Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.06.1981, Blaðsíða 9
9 Fimmtudagur 25. júni 1981 //Innlendur lyfjaiðnaður er nauðsynlegur öryggisþáttur í heilbrigðisþjónustu hverrar þjóðar. Þvi öflugri, sem þessi iðnaður er, þeim mun meira öryggi veitir hann landinu. Land, sem ekki getur sjálft framleitt sín nauðsynlegustu lyf, er illa á vegi statt". ■ ,,A undanförnum árum hefur Pharmaco h.f. veriö i fararbroddi inn- lendrar lyfjaframleiöslu”. Myndin er úr Pharmaco. fyrir þvi að hlutaðeigandi innlend lyf séu jafngild samsvarandi er- lendum sérlyfjum i verkun. Veigamikill liður i rannsóknum á lyfjum er mat á aðgengi þeirra i mönnum i samanburði við þekkt lyf með sama lyfjaefni. 1 þessum rannsóknum er leitast við að meta, hvort lyfin komist i sam- bærilegu magni inn i blóðbraut þeirra, sem lyfjanna neyta. Hér er augljóst að samvinna verður að vera milli hins opinbera og lyfjaframleiðenda og þörf er á þvi að i lög komi ákveðnar reglur um lyfjatilraunir á mönnum. í Rannsóknarstofu i lyfjafræði við Háskóla tslands er sérstök lyfjarannsóknardeild, sem ann- ast ákvarðanir á blóðsýnum er berast frá sjúkrastofnunum og læknum. Þessi deild hefur tekið að sér að annast frásogsrann- sóknir á mönnum með innlend lyf i samanburði við erlend lyf. Á sjúkrahúsum hefur einnig verið unniö að slikum rannsóknum og þarf að bæta aðstöðu þeirra til þess að fást við kliniskar rann- sóknir á lyfjum. Mikilvægt er að efla Rann- sóknarstofu i lyfjafræði og rann- sóknarstofu i lyfjafræði lyfsala við Háskóla Islands, þannig að þær geti tekið aö sér grundvallar- rannsóknir, sem nýtist islenskum lyfjaiðnaði. Skráning sérlyfja Lögum samkvæmt er það verk- efni lyfjanefndar að gera tillögur til ráðherra um skráningu sér- lyfja. Það hefur verið lögð mikil áhersla á að nefndin starfaði mjög sjálfstætt og er bað nauð- synlegt þar sem nefndin veröur fyrst og fremst að hafa öryggis- sjónarmið i huga við ákvarðanir sinar. Ýmsir hafa þó orðið til þess að gagnrýna langan umfjöllunar- tima nefndarinnar. Nauðsynlegt er þvi að bæta starfsaðstöðu nefndarinnar, þannig að hún geti betur sinnt þessu hlutverki sinu og starfsemi hennar gangi hraðar fyrir sig. Rannsóknir og þróunarvinna eru alltaf kostnaðarsamar og eðlilegast er að þeim fjármunum, sem varið er til þess að staðla lyf og tryggja gæði þeirra fáist aftur i söluverði lyfjanna. Þvi er nauð- synlegt að hvert lyf sé verðlagt sérstaklega og er slikt heimilt, þegar um sérlyf er að ræða en Lyfjaeftirlit rikisins þarf að stað- festa framleiðsluverð. Við verðlagningu staðlaðra for- skriftarlyfja eru enn notaðar þær aðferðir að smásöluverð er ákvarðað með opinberum reglum án tillits til framleiðslukostnaðar hvers lyfs. A meðan sá háttur er hafður, getur heildsöluverð fram- leiðslunnar vart verið hærra en sá hluti af smásöluverði lyfja, sem eftir veröur þegar heimiluð smá- söluálagning þeirra hefur verið dregin frá, án tillits til raunveru- legs kostnaðar við framleiðsluna, sem mætir sivaxandi kröfum um eftirlit og gæði. Skyldur rlkisins Rikiðhefurmiklum skyldum að gegna i viðleitni til þess að efla innlendan lyfjaiðnað og verður nú getið þeirra helstu: • Innlendur lyfjaiðnaður veitir landinu öryggi i lyfjabirgðum. • Innlendur lyfjaiönaður veitir erlendum lyfjaframleiðendum samkeppni og stuölar aö þvi að halda lyfjaverði ínnan sann- gjarnra verðlagsmarka. • Innlendur lyfjaiðnaður sparar þjóðinni verulegan gjaldeyri. • Innlendur lyfjaiðnaður eykur innlenda þekkingu á sviöi lyfja- rannsóxna og lytjatramleiðslu og skapar islenskum rann- sóknarstofnunum frekari möguleika á hagnýtum rann- sóknarverkefnum. 