Fréttablaðið - 18.02.2008, Side 23

Fréttablaðið - 18.02.2008, Side 23
fasteignir 18. FEBRÚAR 2008 Fasteignasalan Húsið hefur til sölu 290 fm endaraðhús á þremur hæðum við Helgubraut í Kópavogi. Möguleg skipti á minni eign. Tvær íbúðir eru í húsinu og góðar leigutekjur af íbúð í kjallara en eignin getur líka hentað tveimur fjölskyldum. Íbúðin á jarðhæð og efri hæð er 163,5 fm, 5 herbergja með sérinngangi, ásamt innbyggðum 23 fm bílskúr. Samtals 186,5 fm. Íbúðin í kjallaranum er ca 103 fm, 3-4 herbergja með sérinngangi baka til og niðurgrafin að hluta. Jarðhæðin skiptist í forstofu með góðum skáp, eldhús sem er nýstandsett með hvítri háglans innréttingu. Inn af eldhúsi er búr og frammi á gangi er gestasnyrting, setustofa, borðstofa og sjónvarpsstofa með parketi. Gólf er nýflísalagt á stórum hluta íbúðarinnar. Flísalagður stigi liggur upp á efri hæðina og þar eru fjögur stór svefnherbergi með parketi og dúk á gólf- um. Veggfastir stórir skápar. Úr tveimur herbergjum er útgengt út á stórar suðursvalir. Baðherbergið er með flísum á vegg og á gólfi, baðkar og sturta og góð innrétting. Íbúðin í kjallaranum er í dag í útleigu og skiptist í forstofu og þrjú stór herbergi, eitt þeirra gluggalaust, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Bílskúrinn er upphitaður og þar er tengi fyrir þvotta- vél og þurrkara. Bílaplan í suður með hitalögn. Bak við húsið er garður með leiktækjum og sparkvelli og góðar gönguleiðir eru allt í kring. Gott að búa í Kópavogi Tvær íbúðir eru í húsinu og hægt að fá góðar leigutekjur af íbúðinni í kjallaranum. VEXTIR FRÁ AÐEINS Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 10.1.2008. 4,7% Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa eða endurfjármögnunar á atvinnuhúsnæði. Lánstími er allt að 30 árum og við kappkostum að veita framúrskarandi þjónustu á hagstæðari kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í 540 5000 eða sendu póst á frjalsi@frjalsi.is til að kynna þér málið nánar. Finndu þér stað Atvinnuhúsnæðislán með lægri lántökukostnaði F í t o n / S Í A Víkurhvarf 7, 110 Reykjavík Verð frá 27.300.000 kr. STÓRGLÆSILEGT VERSLUNAR- OG SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á FRÁBÆRUM STAÐ ! 699 6165 899 0800 8200 301 661 7788 892 2982661 6056 Eir 660 6085 895 8518 Verðmetum frítt fyrir þig! Hringdu núna 699 6165

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.