Tíminn - 05.07.1981, Page 20

Tíminn - 05.07.1981, Page 20
20 Sunnudagur 5. júli 1981 ■ Tavoularis, sviösstjórinn, Coppola, leikstjóri og handritahöfundur, og Storaro, kvikmyndatökustjór- inn, i Pagsanjan á Filippseyjum. ■ Ruglaöur Ijósmyndari (Dennis Hopper) segir Willard frá kynn- um sinum af „stórmenningu” Kurtz þegar komiö er til bæki- stööva hans. ■ Þessi sá um snákana: hann haföi fullan poka af þeim ávallt til taks. nautgrip honum til heiðurs. — Coppola lét mynda veisluna og hann notaði slátrun þessa sem áhrifamikið táknrænt atriði i myndinni. Fyrst töluðu þeir viö nautgripinn i tvo daga, að sögn sjónvarvotta, og sögðu honum að vera ekki hræddur við dauðann. Þá drápu þeir fjögur svin og fórn- uðu kjiíkling. Kjötið var látið ganga á milli og étið, stundum hrátt.Þá tóku cfldungarnir i hópn- um fram langa hnifa og létu þá riða fjórum sinnum aftan á hnakka dyrsins. Á meðan heyrð- ist ekki stuna frá dýrinu, en það sást stórt tár i auga þess. Fjórða höggið drap nautið. I kvikmynd- inni drepur Willard svo Kurtz á sama hátt. Það segir nokkuð um ástand þeirra sem unnu við töku mynd- arinnar, að sumir telja, að ífúgaos-fólkið hafi með ró sinni dregið Ur þvi æði sem rann á suma við gerð lokaatriða mynd- arinnar í musteri Kurtz. Tavoularis, sem áður er nefndur, gaf frumstæðum tilfinningum sinum t.d. lausan tauminn þegar hann vann að þvi aö endurreisa musterið eftir fellibylinn. Hann hrUgaði upp hauskúpun og dreifði blóöi um allt til að lýsa þeim .jirylh'ngi”, sem Kurtz sér alt i einu svo skýrt áöur én hann deyr. Tavoularis fékk gömul bein hjá veitingamanni i Manila. Það var jafnvel bUiö að gera ráðstafanir til þess að fá raunveruleg manns- lik, en Coppola kveðst hafa stöðvað þá fyrira&tlan. En dýra- kjöt kom aö sama gagni. Brátt fylltist allt af rottum og starfs- menn kvörtuöu undan megnri fýlu af rotnandi kjöti. „fcg liföi þetta hús dauöans sem ég varaö búa til. fcg var svo langt leiddur, aö einhvern veginn virt- ist þaö eölilegt aö rjóöa blóöi á stiga og velta hausum niöur tröppur.” TAKA ■ Og þá er það Brando og loka- þáttur myndarinnar. Marlon Brando tók eina mihjón dala fyrir að vinna i fimm vikur við Apocalypse Now. Hann kom til Pagsanjan ásamt sjö aðstoðar- mönnum sinum, og var mun feit- ari en Coppola hafði gert ráö fyr- ir. Hann reyndist tæplega 145 kiló aö þyngd, sem auðvitaö gat ekki gengið fyrir bandáriskan offursta á vfgvellinum í Kambódíu. Coppola ákvað þvi að gera Kurtz nokkru hærri en Brando var i reynd og nota staðgengil fyriröll þau skot, þar sem Kurtz sést i fullri likamsstærð. Sá nefn- ist Péte Cooper, og var einn af ráðgjöfum Coppola i hertækni en hann hafði tekið þátt i Vietnam- striðinu. Brando lét krúnuraka sig og heimtaði fimm þumlunga skósóla til þess að hækka sig og fá „til- finningu” fyrir persónunni. En fyrsta daginn sem hann notaði þennan sérstæða útbúnað mis- steig hann sig! Það sem skipti þó öllu meira máli var að Coppola var ekki bú- inn að skrifa niðurlag kvik- myndahandritsins, þegar Brando mætti! „Ég reyndi að skrifa niðurlagið þarseni Kurtz missir vitiö, meira cn 100 sinnum” segir Coppola, „Ég fór aö sof a á hverri nóttu um klukkan fjögur og sagöi viö konu mina ef hún var hjá mér: ég get ekki skrifað þetta, ég get ekki skrifað þetta”. Svo fór að Coppola varð að stöðva myndatökuna i nokkra daga á meðan hann skrifaði enda- lokin. SU töf ein kostaði um 60 þúsund dali. Coppola notaöi timann til þess að ræöa um Conrad við gamlan kunningja og skólafélaga, Dennis