0 Innlendur lyfjaiðnaður getur tekið við auknum mannafla bæði með og án sérþekkingar. • Innlendur lyfjaiðnaður er hag- kvæmari en ýmis annar iðnað- ur, þar sem ekki er um að ræða mikla hráefnisflutninga til landsins og framleidd er háþró- uð og dýr vara, þannig að hrá- efniskostnaöur er innan við 30% af heildarverðmæti i flest- um tilvikum. • Innlendur lyfjaiðnaður getur i framtiðinni orðið visir að út- flutningi lyfja. • Innlendur lyfjaiðnaður gefur innlendum umbúðaframleið- endum aukna sölu. • tslensk stjórnvöld tapa engum tolltekjum þó að þau styðji inn- lendan lyfjaiðnað. A islenskum lyfjamarkaði er fjöldi erlendra lyfja, sem á til- tölulega stuttum tima er hægt aö staöla og hefja framleiðslu á hér á landi með tækjakosti, sem að mestu leyti er til staöar nú þegar. Hér er um nægilega stóran mark- að að ræða til þess að hægt sé að leggja i nauðsynlegan kostnað og verðlag þessara erlendu lyfja er þannig að innlendur lyfjaiðnaður hefur góöa samkeppnismögu- leika. Samræmt átak Hvernig til tekst með þessi verkefni er að verulegu leyti háð þvi, hvort á skynsamlegan hátt takist að samræma átak inn- lendra lyfjaframleiðenda til eflingar innlendum lyfjaiðnaði. Þörf er frekari stefnumörkunar rikisvalds um hvern hlut þaö ætl- ar sér á þessu sviði og hver af- skipti það hyggst hafa af lyfjaiðn- aði meö lánum eöa fjárframlög- um. Samkvæmt lyfjalögum nr. 49/1978 er eitt af hlutverkum lyf- sölusjóðs að efla með lánum eða styrkveitingum innlenda lyfja- framleiðslu, en lyfsölusjóður hef- ur ekki fengið lögboðnar tekjur ennþá. Fyrir Alþingi liggur nú tillaga til þingsályktunar um eflingu inn- lends lyfjaiðnaðar, sem flutt er af 5 þingmönnum Framsóknar- flokksins. Hér er um mikilvægt mál að ræöa, þvi að lyfjaiönaður getur vel hentað fámennri þjðð, þar sem hann þarfnast ekki mikils hráefnis en framleiðslan leiðir til mikillar verðmætaaukn- ingar, sem myndast i landinu sjálfu. Flestir islenskir lyfja- fræðingar hafa hlotið menntun i Danmörku og Sviþjóð, þar sem lyfjaiðnaður er mikilvægur at- vinnuvegur og eru þeir þvi vel menntaðir til þess að vinna að lyfjaiðnaði. Nálægð markaðarins á einnig að veita innlendum lyfja- iðnaði tækifæri til hagkvæmrar kynningar og sölu á framleiðsl- unni. Vinna þarf frekar úr þeim atriðum, sem þingsályktunartil- lagan fjallar um og mun þá reyna á það meðal þingmanna, hver áhugi er á þvi að taka málefni is- lensks lyfjaiðnaðar upp af skyn- semi og stórhug. Verði vel að málum staðið á lyfjaiðnaður að geta orðið mikil- væg atvinnugrein á tslandi og með hóflegri bjartsýni má vænta þess að hér verði siðar hægt að framleiða lyf til útflutnings. Reykjavik 15. mai 1981 Guðmundur Steinsson (Guðmundur flutti ræðu þessa á ráöstefnu um stöðu og framtið iðnaðar á tslandi á vegum SUF. Hún er hér örlitið stytt. Milli- fyrirsagnir eru blaösins) borgarmál ■ Meðferðarheimilið að Kleifarvegi 15. IVIedferdar- heimilið að Kleifarvegi lagt niður? Meðferðarheimili hefur verið rekið undanfarin ár fyrir taugaveiktuð börn að Kteifarvegi 15 i Reykjavik. Það var Heimilissjóður taugaveikiaðra barna og Hvitabandið sem gáfu húsið undir starfsemina, en rfkið og Reykjavikurborg hafa fjár- magnað reksturinn. Hefur verið hægt að koma þar fyrir þeim börnum, sem verst eru fariu andlega, til sólarhringsvistar, meðan þau geta ekki dvalið á heimilum sinum. |Nu bendir allt til þess að veruleg uppstokkun verði á starfsemi heimilisins. Rikið hefur kippt að sér