Tíminn - 25.06.1981, Qupperneq 6
Fimmtudagur 25. júni 1981
stuttar fréttir
•, ws,.:-xv^—.... .....
■ Hvergeröingar taka I notkun nýja heiisugæslustöö innan
skamms og íá jafnframt fyrsta tannlækninn i plássiö.
Fyrsti tann-
læknirinn í plássid
lega heim ýmisskonar heilsu-
verndarstarfsemi, svo sem
mæöraeftirlit og ungbarna-
skoöun, sem verið hefur á Sel-
fossi. Læknar verða áfram
tveir, en umsókn liggur fyrir
um hjúkrunarkonu i a.m.k.
hlutastarf.
HVERAGERÐI: „Viö erum
að taka i gagnið nýja heilsu-
gæslustöö, væntanlega fyrir
lok júnimánaðar, og jafnframt
að fá fyrsta tannlækninn i
plássið”, sagði Þórður Snæ-
björnsson, oddviti i Hvera-
gerði.
Hvergerðingar keyptu
gamla Búnaðarbankahúsið og
er nú veriö að leggja siöustu
hönd á breytingar og endur-
bætur þess sem heilsugæslu-
stöövar. Tannlæknir sem ný-
lega er fluttur til Hveragerðis
fær siðan leigt húsnæði þar.
sem læknamóttakan er nú til
húsa, en það er við sömu götu
beint á móti. Þórður sagði alla
aðstöðu i læknamóttökunni
stórbatna við þessa breytingu.
En auk þess kæmi nú væntan-
Þórður sagði bæjarbúa að
sjálfsögðu hæst ánægða með
aö fá tannlækni á staðinn.
Hingað til hafi fólk annað
hvort þurft að leita tannlæknis
til Selfoss eða Reykjavikur.
Aðspurður sagðist hann hafa
góöar vonir um að tannlæknir-
inn væri að setjast þarna að til
frambúðar, m.a. af þvi aö
hann legði sér sjálfur til öll
tæki og búnað.
— HEI
Söluaukning
63%
árið 1980
EGILSSTAÐIR: Heildarvelta
Kaupfélags Héraðsbúa varð
rösklega 14 milljarðar gkr. á
árinu 1980 að þvi fram kom á
aðalfundi félagsins. Var það
53% aukning frá árinu áður.
Heildarsala félagsins nam
5,3 milljörðum á árinu, sem
var 63% meðalaukning frá ár-
inu 1979. Skuldir viðskipta-
manna jukust um 56% á árinu
en inneignir um 40% á sama
tima. Til fjárfestinga var var-
ið 277 millj gkr., að stærstum
hluta til byggingar söluskála á
Egilsstöðum og endurbóta á
kjörbúðinni á Reyðarfirði.
Samþykkt var að leggja 15
millj. gkr. i stofnsjóð félags-
manna og að úthluta 4 millj.
gkr. i menningarsjóð. Menn-
ingarsjóður úthlutar fé til
ýmissa samfélagsverkefna
eftir ákvörðun stjórnar hverju
sinni.
Aðalfundinn sátu 68 fulltrú-
ar félagsdeildanna, auk fé-
lagsins, endurskoðenda og
nokkurra starfsmanna. Tveir
heiðursgestir sátu fundinn,
Björn Kristjánsson, Grófar-
seli og Hermann Ágústsson á
Reyðarfiröi er nýlega hefur
látið af störfum hjá félaginu
eftir langt og farsælt starf.
— HEI
Mirmisvarði
afhjúpaður
ESKIFJÖRÐUR: Á sjó-
mannadaginn var afhjúpaður
á Eskiíirði minnisvarði um
drukknaða sjómenn frá Eski-
firði. Viö athöfnina stóðu fé-
lagar úr björgunarsveitinni
Brimbúö heiðursvörð. Sóknar-
presturinn, séra Daði
Baldursson, flutti ritningarorð
og sjómannapresturinn Helgi
Hróbjartsson, flutti bæn. Sið-
an afhjúpaði 13 ára stúlka,
Anna Hordis Friðriksdóttir,
minnisvarðann og Aðalsteinn
VaJdimarsson, formaðuf
minnisvarðanefndar flutti
ávarp og afhenti Eskifjaröar-
bæ listaverkið til varðveislu.
