Fréttablaðið - 18.02.2008, Qupperneq 41
MÁNUDAGUR 18. febrúar 2008 17
Kannanir sem gerðar hafa verið
meðal ferðamanna sem sækja
Ísland heim sýna að almennt eru
ferðamenn ánægðir með heim-
sókn sína til Íslands.
Þó kvarta margir undan því að
þjónustu sé ábótavant.
Á morgun, þann 19. febrúar
næstkomandi, halda því Samtök
ferðaþjónustunnar ráðstefnu sem
nefnist „Dagur menntunar í ferða-
þjónustu“ en þar mun athyglin
beinast að mikilvægi símenntun-
ar og fræðslu starfsfólks í ferða-
mannaiðnaðinum á Íslandi
Til ráðstefnunnar hefur verið
boðið tveimur góðum gestum frá
skosku hálöndunum, þeim Dr.
Craig Thompson og Wendy Syl-
vester sem fjalla munu um góðan
árangur starfsmenntunar í ferða-
þjónustufyrirtækjum í heimalandi
sínu.
Fundurinn hefst með ávarpi
Þorgerðar Katrínar Gunnars dóttur
menntamálaráðherra. Síðan verð-
ur nýtt grunnnám í ferðaþjónustu
kynnt og fjallað verður um með
hvaða hætti er best að standa að
starfsþjálfun erlends starfsfólks í
greininni hérlendis.
Í lok ráðstefnunnar verður
síðan Starfsmenntaviðurkenning
Samtaka ferðaþjónustunn-
ar, SAF, afhent í fyrsta sinn því
fyrirtæki sem þykir skara fram
úr í greininni. Össur Skarphéðins-
son iðnaðar ráðherra mun afhenda
viður kenninguna. Menntamála-
ráðuneytið og starfsmenntasjóð-
irnir Starfsafl, Landsmennt og
VR styrkja ráðstefnuna og munu
starfsmenntasjóðirnir jafnframt
kynna starfsemi sína í kaffihléi.
Nánari upplýsingar um verð-
launin og dagskrá ráðstefnunnar
er að finna á www.saf.is.
Fyrsta viðurkenning frá SAF
ÁNÆGÐIR Ferðamenn sem sækja landið
heim er almennt ánægðir með heim-
sókn sína samkvæmt könnunum.
Barna og unglingageðdeild
Landspítalans, BUGL, fékk
afhentar tvær milljónir króna frá
Samgönguráðuneytinu. Kristján
Möller samgönguráðherra afhenti
þetta framlag.
Kaupa skal íbúð í nágrenni
deildarinnar sem verður nýtt fyrir
foreldra barna í dreifbýli. Þeir
foreldrar sem þurfa að fylgja börn-
um sínum til innlagnar á BUGL, og
búa ekki á höfuðborgarsvæðinu,
geta nýtt íbúðina og þannig verið
nálægt meðferðarstaðnum.
BUGL fær 2
milljónir
FRÁ AFHENDINGU STYRKSINS Frá
vinstri: Sigríður Kristinsdóttir, Unnur
Heba Steingrímsdóttir, Guðrún Bryndís
Guðmundsdóttir, Kristján Möller, Björg
Guðmundsdóttir, Róbert Marshall og
Magnús Pétursson.
Aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru:
Fjármálaráðuneytið
Arnarhvoli við Lindargötu • 150 Reykjavík
sími 545 9200 • bréfasími 562 8280 • postur@fjr.stjr.is
Sölufyrirkomulag:
Nýr flokkur
óverðtryggðra
ríkisbréfa til
ellefu ára
Ný leið
til ávöxtunar
Ríkissjóður gefur út nýjan flokk ríkisbréfa til ellefu ára.
Ríkisbréfin eru óverðtryggð og bera ársvexti sem
greiðast eftir á, 26. febrúar ár hvert. Árlegir nafnvextir
ákvarðast í kjölfar fyrsta útboðs. Auðkenni flokksins er
RIKB 19 0226. Flokkurinn verður skráður í kerfi OMX
Nordic Exchange Iceland og verður viðskiptavakt í
höndum aðalmiðlara ríkisverðbréfa sem mun tryggja
seljanleika á eftirmarkaði.
Fyrsta útboð RIKB 19 0226 verður haldið 21. febrúar
klukkan 14.00. Til að taka þátt í útboðinu þarf að hafa
samband við einhvern af eftirtöldum aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa en þeir hafa einir heimild til að leggja
fram tilboð fyrir hönd fjárfesta.
Glitnir
Icebank
Kaupþing banki
Landsbanki Íslands
MP Fjárfestingarbanki
Saga Capital Fjárfestingarbanki
Straumur Fjárfestingarbanki
Grínflokkurinn Fóstbræður kom
saman á ný í síðustu viku í fyrsta
sinn í nær áratug. Tilgangurinn
er að afhenda Umhyggju veglega
gjöf sem er félag sem vinnur að
bættum hag langveikra barna og
fjölskyldna þeirra.
Ágóðinn af sölu allra fimm
Fóstbræðra-þáttaraðanna á mynd-
diskum kom út fyrir síðustu jól og
seldist vel. Söluágóðinn var því ríf-
legur, um 3.378.720.kr. og ákváðu
Fóstbræður af sinni alkunnu góð-
vild, í samvinnu við Senu og Stöð
2, að láta hann renna óskiptan til
Umhyggju. Fóstbræður afhentu
síðan þessa rausnarlegu gjöf
formlega á Hilton Nordica síðast-
liðinn fimmtudag.
Fóstbræður
saman á ný
FÓSTBRÆÐUR LÁTA GOTT AF SÉR LEIÐA
Jón Gnarr, Benedikt Erlingsson, Sigurjón
Kjartansson og Hilmir Snær Guðnason
komu saman í fyrsta sinn í nær áratug til
að afhenda umhyggjugjöfina.