hendinni hvað rekstraraðild snertir og vitnar til þess að Mennta- málaráöuneytið eigi að bera allan kostnað vegna vistunar barna i sérskóla sem orsakast af f jarlægð skólans frá heimili nemenda, hvort sem heldur er vistað á einkaheimilum eða i heimavist. „Meðferðarheimili tauga- veiklaðra barna Kleifarvegi 15 er eins og nafnið ber meö sér, stofnað og starfrækt til að annast lækningu og meöferö taugaveiklaðra barna, en ekki vistun vegna skólasóknar af ofangreindum ástæðum. Ljóst er að einhverjir aörir en Menntamálaráðuneytið eiga aö bera kostnað af þessari stofnun. Ráðuneytið vill hins vegar ekki ákvarða hverjir þeir aðilar eru”, segir i stuttu bréfi til borgarinnar frá ráðu- neytinu. M.ö.o. rikið tekur ekki frekari þátt i rekstri Með- ferðarheimilisins að Kleifar- vegi 15. 1 framhaldi af þessu sam- þykkti fræðsluráð Reykja- vikurborgar, sem rekstur heimilisins heyrir undir, til- lögu frá Þorsteini Sigurðssyni, sérkennslufulltrúa, þar sem gert er ráð fyrir aö núverandi meðferðarheimili verði breytt i dagskóla fyrir 10 nemendur meö atferlistruflanir. „Jafn- framt dagskólanum verði starfrækt að Kleifarvegi 15 göngudeild fyrir bráðatilvik (nemendur, sem brotið hafa brýr að baki sér i heimaskóla vegna atferlistruflana)”, eins og segir i samþykkt fræöslu- ráðs. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þeirrar tillögu sem samþykkt var i fræðsluráöi. Sjálfstæðismenn voru uppi með hugmyndir um að hefja viðræður viö Menntamála- ráðuneytiö þar sem leitað yrði eftir þvi að áfram yrði rekið sólarhringsheimili að Kleifar- vegi 15 næsta vetur. Þeirri hugmynd var visaö frá, þar sem talið var af meirihluta fræösluráðs, aö afstaða ráðu- neytisins heföi þegar komiö skýrt fram i þvi bréfi sem vitnað var til hér aö framan. Auk þeirrar tillögu sem nefnd var hér fyrr, hefur fræðsluráð samþykkt að fela fræðslustjóra i samráði við stjórn Heimilissjóös tauga- veiklaðra barna og stjórn Hvitabandsins að hefja undir- búning að stofnun nýs með- feröarheim ilis fyrir tauga- veikluö börn i tengslum viö Bústaðaskóla i Reykjavik. „Skal við það miðað að það taki til starfa haustiö 1982. Skal við það miðaö aö húsið að Kleifarvegi 15 veröi selt og andviröiö notað til þess aö fjármagna stofnkostnaö. Rekstur heimilisins skal tryggður i samráði við menntamálaráðuneytið, enda er tryggur rekstur forsenda farsæls starfs”, segir i sam- þykkt fræðsluráðs. Sjálfstæöismenn i fræðslu- ráöi voru ekki ánægðir með þessa framvindu mála og bók- uðu: „Við eigum ekki von á að léttara verði að byrja upp á nýtt og koma upp nýju sólar- hringsheimili til meðferöar taugaveiklaöra skólabarna, ef það verður nú lagt niður, þótt ekki sé nema 1-2 ár, svo erfiö- lega sem gengið hefur að fá skilning á nauðsyn þess nú... ....Engin rök hniga aö þvi að bæði borg og riki vilji af hörku leggja meöferðarheimilið niö- ur i ár, en veröi siðar fús til að taka upp rekstur aftur,” segir i bókun þeirra. A siðasta fundi borgar- stjórnar var endanlegri ákvörðun um breytt fyrir- komulag Meðferðarheimilis- ins að Kleifarvegi 15 frestað, vegna óskar sem kom fram þar að lútandi. Það verður spennandi aö sjá hver af- greiöslan veröur á fundi borgarstjórnar nk. fimmtu- dag. Guðrún Helgadóttir hefur haft ákveönar efasemdir um ágæti þeirrar niðurstöðu sem meirihluti fræðsluráðs varð sammála um. Það gæti þvi allt eins fariö að ákvörðun fræösluráðs yröi á einhvern hátt, að meira eða minna leyti, breytt, Kristinn Hallgrímsson, bladamaður, skrifar:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.