Fréttablaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 4
4 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Bassel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Á MORGUN Hæg NV átt um allt land. MÁNUDAGUR Norðaustlæg átt víða um land -2 -3 -1 -1 -1 -2 -4 -3 0 -7 14 -2 -2 -1 -2 -2 0 -1 -1 -2 -3 1 11 11 7 12 10 4 4 2 6 11 FROST VÍÐA Hitastigið á landinu verður nokkuð svipað og verið hefur næstu dag- ana, en úrkoman kemur og fer. Í dag þykknar upp sunn- an og vestanlands, og éljagangur verð- ur víða um land á morgun. Elín Björk Jónsdóttir Veður- fræðingur 7° 7° 6° 7° 6° 11° 15° 13° 12° 10° 17° 18° 10° 11° 22° 3° 29° 15° GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 130,2087 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 66,76 67,08 131,22 131,86 98,99 99,55 13,277 13,355 12,544 12,618 10,636 10,698 0,6232 0,6268 106,05 106,69 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Í blaðinu í gær var ranglega sagt að Jórunn Ósk Frímannsdóttir borgar- fulltrúi hefði verið gestur í kveðjuhófi Björns Inga Hrafnssonar sem haldið var í Höfða. LEIÐRÉTTING STJÓRNMÁL „Þetta er í raun engin niðurstaða og það er sérkennilegt að ákvörðuninni skuli enn slegið á frest. Ljóst er að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins treysta Vilhjálmi ekki fyrir borgarstjórastólnum og það er sorglegt að ekkert þeirra skuli hafa styrk til þess að stíga fram og segja hingað og ekki lengra,“ segir Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, um yfirlýsingar sjálfstæðis- manna frá því í gær. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsókn- arflokksins, tekur í sama streng og segir að meirihlutasamstarfið hangi á bláþræði. „Ákvörðun Vilhjálms um að sitja áfram sem oddviti stjórnast af tvennu. Annars vegar er engin sátt innan flokksins um það hver eigi að vera eftirmaður hans og hins vegar er Vilhjálmur tengingin við Ólaf F. Magnússon,“ segir Óskar. Hann segir að óvissan og þófið innan Sjálfstæðisflokksins hafi nú þegar slæm áhrif á starfið í borginni. Undir það tekur Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. „Þetta er óboðlegt og það blasir við almenningi í Reykjavík að það er algjör glundroði í hópnum.“ „Fyrir örfáum dögum kom engum annað í hug en að Hanna Birna myndi taka sæti oddvita. Það að sú niðurstaða sé ekki innsigluð í þessari yfirlýsingu segir okkur það að Hanna Birna Kristjánsdóttir er ógn við einhver öfl í Sjálfstæðisflokknum sem virðast hafa hag af því að setja hana niður,“ segir Svandís. - þo Borgarfulltrúar minnihlutans segja framgöngu sjálfstæðismanna óboðlega: Samstaða sjálfstæðismanna er engin ÓSKAR BERGSSON SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR DAGUR B. EGGERTSSON Óku undir áhrifum fíkniefna Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði aðfaranótt sunnudags tvo karlmenn sem óku undir áhrifum fíkniefna. Sá fyrri var tekinn um eittleytið og hinn undir morgun. Mennirnir voru báðir færðir á lögreglustöð þar sem tekið var blóðsýni. LÖGREGLUFRÉTTIR STJÓRNMÁL „Þessi ákvörðun borgarstjórnarflokks Sjálfstæð- isflokksins breytir engu fyrir meirihlutasam- starfið í borg- inni,“ segir Ólafur F. Magnússon borgarstjóri. „Samstarfið byggir á traust- um málefna- grunni sem lagt var upp með þegar í upphafi, og um hann var full samstaða.