Tíminn - 05.07.1981, Síða 7

Tíminn - 05.07.1981, Síða 7
Sunnudagur 5. júli 1981. Charles Bukowski: Notes of: a Dirty Old Man City Lights Books ■ Hann lætur sig ekki, gamli hrúðurkarlinn Bukowski, og hefur hér tekið á sig mynd gamla saurlifisseggsins sem sendir frá sér minnisblöð úr undirheimum. Þetta eru sög- ur, sögubútar — ofsafengnir, brjálæðislegir, organdi, sárs- aukafullir sögubútar. Það er ekki smáfriður heimur og þvi siður smáfritt fólk sem Bu- kowski er að lýsa en það má merkja undarlega viðkvæmni, eða alla vega samúð, höfund- arins með persónum sinum, sem væntanlega eru allar beinustu leið úr raunveruleik- anum. Sú fræga bók Bukowsk- is, Erections, Ejaculations, Exhibitions and General Tales og Ordinary Madness, var kynnt hér á siðunni fyrir nokkru siðan: það er sami lifs- krafturinn — þrátt fyrir allt — i þessari. ttw mm WHH BRiftk HMHtS 0 Tom Keene & Brian Haynes: Spy Ship Penguin 1981 ■ Muna menn eftir breska skuttogaranum Gaul sem hvarf árið 1974 i norðurhöfum — algerlega sporlaust þó hann væri fullkomnasti og talinn öruggasti togari Bretaveldis? Þetta hvarf vakti mikla at- hygli á sinum tima og allskon- ar getgátur voru settar fram. Nú hafa reyfarahöfundarnir Keene og Haynes leyst málið — á sina visu. Gaul, sem i bók- inni heitir Artic Pilgrim, var notaður til njósna fyrir Breta og Sovétmenn létu sér það illa lika. Spinnst af þessu mikil saga og spennandi. Nú er það rétt að sögusagnir gengu um að Gaul hefði verið njósnaskip en fyrst og fremst er þessi bók tilbúinn reyfari og góður sem slikur. Flest af þvi sem prýða má góðan reyfara er til staðar i þessari bók. Og alltaf krydd- ar sannleikskornið... Sir Basil Liddell Hart: History of the First World War Pan Books 1979 ■ Það er langt siðan þessi bók var fyrst gefin út — 1930 eða svo og hét þá The Real War, siðari heimsstyrjöldin ekki komin til sögunnar. Hún hefur verið talin klassisk i striðssagnaritun og hrapar vart úr þeim sessi úr þessu: hún ernákvæm, yfirgripsmikil og troðfull af fróðleik. Liddell Hart var sjálfur korpóráll i Stóra striðinu en sneri sér sið- an eingöngu að sagnaritun þess. Svo má deila um hvort sú áhersla sem hann leggur á hina herfræðilegu hlið striðs- ins, strategiuna, er kostur eða galli. Liddell Hart er her- maður i húð og hár og segir söguna út frá þvi sjónarhorni. Um það sem að baki viglin- unnar bjó segir litt eða ekki. En þá leitar maður bara að þvi annarsstaðar, Liddell Hart stendur fyrir sinu sem orr- ustusagnfræðingur. <lu flviny kofunan A (tkHJMfltlV f ally IHagnuuon f':portraytíd “CHARIOTSOF f IRE' <i Majof W»ti by 2CXh CerUury Sally Magnusson: The Flying Scotsman Quartet Books Ltd. 1981 ■ Þessi bók er eftir hana frænku okkar, Sallý Magnús- dóttur Magnússonar sem skrifaði hana á hálfum mán- uðiað þvi er blöðin i Englandi herma og var þá vist orðin ansi þreytt. Sallý er ekki langt yfir tvitugt en þegar orðin kunnur blaðamaður i öðru heimalandi sinu, Skotlandi. Nú, Skotinn fljúgandi var Eric nokkur Liddell og var hlaupa- garpur. Hann fór á Ólympiu- leikana 1924 fyrir Skota, átti þar að keppa i 100 metra hlaupi en neitaði — af trúar- legum ástæðum. Það átti að keppa á sunnudegi. Liddell sigraði þess i stað i 400 m hlaupi, fór svo til Kina sem trúboði og dó þar i fangabúð- um Japana. Viðburðarik ævi. Kvikmynd, Chariots of Fire, hefur verið gerð um ævi hans og bók Sallýar er bæði skemmtileg og fróðleg. En er það rétt að nú sé sá timi að við þurfum hetjur? Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bóka- verslun Máls og menningar. .. MlSSIf) EKKIAF MOGULEGUM VIMHIMGI 7. flokkur Endurnýjið tímanlega. Við drögum 10. júlí. 18 @ 10.000 180.000 90 — 5.000 450.000 1.548 — 1.000 1.548.000 7.659 — 500 3.829.500 9.315 6.007.500 36 — 2.500 90.000 9.351 6.097.500 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS VERTU MEÐTILVIMIÍIMC55 meðal efnis: y „íslendingar eru komnir af Norðmönnum í föðurætt og írum í móðurætt — viðtal við Dr. Grethe Jacobsen um uppruna islendinga og stöðu kvenna á söguöld. Dagstund í Feneyjum //Þaö veit enginn hvað hann getur, fyrr en hann reynir" — viðtal við Steinunni Jóhannes- dóttur um fyrsta leikrit hennar. „Ljúfir í skapi og öruggir í leit” Sporhundarnir í Hafnarfirði heimsóttir SUNNUDAGS BLADIÐ DJOÐVIUINN — vandað lesefni alla helgina argus

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.