Askell E. Jónsson, bæjar-
stjóri, tók við gjöfinni og
þakkaöi öllum sem þar höfðu
vel að unnið. Siðan lögðu tvær
sjómannastúlkur blómsveig
að minnisvarðanum.
Minnisvarðann gerði lista-
maðurinn Aage Nielsen Ed-
vin, og sýnir hann sjómann
krjúpandi með húfu sina milli
handanna, biðjandi sjóferða-
bænar. Aage Nielsen Edvin
verður 83 ára i sumar og var
hann viðstaddur athöfnina.
Minnisvarðinn var reistur
fyrir frjáls framlög einstakl-
inga og fyrirtækja, og gáfu
margir mikið af litlu.
Athöfn þessi fór mjög hátið-
lega fram að viðstöddum 400
til 500 manns.
HT —Eskifirði
Hver
úttektarnóta
kostar
70 aura
AUSTFIRÐIR: „Oft er talað
um pappirsflóð er fylli allar
skrifstofur. Það má til sanns
vegar færa að það er mikið.
En með örlitilli hugsun mætti
minnka þaö og spara fé um
leið”, segir i nylegu frétta-
bréfi Kaupfélags Héraösbúa.
Hjá þeim sem eru i
reikningsviðskiptum er það
sagt mjög vilja brenna við, að
þeir láti skrifa hjá sér hvað-
eina, hve litlar upphæðir sem
um sé að ræða. Þess eru þann-
ig sögð dæmi, aö sami maður
láti skrifa hjá sér oft á dag, oft
smáupphæðir i senn. Að koma
þessum úttektum gegnum
reikninga með færslum og
samanburöi er sagt kosta
verulegar upphæðir. Hvert
einasta blað sem útteknar
vörur eru skrifaðar á kosti t.d.
um 0,70 kr. (70 gkr.) um þess-
ar mundir.
Með þvi að taka út peninga
úr reikningi hjá gjaldkera og
greiöa meira i verslunum en
gert er sé þvi hægt að spara
verulega. Þetta hvetur Kaup-
félag Héraðsbúa viðskiptavini
sina til að hafa i huga i
verslunarferðum sinum.
— HEI
Skattadrottning á Vesturlandi:
KONA MEÐ HÆSTA
TEKIUSKflTTINN
Greiddi yfir 11 milljónir gkr
■ Borgnesingar eignuðust á siö-
asta ári sannkallaða skatta-
drottningu. Langsamlega hæsti
tekjuskattsgreiðandi i Vestur-
landsumdæmi árið 1980 var Aðal-
heiöur Lilja Jónsdóttir á Bjargi i
Borgarnesi. A hana var lagður
11.251.694 gkr. tekjuskattur, en
alls námu skattar lagöir á Aðal-
heiði rétt tæpum 15 milljónum
gkr. samkvæmt upplýsingum
Skattstofu Vesturlandsumdæmis
á Akranesi. Skýringin á háum
gjöldum Aðalheiðar mun vera sú
aö 1979 seldi hún eignarland sitt.
Heildarálagning opinberra
gjalda á einstaklinga i umdæm-
inu nam samtals röskum 7,5
milljörðum króna. Þar af nam
tekjuskattur um 3,3 milljörðum
gkr. á 5.145 gjaldendur, útsvar
um 3,2 milljörðum gkr. á 8.488
gjaldendur, eignaskattur 143,4
milljónum á 1.282 gjaldendur og
sjúkratryggingagjald um 482,4
milljónum á 8.411 gjaldendur. Til
frádráttar komu barnabætur og
persónuafsláttur að upphæð
1.338,8 milljónir gkr.
Hæstu fyrirtæki i umdæminu
voru: Hvalur hf. með samtals um
174 millj. gkr. þar af um 120,7
milljónir i tekjuskatt, og um 16
millj. eignaskatt. Kaupfélag
Borgfirðinga með samtals gjöld
120,3 millj. gkr. þar af 6,6 millj. i
tekjusk., 30,5 i eignask. og 40
millji i aðstöðugjald. Haraldur
.Böðvarsson á Akranesi meö 85,2
millj. gkr. i samtals álögð gjöld,
þar af 9,3 millj. i eignaskatt, 24,5
millj. i lifeyristryggingagj. og
21,1 millj. i aðstöðugjald. Tekju-
skattur var ekki lagður á H.B.
