Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. jiini 1981 fréttirl Orkustofnun og Sala varnarliðseigna bftast um bílastæði: VEGGUR STEYPTUR UMHVERFIS SEXTÍU BÍIASTÆÐI A BflKLÓÐ ■ Undarleg deila er nú i gangi á milli Orkustofnunar og Sölu varnarliðseigna um skiptingu bilastæða fyrir framan og aftan húsið númer 9 við Grensásveg, þar sem báðar stofnanirnar eru til húsa. Telur Orkustofnun veri lega á hag sinn gengið eftir a Sala varnarliðseigna hefur steyp vegg umhverfis alla baklóð húss ins, þar sem rúm á að vera fyri um 60 bilastæði, og notað han; undir vörulager. Samkvæmt teikningum hússins eiga að vera rúmlega 90 bila- stæði, 30 fyrir framan og 60 fyrir aftan húsið. „Með fyrrgreindri ráðstöfun baklóðarinnar eru bila- stæðihússins stórlega skert. Eftir eru aðeins um 32 bilastæði við Grensásveg”, segir Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgarverk- fræðingur. Að tillögu borgarverkfræðings hefur borgarráð samþykkt að eigendum Grensásvegar 9 verði gert að ganga nú þegar frá 59 bilastæðum á baklóð húseignar- innar eins og samþykkt afstöðu- mynd sýnir. Skal þessum fram- kvæmdum vera lokið eigi siðar en 1. ágúst nk. I bréfi sem Alfreð Þorsteinsson, forstjóri Sölu varnarliðseigna, hefur sent borgarráði segir að „enginn fótur sé fyrir greinar- gerð borgarverkfræðings um vöntun á bilastæðum við Grensásveg 9, samkvæmt sam- þykktum teikningum. Þar er gert ráð fyrir 91 bilastæði, en bilastæði eru nú um 100 talsins. Þar af nýtir Orkustofnun u.þ.b. 40-50 bilastæði götumegin, en ætti samkvæmt eignarhlutföllum i húsinu að hafa einungis 35 stæði.” „Ot yfir allan þjófabálk tekur þó, að stofnuninni skuli ekki einu I Veggurinn frægi sem steyptur hefur verið upp á baklóð Grensásvegar 9. Timamynd: G.E. sinni vera tilkynnt um afgreiðslu borgarráðs á þessu tiltekna máli”, segir Alfreð Þorsteinsson, en Orkustofnun var tilkynnt um afgreiðsluna, en ekki Sölu varnarliðseigna. „Sýnist ein- kennilegt”, segir Alfreð, „að borgarstjóri sem er jafnframt stjórnarformaður Orkustofnunar, skuli standa i bréfaskriftum við sjálfan sig i stað þess að tilkynna réttum aðila um afgreiðslu borgarráðs.” Gunnlaugur Pétursson, borgar- ritari, hefur hins vegar bent á að fjármálaráðuneytinu sem yfir- umsjónaraðila með fasteignum rikisins.hafi verið tilkynnt um af- greiðslu borgarráðs, „sem hlýtur að teljast fullgildur hagsmuna- aðilií þessu máli”, eins og segir i greinargerð hans. Ef ekki verður hafist handa við lagfæringar á bilastæðum við húsið innan tiðar, verður málið sent til byggingarnefndar, með það fyrir augum að ákvæðum byggingarreglugerðar verði beitt. — Kás Misjafnar tekjur flugmanna ■ t dag er meiningin að giugga i skatta nokkurra fiugmanna, sem valdir hafa verið af algjöru handahófi. Flugmenn hafa löng- um þótt tekjudrjúgir, a.m.k. segir þjóðsagan það. Þessir hafa orðið fyrir valinu: Baldur Oddsson, Kristján Egilsson, Óskar Sigurðs- son, Stefán Gislason og Stefán Gunnarsson. Það er alveg greinilegt að Stefán Gislason er duglegastur við tekjuöflunina. Hann greiðir um 9.3 millj. gkr. i skatta, og hef- ur liklega haft um rúmar 29 millj. gkr. i tekjur. Hinir fjórir eru varla hálfdrættingar á við Stefán Gislason, enda mjög likiegt að hann hafi riflegan skammt tekna sinna annars staðar frá en flug- inu. Næstur Stefáni kemur nafni hans Gunnarsson. Hann hefur greitt um 7.4 millj. gkr. i skatta, og liklega haft tekjur i kringum tæpar 18 millj. gkr. 1 þriðja sæt- inu eru Óskar Sigurðsson. Hann greiðir um 7 millj. gkr. i skatta, og hefur haft nálægt 16 millj. gkr. i tekjur. Eignaskatti flugmannanna er mjög misjafnt komið. Stefán Gislason er himinhátt yfir kollega sina hafinn. Hann greiðir rúmar 2 millj. gkr. i eignaskatt, meðan að sá sem næst honum kemur sem er ■ Óskar Sigurösson Baldur Oddsson greiðir aðeins tæpar 290 þús. gkr. En látum töfluna tala sinu máli. Allt í gömlum krónum: Nafn: tekjusk. Stefán Gislason 4.209.541 Stefán Gunnarss 4.658.379 óskar Sigurðss 4.741.113 Baldur Oddsson 3.615.806 Kristján Egilss 2.527.962 ATH: Skattar ársins 1980 ■ Stefán Gunnarsson Eins og fyrri daginn skal það tek- ið fram að hér er um að ræða skatta ársins 1980, vegna tekna gStefán Gislason ársins 1979. Frá árslokum 1979 er talið að launatekjur hafi hækkað að meðaltali um 60-70%. Kás Opinber ákæra á hendur „sölu- mönn- unum” ■ Tveir menn, þeir Edvald Löv- dahl og Sigurður örn Ingólfsson, hafa nú verið opinberlega ákærð- ir af embætti rikissaksóknara fyrir fjársvik og skjalafals. Þetta mál var talsvert i fréttum á fyrra sumri, er i ljós kom að þeir höfðu keypt mannvirki gömlu sildarverksmiðjunnar á Djúpuvik og notað vixla úr þeim viðskiptum, svo og leikfangasölu, sem þeir höfðu með höndum, til þess að svikja út stórfé, einkum við bilakaup, og skiptu fjárhæðir tugmilljónum gamalla króna. Hafa mennirnir verið i farbanni, frá þvi er rannsókn máls þeirra lauk. Þá hefur verið höfðað mál á hendur tveimur mönnum sem tengjastþessumáli, kaupmanni á Vesturlandi og heildsala i Reykjavik, sem mun hafa flutt inn leikföngin. AM eignask. 2.026.924 útsvar 3.503.000 227.843 2.116.000 62.090 1.916.000 284.201 1.846.000 3.660 1.045.000 vegna tekna ársins 1979. samtals 9.334.020 7.403.190 7.085.571 6.098.965 3.793.257 áætl. tekjur 29.346.531 17.811.447 16.127.946 15.538.720 8.796.296 VOLVQ LESTIN' Kristján Tryggvason lestarstjóri Volvolestarinnarog áhöfn hans þakka öllum þeim, sem greiddu götu þeirra á hringferðinni um landið, kærlega fyrir hjálpina. Jafnframt senda þeir félagar öllum þeim sem skoðuðu lestina bestu Volvo-kveðjur. Eittað lokum: Hjá Velti á Suðurlandsbraut 16 eru allir dagar Volvodagar!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.