Tíminn - 25.06.1981, Qupperneq 11

Tíminn - 25.06.1981, Qupperneq 11
 ■ Hér er fariö i „Limbó”, —og nú er um aö gera aö detta ekki aftur fyrir sig (Timamynd ELLA) ■ Þaö skorti ekkiá aö menn væru reiöubúnir aö sýna ýmis tilþrif, til þess aö krydda myndefniö fyrir Ijósmyndarann. (Timamynd ELLA) Á annað hundrað börn af skóladagheimilum á Iþróttavellinum vid Fellaskóla: UF OG ENtR A JÓNSMESSIIMÓH! ■ Fóstrur á skóladagheimilum Reykjavikurborgar spara sér enga fyrirhöfn til þess að lifga upp á til- veruna hjá börnunum sem falin eru þeirra umsjá. i gær og i fyrradag efndu þær til leikjahátiðar sem þær nefndu Jónsmessunótt og þar hitt- ust börn af átta skóladagheimilum i borginni oggerðusér glaðan dag viö fjölbreytta leiki, sem fóstrurn- ar höföu skipulagt. Börn af einum átta dagheimilum j komu saman á iþróttavellinum við Fellaskóla og sagði Rósa Guðna- dóttir fóstra á Suðurborg okkur i gær að á þessu leikjamóti hefði á þriðjudaginn verið farið i kapp- hlaup, gengið á stultum, farið i pokahlaup, sippað, farið i boð- hlaup, stokkið yfir vatnsbala og fleira og þreytti hvert skóladag- heimilannna sömu leikjasyrpuna, þótt ekki væri þetta keppni, til þess að forðast allan meting. Alls voru þetta tiu eða ellefu leikir og i gær var farið i enn nýja leiki. Á hverju heimilanna eru ein tutt- ugu börn svo þarna var álitlegur hópur saman kominn og var börn- um i hópunum blandað saman, svo þarna kynntust þau mörgum nýj- um félaga. Rikti mikil ánægja og fögnuður með þessa nýbreytni, en þátttakendur voru á aldrinum 6—10 ára. Má nærri geta að slik ný- breytni er vel þegin, en unga fólkið er á skóladagheimilinu sinu átta tima á dag. Fóstrurnar hafa einnig farið með börnin i ferðalög og sagði Rósa að þær á Suðurborg hefðu farið með sinn hóp i útilegu að Laugum i Holt- um i þrjá daga. Gafst það prýði- lega, þótt eins og vænta má hafi þær fóstrurnar haft i mörg horn að lita i ferðinni, enda er útilega ekki litill viðburður, þegar maöur er enn ekki nema sex eða tiu ára —AM ■ A milli leikja var gott aö setjast niöur og gá i nestispakkann. (Timamynd ELLA) ■ Hver veit á hvaöa knattspyrnuvelii hann setur sigurmarkiö eftir 15 ár? (Tlmamynd ELLA) ■ Pokahlaup. (Timamynd ELLA) ■ Vatnsbalastökk. (Timamynd ELLA)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.