Tíminn - 05.07.1981, Qupperneq 27
Segul-
magnað
ur Kobbi
Jack Magnet:
Jack Magnet
Jakob Magnússon hefur nú um
nokkurra ára skeið verið búsettur
i Los Angeles i Bandarikjunum
ásamt eiginkonu sinni, Onnu
Björnsdóttur. Þeim hefur vegnað
mjög vel, hvoru á sinu sviði, Anna
sem ljósmyndafyrirsæta og kvik-
myndaleikkona og Jakob sem
tónlistarmaður. Jakob er samn-
ingsbundinn hjá Warner Brothers
hljómplötuútgáfunni i Bandarikj-
unum og kom plata hans Special
Treatmentút á vegum W.B. fyrir
tveimur árum. Undanfarna mán-
uði hefur Jakob unnið við aðra
plötu sina fyrir Warner Brothers
ásamt fjölda góðra hljóðfæraleik-
ara. Eins og oft vill verða þá hef-
ur vinnslan tekið lengri tima en
áætlað var i fyrstu, enda er mikið
undir þvi komið i Bandarikjunum
— sem er stærsti plötumarkaður
heims — að vel sé til allra hluta
vandað. Það hefur þvi ekkert ver-
ið til sparað að gera plötu Jakobs
eins góða og mögulegt er. Um það
vitnar meðal annars hinn mikli
fjöldi þekktra og virtra tónlistar-
manna sem við sögu koma. Nægir
i þvi sambandi að nefna tromm-
arann Jeff Porcaro úr Toto, saxa-
fónleikarann Tom Scott, bassa-
leikarann Stanley Clarke, tromp-
etleikarann Freddie Hubbard og
ásláttarleikarann Victor Feld-
man.
Jakob hefur nú tekið sér lista-
mannsnafnið Jack Magnet og
hefur hann nú að mestu söðlað
um, úr Jazzrokktónlist yfir i
vandaða popptónlist. Að visu eru
þrjú laganna á þessari plötu i
jazzrokk stil. Jakob syngur sjálf-
ur aðalröddina i sjö laganna og
Craig Marsden annast sönginn i
tveimur.
Textar plötunnar tengjast á
einn eða annan hátt náunga
nokkrum frá Islandi sem hefur
undraveröa hæfileika. Kappi
þessi kallast Jack Magnet og
hæfileikar hans eru m.a. i þvi
fólgnir að hann býr yfir segul-
krafti og dragast járnhlutir að
honum. Komu þessir hæfileikar
vel i ljós i sjónvarpsþætti sem
sýndur var með Jack Magnet hér
á landi fyrir skömmu, en einnig
má sjá hver áhrifin eru á ljós-
mynd af Jack sem er á framhlið
plötuhulstursins.
Plata Jack Magnets kemur út
hér á landi mun fyrr en i Banda-
rikjunum, þvi áætlaður útgáfu-
timi þar er ekki fyrr en næsta
haust. Islendingar eiga þvi kost á
að tileinka sér tónlist Jack Magn-
ets nokkrum mánuðum áöur en
hún kemur út á alþjóöamarkaði.
Jakob er höfundur alls efnis en
einnig hafa ýmsir aðrir lagt hönd
á plóginn við tónsmiðarnar. Þar á
meðal eru gömlu Stuömannafé-
lagarnir Sigurður Bjóla og Val-
geir Guðjónsson. Gunnar Þórðar-
son kemur nokkuð við sögu en
hann leikur á gitar i tveimur lög-
um. Upptökustjórn og útsetning-
ar voru i höndum Jakobs og Pat-
rick Henderson. Upptökumenn
voru Jónas R. Jónsson og Charles
W. Creath.
Steinar h.f. gefa plötuna Jack
Magnet út á Islandi.
11 í'l
í 1
l\
1
1 ”x":" k
Frá landi
kengúrunnar • • •
Split Enz : Waiata
Ekki siðan AC/DC stigu niöur
úr trjánum i Ástraliu og sigruðu
heiminn hefur jafnmikið verið
talað um ástralska hljómsveit
eins og Split Enz. Hún er ein af
þessum framtiðarhljómsveitum
sem kemur á óvart fyrir það aö
spila áheyrilega og melódiska
tónlist. Fyrsta plata þeirra ,,True
Colours” var að mörgu leyti
merkileg. Ekki þaö að hún væri
fyrsta platan i heiminum unnin
með „laser” heldur aö hér skaúst
áður óþekkt hljómsveit upp á
stjörnuhimininn og seldi plötu
sina i stórum upplögum og það
merkilega er að hún gerir það
enn. Platan er i háum metorðum
hjá „futurista” hreyfingunni i
Bretlandi. Nýja plata þeirra
„Waiata” (sem ku merkja flaut-
andi, syngjandi, dansandi á Ný-
sjálensku) er áheyrileg plata og
tónlist þeirra er ekkert verri eöa
betri en hvað annað sem gert er,
en þó athyglisverð. Hvað sem
sagt hefur veriö um þær hljóm-
sveitir sem hafa komið frá Ástra-
liu á undanförnum árum þá er
Enz sér á báti og vel þess viröi að
hlusta á.
