Tíminn - 25.06.1981, Síða 20

Tíminn - 25.06.1981, Síða 20
Mikið úrval Opid virka daga 9*19 • Laugar- daga 10-16 VARAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niöurrifs Sími (91) 7 -75-51, (91) 7-80-30. HEDD HF. Skemmuvegi 20 HEDD HF/ Kópavogi Kagnar Cunnarsson heldur hér á Guöbrandsbibliu og minni gerbinni af þeirri þýðingu bibliunnar, sem senn vfkurfyrir nýrri. A veggnum er mynd af Guðbrandi Þorlákssyni. (Timamynd GE) Gagnkvæmt tryggingafélag s-o \hvhim Fjórhjóladrifnar dráttarvélar 70 og 90 ha. Kynnið ykkur verð og kosti BELARUS Guöbjörn Guðjónsson heildverslun ■m : f NEWS STANP Sannkristnasta byggðarlag landsins? 1100 ÚIAFSVÍKINGAR í BIBLÍUFÉLAGINU ■ „i Bibliufélaginu eru nú um 2000 manns og svo vill til aö 1100 félaganna eru ólafsvikingar, en heita má að liver maöur á ólafs- vik sé meðlimur Bibliufélagsins, þetta eraö þakka konu þar vestra sem hefur verið óþreytandi að safna inn félagsgjöldunum, sem hún hefur að visu ekki hækkaö i all mörg ár.” Það er starfsmaður Hins islenska bibliufélags sem fræðir okkur á þessum óvæntu tölum og vissulega bendir þetta til aö þar vestra séu menn orðnir betur kristnir i seinni tið en Arni prest- ur Þórarinsson taldi Snæfellinga vera, þegar hann sat á Stóra Hrauni. Viö Timamenn erum staddir i Guðbrandsstofu i Hallgrlms- dropar kirkju og ræöum viö Ragnar Gunnarsson, starfsmann, sem hefur séð um skrifstofuna i þrjú ár. Hann er háskólamenntaður i sögu og kristnifræðum og segist una sér vel i nálægð þeirrar bókar sem er honum meira virði en all- ar aðrar, — bibliunnar. Það vant- ar heldur ekki að hér er nóglim bibliur. Auk nýju bibliunnar, sem er fyrir hendi hér i tveimur stærðum og allt að tuttugu mismunandi gerðum, sem allir þeir litir taldir til sem fá má bókina i, eru hér i hillum gamlar bibliur ýmsar, nema þær allra elstu, sem ekki er verjandi að hafa annars staðar en bak við luktar dyr. A veggnum er mynd af Guðbrandi biskupi Þorlákssyni, sem Halldór Péturs- son málaði á sinni tið, og ljós- prentun Guðbrandsbibliu vantar ekki i safnið, sem nærri má geta. Gunnar segir að þótt mest sé selt af hinni helgu bók i bókabúð- um sé all mikið um að fólk komi i Guðbrandsstofu að kaupa hana og er það einkum fyrir fermingár sem það gerist. Tölur um söluna benda samt til þess að viða leyn- ist heimili, sem enga bibliu eiga sér, og það kemur fyrir að fólk kaupir bibliur til þess að gefa til heimila sem enga eiga. Ekki verður sagt að það sé afskaplegt átak aö koma sér upp bibliu, þvi sú ódýrasta kostar aðeins 120 krónur. Dýrust er hins vegar biblia i stærra brotinu, „kirkju- biblian” svo nefnda, en hún er bundin i geitarskinn og kostar 320 krónur. Sálmabókina geta menn eignast fyrir 40 krónur, en i skinn- bandi kostar hún 120 krónur. Innan tiðar er von á nýrri þýð- ingu af bibliunni og ætti hún að koma til landsins i september. Hún er sett á lslandi en prentuð i Stuttgart og kemur bókin nú með vönduðum skýringum og kortum frá landinu helga og „heims- byggðinni,” eins og hún þá var. Ekki er gott að vita hvort salan verður mjög mikil, þvi orð hinnar helgu bókar tapar minna af gildi sinu milli alda en simaskráin á milli ára, og þvi getur gamla út- gáfan dugaö um hrið, ef vill. En vist fer vel á að hið heilaga orð sé svo nærri hinni upprunalegu staf- anna hljóðan og kostur er og sannarlega munu margir fagna er endurbætta þýðingin kemur. —AM Wim Fimmtudagur 25. júni 1981 Síðustu fréttir Hvalveiðar ganga vel þrátt fyrir þoku ■ Hvalveiðarnar hafa gengið ágætlega, það sem af er vertið- inni, en hiln hófst óvenju seint á þessu sumri. 