkurn skapaðan hlut.
Það hefur frekar styrkst.
Hins vegar finnst mér núna
liggja i loftinu breytingar i okkar
menningu og öllu okkar lifi, sem
gæti haft meiri áhrif, þótt það sé
auðvitað samtengt pólitikinni.
Þegar ég fór að skrifa var nátt-
úrlega mikið að ske. Allur þessi
stúdentaórói og öll endurskoðun-
in. Nú er komið að einhverju leyti
að uppstokkun og endurmati á
þessu öllu saman.
Þetta hefur þó alls ekki þau á-
hrif að ég sé neitt milli vita vegna
þess. Það er fremur að ég sé að
reyna að höndla þetta á einhvern
máta”.
Primus-09 grillvörur
£sso
GOODWYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
4 GOODYMR
KfMST ÞÚ
IÍNGRA
Goodyear hjólbarðar eru
hannaðir með það í liuga, að
þeir veiti minnsta hugsanlegt
snúningsviðnám, sem þýðir
öruggt vegagrip, minni bensín-
eyðslu og betri endingu.
PhIhekla
* Laugavegi 170-172 Sír
,HF
mi 21240