Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 3
fréttir
Samstarfsnefnd útvegsmanna og tveggja ráðuneyta sett á stofn:
AFLA SKIPULEGA MIÐLAÐ A
MILLIVIN NSLUSTÖÐVAN N A!
11
Algjörlega byggt á samkomulagsgrundvelli
Hermannsson sjávarútvegsráðherra
” segir Steingrímur
■ Samkomulag hefur náðst um
það milli sjávarútvegsráðu-
neytisins, viðskiptaráðuneytisins
og Lit', um að stofna sérstaka
samstarfsnefnd þessara aðila
sem fær það hlutverk að taka á
móti upplýsingum frá fiskkaup-
enduni og fiskseljendum um
eftirspurn og framboð á fiski, og
greiða fyrir viðskiptum á milli
þeirra.
LIÚ tekur að sér að annast
skrifstofu fyrir nefndina. Þangað
geta aðilar sem vantar hráefni
leitað og lagt inn pantanir, og
sömuleiðis þeir sem þurfa að losa
sig við fisk. Er þetta i fyrsta
skipti sem á skipulegan hátt er
reynd fiskmiölun milli hinna
ýmsu fiskverkunarhúsa.
Viðskiptin eru þó háð þvi skil-
yrði að viökomandi fiskverkun
geti greitt fyrir aflann, og hafa
bankar lofað að vera innan hand-
ar um útvegun fjár i þvi skyni,
svo framarlega sem um er að
ræða fyrirtæki sem sæmilega
stöðu hafa gagnvart þeim.
„Þetta er algjörlega byggt á
samkomulagsgrundvelli,” sagði
Steingrimur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, i samtali
við Timann i gær. „Það er ekkert
lögboðið i þessu samkomulagi, og
ég ætla að sjá til hvernig þetta
reynist. Eg vil hins vegar taka
það fram, að ég tel aö það eigi
ekki að leyía að sigla með þorsk,
ef það vantar fisk á staði þar sem
viðkomandi skip getur landað á.
Ég viðurkenni að það er erfitt að
senda skip sem er við veiðar suð-
vestan lands austur á firði með
afla, en svona innan skynsam-
legra marka tel ég að löndun
heima, þar sem þorsk vantar og
hægt er að fá greiðslu fyrir, tvi-
mælalaust eiga að ganga fyrir.
Ég ætla að sjá til hvernig þetta
gengurá þennan frjálsa máta, en
gefi það ekki nógu góða raun,
kann að verða að setja einhverjar
hömlur á siglingar með þorsk”,
sagði Steingrimur.
— Kás
Vidmidunarreglur um stödur
frétta- og dagskrárgerdarmanna:
„Hæfnispróf
eina lausnin”
— segir Hákon Sigurgrfmsson
miðunarreglur” við mat umsækj-
enda. Var hún flutt vegna þess
uppistands sem nú hefur orðið
vegna veitingar stöðu afleysinga-
fréttamanns viö sjónvarpið.
„Þessar sifelldu uppákomur i
sambandi við ráðningu i störf
frétta- og dagskrárgerðarmanna
eru náttúrlega óþolandi”, sagði
Hákon Sigurgrimsson, útvarps-
ráðsmaður, i samtali við Timann
i gær. „Ég óttast hreinlega að
hógvært og hlédrægt fólk leggi
ekki i að sækja um starf hjá
Rikisútvarpinu ef þessu heldur
áfram. Eina lausnin á þessu er
sú, held ég, að umsækjendur
gangist undir hæfnispróf, eins og
ég hef gert tillögu um i útvarps-
ráði”, sagði Hákon. — Kás
■ Alltaf er eitthvað aö gerast „fyrir sunnan Frfkirkjuna”. Hvort einhver var að gefa undir fót f gær,
likt og hér áður fyrr, eins og segir i ljóðinu, vitum við ekki. Hvað sem olli er ljóst að blessaöur billinn
valt. Timamynd: GE.
■ Útvarpsráð samþykkti á sið-
asta fundi sinum að kjósa fjóra
menn úr röðum útvarpsráðs-
manna til að afla uauðsynlegra
upplýsinga um eðlilegar
menntunarkröfur umsækjenda
um störf frétta- og dagskrár-
gerðarmanna við Kikisútvarpið.
Jafnframt á þessi hópur að kanna
viðhorf starfandi frétta- og dag-
skrárgerðarmanna um nauðsyn
hæfnisprófs fyrir umsækjendur,
og um námsmat i sliku prófi. A
nefndin að skila áliti sinu fyrir
næsta haust.
1 nefndinni sitja Eiöur Guðna-
son, Ellert B. Schram, Markús A.
Einarsson og Ólafur R. Einars-
son. Það var Ólafur sem flutti til-
lögu um að settar yröu „við-
Véiðivon
glæðist f
Vatnsdalsá
■ Veiðin i Vatnsdalsá byrjaði vel
að þessu sinni að sögn Ingibjarg-
ar Þorkelsdóttur ráðskonu veiði-
félags Vatnsdalsár að Flóðvangi,
þegar við ræddum við hana i gær.
Áin var opnuð hinn 17. júni sl.
og veiddust tiu laxar frá kl. 16-22.
Næstu dagana á eftir var veiðin
hins vegar dræmari, þar sem
mjög mikið rigndi og var áin alla
vatnsmikil þessa daga. Sagði
Ingibjörg að i gær hefð'i hins veg-
ar brugðið til betri tiðar og væri
þegar farið að minnka mikið i
ánni. I gær var verið að skipta um
„holl”, og mega þeir nýju eiga
von á góðum veiðidögum, ef allt
fer að óskum. Sex stengur eru
leyfðar i Vatnsdalsá og eru tveir
um hverja stöng, — sem sagt tólf
manns i húsinu i einu. Við spurð-
um Ingibjörgu frétta af Viðidalsá,
Laxá i Asum og Blöndu, og kvaðst
hún hafa frétt að veiöin hefði
byrjað dræmt i þeim öllum.
Fyrsti dagurinn i Vatnsdalsá var
afturá móti einn hinn allra besti i
langan tima.
Nú eru komnir 52 laxar upp úr
Vatnsdalsá og sá stærsti er 21
pund. Rúmlega þúsund laxar
komu úr ánni i fyrra.
Það eru þeir Viðir Björnsson og
Sverrir Sigfússon, sem hafa með
Vatnsdalsá að gera. AM
BÆNDUR
RZ.SLÁTTUÞYRLURNAR
KOMNAR
2 STÆRÐIR Kr. 11.159 - kr.12.789
VINNSLJUBREIDD
135og165sm
Margra ára reynsla tryggir gæðin.
Mestselda sláttuþyrlan íáraraðir.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
VÉLADEILD
^ SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavik S. 38 900
(HALLARMÚLAMEGIN)