Fréttablaðið - 03.02.2008, Blaðsíða 57
ATVINNA
SUNNUDAGUR 3. febrúar 2008 2115
Atafl er eitt af stærri verktakafyrirtækjum
landsins með verkefni víða um land.
Starfsmenn fyrirtækisins eru á þriðja hundrað.
Aðalskrifstofa fyrirtækisins er staðsett í Garðabæ.
Verkfræðingar
Tæknifræðingar
Viljum ráða verk- eða tæknifræðinga til starfa á
tækni- og framkvæmdasviði.
Störfin felast m.a. í tilboðs- og áætlanagerð,
hönnunarrýni, samningagerð og uppgjörsmál.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Byggingarverk- eða tæknifræðimenntun
Reynsla af verklegum framkvæmdum
Reynsla af störfum á verkfræðistofu æskileg.
Umsóknarfrestur er til 10.02.2008
Umsóknum er hægt að skila á heimasíðu Atafls,
senda til skrifstofu félagsins Lyngási 11,
210 Garðabæ eða á netfang starfsmannstjóra.
Frekari upplýsingar veitir María Þorgrímsdóttir
starfsmannastjóri maria@atafl.is sími 420 6400
FR
U
M
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Leikskólaráðgjafi
• Laust er starf ráðgjafa við leikskólaskrif-
stofu Kópavogs. Um er að ræða tíma-
bundið starf, sem í meginatriðum felst í
almennri ráðgjöf við leikskóla í Kópavogi.
Leikskólakennaramenntun er áskilin og fram-
haldsmenntun æskileg. Viðkomandi þarf að
hafa víðtæka reynslu af leikskólastarfi, góða
samskiptahæfni og geta unnið skipulega.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Sesselja Hauksdóttir, leik-
skólafulltrúi (sesselja@kopavogur.is) og Gerður
Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi (gerdur@kopa-
vogur.is) í síma: 570 1600.
Umsóknum skal skilað í gegnum Job.is eða á sér-
stökum eyðublöðum sem fást á Bæjarskrifstofum
Kópavogs.
Laun skv. kjarasamningi Félags leikskólakennara
og Launanefndar sveitarfélaga.
Konur jafnt og karlar eru
hvött til að sækja
um starfið.
Verkfræðingar / Tæknifræðingar
Verkfræðistofan Fjarhitun, Suðurlandsbraut 4,
Reykjavík, óskar eftir að ráða starfsmenn í eftirtalin
störf:
Byggingaverkfræðing eða tæknifræðing til eftirlits
með framkvæmdum. Reynsla æskileg.
Byggingaverkfræðing eða tæknifræðing í verkefna-
stjórnun. Reynsla nauðsynleg.
Verkfræðing eða tæknifræðing í lagnahönnun,
reynsla æskileg.
Byggingarverkfræðing eða tæknifræðing í
burðarþolshönnun, reynsla æskileg.
Umsóknir skal senda til Fjarhitunar hf. Suðurlands-
braut 4, 108 Reykjavík eða á netfangið
sigthor@fjarhitun.is , fyrir10. febrúar n.k.
Upplýsingar veita Sigþór Jóhannesson, framkvæm-
dastjóri í síma 578 4529 og Oddur Björnsson,
yfi rverkfræðingur í síma 578 4501.
Verkfræðistofan Fjarhitun var stofnuð árið 1962 og
eru starfsmenn um 60. Fyrirtækið hefur frá upphafi
gengt stóru hlutverki við nýtingu jarðvarma og
hefur hannað fl estar stærri hitaveitur á Íslandi og
átt stóran hlut í hönnun jarðvarmavirkjana.
Fyrirtækið vinnur nú að mörgum áhugaverðum
verkefnum bæði við hönnun og framkvæmda-
eftirlit.
G
O
T
T
F
O
L
K
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
ÚTBOÐ