—M.G.
Elvis og félagar
•••eða öfugt
SQUEEZE : East Side Story
Fjórða plata „Sqeeze” geröi
loksins eitthvaö fyrir hljómsveit-
ina. Menn greinirá um þaö hvort
þaö var vegna þess aö Elvis Cost-
ello vann með að plötunni eða
hvort tónlist þeirra haföitekið svo
stórstigum framförum. Hvað um
það þá áttu þeir töluverðri vel-
gengni að fagna með lag sitt „Is
That Love” af plötunni. Fram að
þeim tima að Elvis Costello
stjórnaði upptökum á siöustu
plötu þeirra (og það aðeins i
nokkrum lögum) voru þeir aöeins
ein af milljón hljómsveitum i
Bretlandi að reyna aö vekja á sér
athygli og „maike it big”. Það er
þvf kaldhæönislegt að það þurfi
að vera sú staðreynd að þekktur
tónlistarmaður tekur þá upp á
arma si'na sem vekur athygli á
þeim. Hins vegar kann það aö
vera svo aö einmitt það að Elvis
skyldi hafa ákveðið að hjálpa
þeim sé sönnun fyrir ágæti
þeirra. En nú er ég farinn að fara
i hringi.
Squeeze er ung hljómsveit.
Fyrsta plata þeirra kom út 1977
og hét einfaldlega „Squeeze”.
Siöan hafa þeirsentfrá sér „Cool
for Cats” „Argy Bargy” og nú
„East Side Story”.
Squeeze” eru fimm hressir ná-
ungar, breskir fram i fingur
góma og heita: Chris Difford,
gi'tar, söngur, Glenn Tilbrook,
gitar, söngur, Gilson Lavis,
trommur, John Bentley, bassi og
Paul Carrack, hljómborð og
söngur. Tónlist þeirra er eld-
fjörug, hreint og beint pop. Lögin
eru öll hröð og grípandi, öll fjór-
tán af þeim. Þó svo maður hafi
það á tilfinningunni að hafa heyrt
þetta áður þá er það állt i lagi.
Þaö er fersúeiki yfir hljómsveit-
inni og Difford/Tilbrook skila frá
sérskemmtilegum lögum ogtext-
um.
—M.G.
27
LÓÐAÚTHLUTUN
Auglýst er eftir umsóknum um Ióðir við
Brekkutún og Daltún i Ástúnshverfi i
Kópavogi.
Úthlutað verður til einstaklinga 27 lóðum
undir einbýlishús og lóðum undir 28 ibúðir
i parhúsum.
Sýning verður á skipulagi hverfisins og
húsagerðum á skrifstofu bæjarverkfræð-
ings i Félagsheimilinu, Fannborg 2. Opið
er virka daga kl. 14-19 frá þriðjudegi 7. júli
til 17. júli n.k.
Umsóknareyðublöð verða afhent á sama
stað og þar verður einnig til sölu kynning-
arbæklingur með skilmálum og teikning-1
um.
Umsóknum skal skila á fyrrnefndu eyðu-
blaði i siðasta lagi 21. júli n.k. á bæjar-
skrifstofum Kópavogs.
Endurnýja þarf allar eldri lóðaumsóknir.
Bæjarverkfræðingur.
Húsaval, fasteignasala
Flókagötu 1.
Sími 24647.
Jarðir
Til sölu jörðin Grænumýrartunga i Hrúta-
firði.
Góð fjárjörð i Vestur-Húnavatnssýslu.
Sjávarjörð á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Sjávarjörð skammt frá Akranesi.
Jörð i Flóanum 380 hektarar, öll grasivax-
in, hentar vel fyrir hestamenn.
Eyðibýli á fögrum stað i Rangárvalla-
sýslu.
Sjávarjörð á Suðurnesjum.
Jörð - Æðarvarp
Hef kaupanda að jörð með æðarvarpi eða
aðstöðu til að koma upp æðarvarpi, má
vera eyðibýli.
Helgi ólafsson, löggiltur fasteignasali
kvöldsimi 21155
U msóknarf restur
Ráðuneytið vekur athygli á að umsóknar-
frestur til sildveiöa i hringnót, reknet og
lagnet rennur út 10. júli n.k. Umsóknir,
sem berast eftir þann tima, verða ekki
teknar til greina.
Sjávarútvegsráðuneytið,
2. júli 1981.
Kennarar
Eftirtaldar stöður við grunnskóla Akur-
eyrar eru lausar til umsóknar:
2 stöður alm. kennara (við Barnaskóla
Akureyrar og Oddeyrarskóla)
1-11/2 staða tónmenntakennara (við
Glerárskóla og Lundarskóla)
11/2 staða kennara i dönsku, liffræði og
eðlisfræði (við Glerárskóla)
1/2 staða sérkennara (við Glerárskóla)
1 staða kennara i raungreinum (við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar — framhaldsdeild-
ir).
Upplýsingar veita skólastjórarnir.
Umsóknir berist fyrir 20. júli n.k.
Skólanefnd Akureyrar.