Jakob, sem er ákafur Nietzsche- aðdáandi. Hann ræddi einnig um Vfetnam-striöið timunum saman við Brando. Og siöan skrifaöi hann og skrifaði, aftur og aftur. Niðurstaöan varö eins konar blanda, m.a. af Conrad og T.S. Eliot, en Kurtz vitnar m.a. til „The Waste*í myndinni. Reyndar segir Coppola, að setning Ur þeirri merku bók haf i ráðið miklu um, hvernig myndin endar, þvi ein setning hafi sifellt leitað á hann: „Ekki meö hvelli heldur meö snökti”. Ekki svo að skilja að kvalræði Coppola yfir lokum myndarinnar væri lokið þegar myndatakan var afstaðin. Þegar tekiö var til við að klippa þau um 1.1 milljón fet af filmu, sem tekin höfðu verið — en þaö mun átta sinnum meira en venja er við gerö leikinna kvik- mynda — vafðist mjög fyrir hon- um, hvarhann ætti að ljUka klipp- ingunni! Þegar Coppola sýndi loks kvik- myndina til prufu fyrir kvik- myndahUsaeigendur vestra i mai 1978 kom i ljós, að myndin endaði öðru vi'si i New York en i San Francisco! 1 einni Utgáfunni sést Willard drepa Kurtz og ganga siöan út á musteriströppurnar, þar sem honum verður allt i einu ljóst, að hann hefur tekið viö hlutverki Kurtz i hugum hinna frumstæðu fjallabúa: — konungurinn er lát- inn! — lengi lifi konungurinn! Myndin endaöi þannig meö Will- ard á tröppunum sem hinn nýja Kurtz. EnhinUtgáfan endaði ekki með Willard á tröppunum, heldur sést hann halda á brott eftir að hafa unnið verk sitt. Miklar deilur urðu um þessar mismunandi Utgáfur, og Coppola frestaði frumsýningu myndarinn- ar. Það var ekki fyrr en i águst 1979 að hUn var loks sýnd i banda- riskum kvikmyndahúsum. Margir munu hafa lagt fast að Coppola að enda myndina með „hvelli”. Hann lét þvi taka mynd- irafþvf, þegar bækistöðvar Kurtz voru sprengdar i loft upp i mikl- um loftárásum. Hann neitaði hins vegar að láta myndina enda á slikum ragnarökum, en sam- þykktiloks að nota sprengingarn- ar undir langan lista meö nöfnum þeirra, sem unnu að gerð mynd- arinnar, sem birtist aftan við myndina sjálfa. Þessi kafli tekur um fjóra og hálfa minutu. Copp- ola leggur hins vegar áherslu á, að þessar sprengingar séu ekki hluti af myndinni sem slikri, heldur aðeins „skreyting”. TAKA 7 ■ Og hvernig hafa svo viðtökurn- ar verið? Coppola varö að veöset ja eigur sinar til þess að geta gert Apocalypse Now. Sumir spáðu þvi að hiin yrði svo illa sótt, að hann færi á hausinn. Sá ótti reyndist ástæðulaus. Coppola sagði eitt sinn: „Þeg- ar um er aö ræöa kvikmvnd eins ogApocalypse þá eru biógestirnir einu gagnrýnendurnir sem skipta máli”. En hvað hafa aðrir gagn- rýnendur sagt? Viðbrögö þeirra hafa auðvitað veriö misjöfn. Apocalypse Now var sýnd á kvikmyndahátiðinni i Cannes 1979 sem „kvikmynd i vinnslu” og hlaut þar Gullpálm- ann sameiginlega með annarri mynd. Gagnrýnendur, sem sáu hana, þar, voru yfirleitt mjög hrifnir af þremur fjórðu hlutum myndarinnar — för Willards upp fljótið — en skoðanir voru mjög skiptar um lokakaflann. En jafn- vel þeir, sem eru óánægöir með þann hluta myndarinnar, eru ekki sammála um, hvers vegna: sum- ir kenna Brando þar um en aðrir Sheen. Og enn aðrir telja, að myndin hefði átt að enda með ragnarökum loftárasarinnar. En þótt skoðanir séu þannig skiptar á einstökum atriðum, þá eru allir sammála um, aö Apocalypse Now sé meiriháttar kvikm yndaatburöur. Elias Snæland Jónsson tók saman ■ Brando mætti til leiks um 145 kiló aö þynga. ■ Coppola ásamt Playboy-stúlku viö töku Apocalypse Now.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.