Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 19

Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 25. júni 1981 19 flokkstilkynningar) Austurlandskjördæmi Tómas Arnason, viöskiptaráöherra og Halldór Asgrimsson, alþingismaður, halda leiðarþing á eftirtöldum stöðum: Hamraborg, Berufjarðarströnd 24. júni kl. 3 e.h. Staðarborg, Breiödal 24. júni kl. 9 e.h. Stöðvarfirði, 25. júni ki. 9 e.h. Fljótsdal, 27, júni kl. 4 e.h. Skjöldólfsstöðum, 28. júni kl. 4 e.h. Jökulsárhlið, 28. júni kl. 9. e.h. Fundarefni: Stjórnmálaviðhorfið og málefni kjördæmisins. Orðsending frá Happdrætti Framsóknarflokksins. Dregið hefur veriö i vorhappdrætti Framsóknarflokksins og vinningsnúmer innsigluð hjá borgarfógeta. Dregið var úr öllum útsendum miðum. Næstu daga geta þeir sem fengið hafa heimsenda miða og eiga eftir að gera skil, greitt skv.meðfylgjandigiróseðliinæstupeningastofnun, eöa á pósthúsi. Leiðarþing Alþingismennirnir Steingrimur Hermannsson og Ólafur Þórðarson, halda leiðarþing á eftirtöldum stöðum: Félagsheimilinu Suöureyri, fimmtudaginn 25. júni kl. 20.30 Brynjubæ Flateyri, föstudaginn 26. júni kl. 20.30 Félagsheimilinu Þingeyri, laugardaginn 27. júni kl. 16 Allir velkomnir. Almennur félagsfundur F.U.F. i Reykjavik verður haldinn að Rauöarárstig 18 fimmtudaginn 25. júni kl. 8.30 Dagskrá: 1. Fyrirhuguð lagabreyting. 2. Sumarstarf félagsins 3. Inntaka nýrra félaga 4. Onnur mál Æskilegt er að þeir sem ætla aðstarfa með félaginu næsta vetur mæti á ifundinn. _______________________________________ Stjórnin. Framsóknarfélag Skagfirðinga. Aöalfundur P ramsóknarfélags Skagfiröinga veröur haldinn i Framsóknarhúsinu á Sauöárkróki, sunnudaginn 28. júni kl. 19.30. Dagskrá. Skýrsla iormanns og gjaldkera, lögð fram endurskoðuð lög félagsins, þingmenn flokksins kjördæminu flytja ávörp, kosningar og önnur mál. Stjórn Framsóknarfélags Skagfiröinga. Guð- Siglfirðingar Alþingismennirnir: Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson og Ingólfur Guðnason.boða tilalmenns stjórnmálafundar i Aöal| götu 14, Siglufirði, fimmtudaginn 25. júni kl. 21. Allir velkomnir. Fundarboöendur. Almennir stjórnmálafundir Alþingismennirnir Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson og mundur Bjarnason halda almenna stjórnmálafundi á eftirtöldum stöðum: Raufarhöfn, miðvikudaginn 24. júni i Hnitbjörgum kl. 20.30 Þórshöfn, fimmtudaginn 25. júni kl. 20.30 Mývatnssveit, föstudaginn 26. júni i Skjólbrekku kl. 20.30. Stóru-Tjarnarskóli, laugardaginn 27. júni kl. 20.30 Sólgarður, Saurbæjarhreppi, sunnudaginn 28. júni kl. 20.30 Melar, Hörgárdal, mánudaginn 29. júni kl. 20.30 Allir velkomnir. Sumarhátíð I' ramsóknarfélags Bolungarvikur verður haldin Félagsheimilinu laugardaginn 27. júni kl. 20.30 1. Skemmtun sett Ávarp: Steingrimur Hermannsson, ráðherra Gamanvisur Eftirherman Jóhannes Kristjánsson Ávarp: Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi. Stórbingó, 3 umferðir. Vinningar: 20 kg kaffi, 3ja gira reiðhjól, utanlandsferð fyrir tvo með Samvinnuferðir-Landsýn. 7. Eftir skemmtun verður dansleikur, Hljómsveitin Gaukar frá Reykjavik. Dansað verður til 02.00 í Tilkynning til diselbifreiðaeigenda Frá og með 1. júlin.k. fellur niður heimild til þess að miöa ákvörðun þungaskatts (kilómetragjalds) við þann fjölda ekinna kilómetra, sem ökuriti skráir, nema þvi aðeins að þannig sé frá ökuritanum gengið að hann verði ekki opn- aður án þess að innsigli séu rofin, sbr. reglugerð nr. 264/- 1981. Af þessum sökum skulu eigendur þeirra bifreiða, sem búnar eru ökuritum, fyrir 1. júli n.k. snúa sér til einhvers þeirra verkstæða, sem heimild hafa til isetningar öku- mæla, og láta innsigla ökuritana á þann hátt sem greinir i nefndri reglugerð. Að öðrum kosti skulu þeir láta útbúa bifreiðar sinar ökumælum, sem sérstaklega hafa verið viðurkenndir af fjármálaráöuneytinu, til skráningar á þungaskattsskyldum akstri. Fjármálaráðuneytið, 22. júni 1981. K.Jónsson & Co. h.f. J Höfum til afgreiðslu nú þegar nokkra STILL lyftara. Upplýsingar á skrif- stofunni Hverfisgötu 72 simi 12452 og 26455. skrifað og skrafaó ■ Friðrik óiafsson: hann er ekki öfundsverður af hlutverki sinu sem forseti FIDE um þessar mundir. Markviss barátta Friðriks , ■ Friðrik ólafsson er svo sannarlega ekki öfundsverður af hlutverki sínu sem forseti Fide, alþjóölega skáksam- bandsins, um þessar mundir. Deilur hafa oft verið haröar innan skákhreyfingarinnar á alþjóöavettvangi ekki siður en hér á heimaslóðum. Forseti Fide þarf þar oft aö fara meö hlutverk sáttasemjarans, sem reynir aö leysa deilurnar á sem farsælastan hátt. Deilan um heimsmeistara- einvígið á milli núverandi heimsmeistara, Sovétmanns- ins Anatoli Karpovs, og áskor- andans, Victor Kortsnojs, sem er landflótta frá Sovétrikjun- um, er sérstaklega erfið viö- fangs. Kortsnoj og stuöningsmenn hans hafa lagt á það mikla áherslu, aö eiginkona hans og sonur, sem dvelur nú I fanga- búöum fyriraö neita aö gegna herþjónustu, fái aö fara frá Sovétríkjunum áöur en heims- meistaraeinvígiö hefst. Þeir telja, að annars verði álagið á Kortsnoj meira en á Karpov og þeir standi þvi ekki jafnt að vígi í einviginu. Friðrik ólafsson hefur nú sýnt þaö, aö hann er reiðubú- inn að ganga eins langt og honum er unnt til aö reyna aö fá slfka lausn á málum fjöl- skyldu Kortsnojs. Aðgeröir Friöriks sýna enn frekar hversu ómakleg sú gagnrýni er, sem að honum hefur verið beint af áköfustu stuðnings- mönnum Kortsnoj — og reyndar honum sjálfum. Frið- rik hefur unniö aö málinu með markvissum hætti, en ekki farið hátt með þaö. Sumir eru hins vegar haldnir þeim mis- skilningi, að þeir sem hafi hæst á opinberum vettvangi vinni málum mestan fram- gang. Það er auðvitað alrangt eins og dæmin sanna. Hávaða- mennirnir eru oft á timum þeim málstað, sem þeir þykj- ast berjast fyrir, hreinir óþurftarmenn. Ekkert liggur auðvitað fyrir um það, hvort aðgerðir Friðriks bera tilætl- aðan árangur. Það má jafnvel færa sterkar likur fyrir þvi, að svo veröi ekki. En það er þá alla vega ljóst, að hann hefur gert allt þaö, sem i hans valdi stendur, til þess að fá farsæla lausn málsins. samvmnu- Iðnaður manna. Jón Kristjánsson, ritstjóri „Austra”, ritar forystugrein i blað sitt um samvinnuhreyf- inguna og iönaðarrekstur hennar, og fjallar m .a.um þá erfiðleika, sem viö er aö etja i þeim rekstri. Jón segir m.a.: „Iðnaður samvinnuhreyf- ingarinnar átti I verulegum erfiðleikum á siðasta ári. Samvinnuhreyfingin i heild mætti þessum áföllum og áfram er haldið, utan hvaö ekki hefur fundist lciö til aö halda áfram rekstri klæða- verksmiðju í Borgarnesi og málefni skóverksmiðjunnar Iðunnar eru til sérstakrar meöferðar, eins og kunnugt er. Reynt hefur veriö aö koma við fyllstu hagræöingu og allur rekstur Iðnaðardeildar hefur verið endurskipulagður. Samt er Utlitiö ekki nógu gott. Iðn- aðinum verður að búa þau ytri skilyrði að hann geti keppt I þeim haröa heimi sem sala á erlendum mörkuðum er. A þetta ekki hvað sist við um fjárm agnskostnaö iðnaðarins, vexti og lánakjör, en þessi kostnaður er gifurlega hár. Stjörn Sambandsins mark- aði á sinum tima þá stefnu I iönaðarmálum, að dreifa starfseminni nokkuð og það er nauðsynlegt að sú stefna standist. Iðnaður sá sem hér um ræðir er ullar- og skinna- iönaður og hann er gifurlega mikils virði fyrir landbúnað- inn og atvinnullf og byggöa- þróun viða um land. Hags- munir bænda og iönverkafólks fara hér saman, sem og af- koma þjóðarbúsins I heild. Þessi iðnaður bæði á vegum samvinnufélaga og annarra aðila er með stærri atvinnu- greinum hérlendis og kemst næst áli i útflutningsverðmæti iðnvarnings. Nú eru ýmsar blikur á lofti og slæmar fréttir berast einn- ig frá þeim saumastofum, sem aðrir aðilar en samvinnu- félögin reka, og hér i þessum fjdrðungi búa saumastofur við fullkomið óvissuástand. Þvl ber brýna nauðsyn til að taka þessi mál til sérstakrar athug- unar og finna með hverjum hætti má renna styrkari stoð- um undir þessa starfsemi”. Það er ekki ofsögum sagt að vandi saumastofanna út um land er mikill, og áhyggjuefni i mörgum byggöalögum ef þessi iðnaðarframleiösla stöðvast að verulegu leyti. —ESJ. Elías Snæland Jónsson ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.