Tíminn - 07.06.1981, Page 7
Sunnudagur 7. júni 1981
Patricia Highsmith:
The Boy Who Foll-
owed Ripley. Penguin
1981.
Hér er nýjasta bókin um vin
minn Tom Ripley, listaverka-
falsarann, svikahrappinn,
elskhugann og morðingjann
sem lifir ásamt Heloise fáguðu
lifi á sveitasetrinu i Frans. A
milli voðaverka nýtur hann
fagurra lista, Heloise leikur á
sembal, hann safnar málverk-
um. Tom er harður tappi, en
samt fremur viðkunnanleg
söguhetja. Þetta er fjórða bók
Patriciu Highsmith (furðulegt
hvað gamlar konur skrifa mik
ið af tryllurum nú orðið) um
Tom Ripley, þær njóta vin-
sælda fyrir harðsoðinn og
hri'maðan stil, spennan heldur
lesandanum föngnum — þó
kveður alltaf við einhvern
mannlegan tón, persónurnar
eru ekki einmana, þær geta
verið bliðar og göfugar i miöj-
um hamagangnum, eru oft á
tiðum þurfandi fyrir ást, vin-
áttu, samheldni. Drengurinn
sem elti Ripley er afar læsi-
legur reyfari, mun dýpri og
sannari en gengur og gerist
um slikar bækur.
Milan Kundera:
Laughable Loves.
Penguin 1980.
Bókin kemur út i flokki
Penguin-Utgáfunnar um rit-
höfunda frá austur-Evrópu.
Það er mikil þurfta-seria sem
hefur dregið fram i dagsljós
vestursins meginhöfunda frá
tilluktum heimi austursins.
Milan Kundera er tékki,
andófshöfundur, nú landflótta
sem hefur vakið griðarlega
athygli hérna megin með nýj-
ustu bók sinni, Bók ástar og
gleymsku. Vonandi aö hUn
sjáist brátt á islenskum
markaði. Laughable Loves er
kver sjösmásagna, kynærsla-
sagna með þjóðfélagslegu i-
vafi.
Neðanjarðarkimni, er oft
nokkuð tviræö, vill oft
blómstra i rikjum þar sem er
ritskoðað af kappi — það er
napur máti til að gagnrýna
þjóðfélagið undir rós. Það er
oft meiri broddur i sögum
Kundera en i bókum höfunda
sem búa við ótakmarkað
frelsi. Það er mikil alvara að
baki, brandarinn snýst i hönd-
um söguhetjunnar — og les-
andans.
A.ANATOU
A HISTORY OF H0RR0R
INTHE MASSMEDIA
A. Anatoli (Kuznets-
ov): Babi Yar. Sphere
Books 1979.
Anatoli er landflótta Rússi
sem hefur snUist af ógnar-
krafti gegn gamla landinu,
jafnvel þannig að manni of-
býöur stundum ofsinn. Bókin
var fyrst gefin út allrækilega
ritskoðuð 1966, hún kom siðan
Ut i' fullri lengd á vesturlönd-
um 1970. Bókin — skýrsla i
skáldsöguformi — fjallar að
megni til um fjöldamorö nas-
ista viö Babi Yar viö Kænu-
garö,þegar 200.000 Gyðingum
og öðrum óvinum þriðja rikis-
ins var slátrað. Anatoli var
sem barn mjög nærri þessum
skelfilega atburði, bókin er
persónuleg Utgáfa hans á aö-
draganda og eftirmála Babi
Yar. En hUn samræmdist ekki
hinni opinberu sovésku mynd
— bolsévikar voru ekki par
vinsælir á heimaslóðum Ana-
toli i Hvita-RUsslandi og
Úkraniu. Það kemur ljóslega
fram i' bókinni. Einnig var
Stalin ekki alltaf jafn góður
við Gyðingana sina og skyldi,
varaði þá ekki við hættunni
sem stafaði af Þjóöverjum —
var reyndar ekki mjög sárt
um aö þeim yrði Utrýmt en
masse.
yn<í shðkmg ín o» way that iínks tl
vvith íhe booksof SoMwnríxyrr
Thfí Tmttfs t.tttirory Soppttifvenl
Les Daniels: Fear, A
History of Horror in
the Mass Media.