Þorgeir og Ellert á Akranesi með
samtals um 69 millj. gkr. heildar-
álagningu, þar af um 30 millj. i
tekjuskatt.
Af einstaklingum voru hæstir:
1. Soffanias Cecilsson, út-
gerðarm.i Grundarfirði (að með-
töldum 2,3 millj. kr. eignask.
konu hans) með um 28,2 milljónir
gkr. 2. i röðinni var Aðalheiður á
Bjargi sem fyrr segir. 3. Runólfur
Hallfreðsson, útgerðarm. á Akra-
nesi með samtals tæpar 19,6millj.
gkr. (3,2 millj. kr. eignask. konu
meðtalinn). 4. Sæmundur Sig-
mundsson, sérleyfishafi i Borgar-
nesi með samtals 12,2 millj. gkr. i
álögð gjöld. __hei
■ Trillukarlarnir hafa ekki látið sitt eftir liggja 1 tæknivæðingunni, — nú landa þeir ekki ööruvisi en
meö krönum. Timamynd:GE
Orlofsféð hjá Póstgíróstofunni:
„Vaxtatapið lendir á
atvinnurekendum”
■ „Vaxtatapið lendir á atvinnu-
rekendunum” svaraði
Guðmundur öli Guðmundsson,
lögmaður Póstgiróstofunnar
spurningu um vaxtatap af orlofs-
fé sem launagreiöendur stæöu
ekki skil á til Póstgiró á réttum
tima og jaínvel mörgum mánuð-
um of seint.
Vextir af þvi orlofsfé er ienti i
innheimtu sagði Guðmundur að
væru þá innheimtir um leið og or-
lofsféð. En hafi launagreiðandi
hinsvegar gert skil á orlofsfénu
t.d. nokkrum mánuðum of
seint, sagði hann reiknaða við-
bótarvexti er innheimtir væru
eftir að útsendingu siðari oflofs-
ávisananna væri lokið i júni/júli.
Slikir viðbótarvextir hafi t.d. i
fyrra numið um 90 milljónum
gkr., innheimtir frá 500 launa-
greiðendum (af alls um 2000),
fyrir um 6600 launþega.
Heildar vaxtagreiðslur hjá
Póstgiróstofunni nú fyrir timabil-
iö 1. mai 1980 til 1. april 1981 sagði
Guðmundur nema riflega 1,5
milljörðum gkr.
— Hvað á fólk að gera ef það
kemst að þvi að launagreiðandi
hefur ekki greitt orlof?
■ Það á að snúa sér til okkar eða
næstu póststöðvar með sina
launaseðla, þar sem ijósrit eru
tekin af þeim og skuldin siðan
innheimt af okkur”, svaraöi Guð-
mundur. Launagreiðanda sé þá
fyrst sent kröfubréf, og greiöi
hann ekki fljótlega sé gert lögtak.
Hann sagði það hinsvegar oft
hafa valdið talsverðum misskiln-
ingi að fólk og þá jafnvel starfs-
menn fagfélaga, hafi talið nægi-
legt að farið sé með launaseðla á
pósthús til að fá greiðsiu orlofsins
gegn þeim samstundis. En Póst-
giróstofan geti að sjálfsögðu ekki
greitt orlofsféð út fyrr en krafan
hafi verið sannreynd, annaðhvort
með viðurkenningu skuldarans
eða með lögtaki hjá honum.
Launaseðill þurfi ekki að vera
100% sönnun um vanskil. T.d.
segði launaseðill ekkert um það
hvort orlofsféð hafi verið greitt
beint til launþegans, eins og
stundum eigi sér stað.
Erfiðustu málin sagði Guð-
mundur, þegar um væri að ræða
einhverskonar smá atvinnurek-
endur sém stofnaö hafi hlulafélög
er reynist siðan eignalaus þegar
kemur að innheimtu. Stundum
væri lika erfitt að finna slika
menn.
Þá kom fram aö Póstgiróstofan
treysti talsvert á trúnaöarmenn á
vinnustöðum og/eða viðkomandi
verkalýðsfélögtil að safna saman
launaseðlum ef um vanskil væri
að ræða og koma þeim til Póst-
giróstofunnar til innheimtu.
—HEI