1 gærkvöldi voru komnir á land einir fimmtiu og fjórir hvalir og tveir til við- bótar voru á leiðinni til lands. Uppistaðan i veið- inni er að sjálfsögðu langreyöur og hafa veiðst fimmtiu og fimm. Aðeins einn búrhvalur hefur veið- st. Tiðar þokur hafa hamlað hvalveiðum nokkuð, en þrátt fyrir þær hefur veiði verið ágæt, eins og fyrr sagði. Eigendur G- bíla tregir að mæta i skoðun. ■ Lögreglan i Hafnarfirði hefur nú grafið upp striðsöxina og hafið herferð gegn þeim sem aka á bif- reiðum sinum óskoð- uöum, þrátt fyrir að löngu sé komið að skoðun hjá þeim. 1 dag eru allir bilar með númer lægra en 8400 orðnir ólöglegir á göt- um Hafnarf jarðar, það er að segja, ef þeir eru óskoðaðir. Herferðin er farin núna, þar sem bif- reiðaeftirlitið i Hafnarfirði verður lokað i júlimánuði og þá verður eins gott fyrir ökumenn óskoð- aðra bifreiöa, með G- númer lægra en 9000, að verða ekki mikið á vegi lögreglunnar, þvi það gæti þýtt íerðalög með strætisvögnum um nokkurn tima. Faridi rétt með helv.... ykkar! ■ 1 „tsfirðingi” gat aö lita eftirfarandi klausu undir fyrirsögninni „Gróf söguleg fölsun”: „Ég undirritaður átel og mdtmæli harölega þvi dæmalausa bulli, sem fram kemur í „Dagskrá 17. júni hátiðarhaldanna” sem dreift var I hús á tsa- firöi 16. júnl s.l. Dagskrá- in er undirrituð af „Þjóðhátíðarnefnd,” sem ber því ábyrgð á henni. Þar stendur m.a.: „Guös- þjónusta i tilefni 100 ára kristnitöku á tslandi.” Hvaðan hefur nefhdiii fengiö þennan fróöleik sinn? Flestir, en greinilega ekki allir, tslendingar vita, að kristni var lög- tekin á alþingi áriö 1000. Eru þvf á þessu ári liöin 981 ár frá þeim merka at- burði, en ekki 100 ár. Hinsvegar er talið aö á þessu ári, 1981, séu liðin 1000 ár frá þvi kristniboö- un hófst hér á landi, svo aö árangur bæri, en það var með komu og trúboöi þeirra Þorvaldar hins viðförla Konráðssonar og Friðreks biskups af Sax- landi. Talið er að þeir hafi dvalið hér á landi við trú- boösitt á árunum 981-986. Kristni var svo lögtekin áriö 1000, eins og áður segir. En kristniboðun og kristnitaka er alveg sitt hvaö. Jón A. Jóhannsson.” Hvar vinnur Guðni? ■ Fjölmiðlum hefur gengið nokkuð illa m eð að fá hreinar linur I þaö hvort Guðni Þórðarson, fyrrverandi Sunnu-barón, sé kominn i vinnu hjá ls- cargo eða ekki. öll svör við spurningum um þetta cfni hafa verið I nokkrum véfréttastil. Nú ætlar Dropar sér ekki þá dul aö kveöa upp úr um þctta efni, en hitt er vist að það verður ekki Kristinn Finnbogason, scm verður sem nokkurs konar fararstjóri I fyrstu Amsterdam-ferðinni I dag, heldur einmitt Guðni. Krummi ... ... las það i Alþýðublaðinu i gær, að það væri gaman að lesa Timann. Ekki veitir þeim af, blessuðum krötunum að njóta þess að lesa önnur blöð, þvi enga ánægju hafa þeir af þvi aö lesa sitt eigið!

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.