Paladin 1977
Þörfin til að láta hræöa Ur
sér liftóruna — ofur mannleg
öfughneigð og gróðavænieg
skemmtan. Les Daniels rekur
sögu hryllingsins sem list-
greinar og söluvöru og siðast
fjölmiðlunarfyrrbæris um
upprunalegan Frankenstein
Mary Shelley, LikhUsgötu Ed-
gar Allan Poes, teiknaðan
hrylling Beardsleys, Lon
Chaney með þUsund ógeðsleg
andlit, fyrstu spor kvikmynd-
anna á hryllingssviðinu, Boris
Karloff og Skáp Caligaris
læknis, teiknimyndasögur um
Vampirellu prinsessu og
hljómleika Lisu Cooper meö
kyrkislöngum, höggstokkum
og gálgum. Allt var þetta auð-
vitaðgert til að láta þiggjand-
anum liða vel og græða soldla
peninga i framhjáhlaupi.
Bókin er krydduö með sláandi
hryllingssögum, nýjum og
gömlum.
Bækur hér að ofan fást hjá Bókabúð Máls og
menningar.
Met-
sölu-
bæk-
ur
I Bretlandi
og Banda-
BRETLAND
Almennt efni
1. Lifeboat: In Danger’s Hour.
Patrick Howarth (Hamlyn)
2. Debrett’s Book of the Royal
Wedding. Hugo Vickers (De-
brett).
3. Family Story. Lord Denning
(Butterworth).
4. Field Guide to the Birds of
Britain. (Readers
Digest/Hodder).
5. Hugh Casson’s Diary.Sir Hugh
Casson (Macmillan).
Ská Idsögur
1. Men of Men. Wilbur Smith
(Heinemann).
2. The Clowns of God. Morris
West (Hodder).
3. Goodbye, Janette. Harold
Robbins (NEL)
4. Licence Renewed. John Gardn-
er (Cape).
5. Creation. Gore Vidal (Heine-
mann).
Pappirskil jur
1. Cookery Course Part 3. Delia
Smith (BBC).
2. Prinsess Daisy. Judith Krantz
(Corgi).
3. The Spike. Arnaud de Borch-
grave, Robert Moss (Futura).
4. Kane and Abel Jeffrey Archer
(Coronet).
5. Stand Into Danger. Alexander
Kent (Arrow).
BANDARIKIN
Almennt efni
1. The Lord God Made Them Ail.
James Herriot (St. Martin).
2. Never-Say-Diet Book. Richard
Simmons (Warner).
3. Cosmos. Carl Sagan (Random
House).
4. The Beverly Hills Diet. Judy
Mazel (Macmillan).
5. Pavarotti: My Own Story.
Luciano Pavarotti/William
Wright (Double day).
Skáldsögur
1. Noble House. James Clavell
(Delacorte).
2. Gorki Park. Martin Cruz
Smith. (Random House)
3. Free Fall in Crimson. John D.
MacDonald (Harper&Row).
4. God Emperor of Dune. Frank
Herbert (Putnam).
5. The Covenant. James A.
Mitchener (Random House).
Pappírskiljur
1. A Confederacy of Dunces. John
Kennedy Toole (Grove).
2. Garfield Gains Weight. Jim
Davis (Ballantine).
3. The Official Preppy Handbook.
Útg. Lisa Birnbach (Work-
man).
4. Palomino. Danielle Steel
(Dell).
5. The 1980’s: Countdown to Ar-
mageddon. Hal Lindsey (Bant-
am).
Eyrnamerki úr mjúku plasti
fyrir sauðfé, svin og stórgripi
fjórar stærðir — Sjö litir
Eyrnamerkingarnar fást formerktar eða
auðar og þá sérstakt merkilalck til merk-
ingar á staðnum.
Merkilitir hentugir við rögun búfjár.
i handhægum úðabrúsum — 7 litir.
Sérstaklega hentugir til merkinga
sauðf jár, þar sem liturinn tollir mánuðum
saman hvernig sem viðrar, en hverfur við
venjulegan ullarþvott.
Sannreynt við isienskar aðstæður.
Hárlitareyðir
hentugur til merkinga stórgripa.
Efnið er borið á með pensli og eyðir hára-
litnum á nokkrum minútum og endist þar
til ný hár vaxa.
Hafið samband við varahlutalager
sem fyrst, til að tryggja
tímanlega afgreiðslu.
lf
m
i
p
íis
jp
4?
MERKI
FYRIR ALLAR TEGUNDIR
BÚFJÁR FRÁ
The
RITCHEY
TAGG COMPANY
SLATTU-
ORF
Létt-
traust
og
örugg
ÞDRf
SIMI 81500-