“ „Ég tel mig hafa vissu fyrir því að allir borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, hver sem leiðir þeirra hóp, standi þétt að baki þessu samstarfi og þeim málefnasamn- ingi sem lagt var upp með, eins og ég geri auðvitað líka sjálfur,“ segir Ólafur. Hann segir að erfitt hafi verið að starfa í þeim óróleika sem ríkt hafi frá því meirihlutinn tók við, en það stafi ekki síður af sífelldum upphlaupum pólitískra andstæðinga meirihlutans og þeirra sem vilji koma höggi á hann. - bj Ólafur F. Magnússon: Breytir engu fyrir samstarfið ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. STJÓRNMÁL Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson verður ekki borgar- stjóri í mars 2009 eins og samið var um við F-lista. Þetta fullyrða heimildarmenn úr innsta kjarna flokksins. Vilhjálmur tilkynnti að loknum fundi með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokks og formanni flokksins í gærmorgun að opið sé hver taki við embætti borgar- stjóra af hálfu Sjálfstæðisflokks. Áður hafði verið samið um að hann tæki við embættinu. Vilhjálmur mun þó sitja áfram sem oddviti borgarstjórnar- flokksins og mun áfram gegna embætti formanns borgarráðs. Aðrir aðal- og varaborgarfulltrú- ar flokksins lýstu í gær yfir óskoruðum stuðningi við Vilhjálm sem oddvita. Heimildarmenn sem vel þekkja til málefna borgarstjórnarflokks- ins segja almennan skilning á því meðal borgarfulltrúa að með þessu sé Vilhjálmur að taka sitt fyrsta skref út úr pólitík, en lengra hafi hann ekki viljað ganga nú. Eins og staðan er í dag er talið útilokað að Vilhjálmur verði borg- arstjóri á ný. Hann hefur þegar tilkynnt að hann muni ekki sækj- ast eftir sæti á lista borgarstjórn- arflokksins í næstu kosningum. Á laugardag var Vilhjálmur á því að taka sjálfur við embætti borgarstjóra. Heimildir herma að eftir samtal við Geir H. Haarde, formann flokksins, á laugardags- kvöld hafi hann sannfærst um þá leið sem farin var. Mikil sátt virðist innan flokks- ins með að Vilhjálmur hafi tekið þetta skref sem opnar um leið fyrir umræðu um það hver taki við embætti borgarstjóra. Ekki var talið heppilegt að velja borgarstjóraefnið strax, þar sem það hefði leitt til árekstra milli borgarstjóraefnisins og Vil- hjálms. Þá hefðu í raun verið tveir leiðtogar í borgarstjórnar- flokknum. Á fundinum í gærmorgun kom fram skýr vilji borgarstjórnar- flokksins um að borgarstjóri komi úr þeirra röðum þegar Sjálfstæð- isflokkur tekur við embættinu í mars 2009. Enginn þeirra sem rætt var við taldi það góðan kost að sækja borgarstjóra út fyrir þeirra hóp. „Í mínum huga liggur það beint við að það verði einstaklingur innan hópsins,” segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks. Orð hans endur- spegla það sem aðrir borgarfull- trúar höfðu um málið að segja. Hvorki náðist í Geir H. Haarde né Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson við vinnslu fréttarinnar í gær. brjann@frettabladid.is thorgunnur@frettabladid.is Vilhjálmur verður ekki borgarstjóri Sjálfstæðismenn hafa ekki ákveðið hver verður borgarstjóri að ári. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir allt opið í þeim efnum. Fullyrt er að hann verði ekki borg- arstjóri aftur. Borgarfulltrúar vilja að nýr borgarstjóri komi úr þeirra röðum. MEIRIHLUTI Þegar nýr borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista var mynd- aður 21. janúar síðastliðinn var tilkynnt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson yrði borgarstjóri í mars 2009. Nú segir Vilhjálmur allt opið um það hver verði borgarstjóri þegar embættið kemur í hlut sjálfstæðismanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Við höfum áður sagt að við mynd- um virða og styðja þá niðurstöðu sem Vilhjálmur kæmist að. Nú liggur sú niðurstaða fyrir og við munum vinna á grundvelli hennar,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Spurð hvenær hún vilji að ákvörðun verði tekin um það hver verði borgarstjóri í mars 2009 segir hún: „Mér finnst að borgarstjórnarflokkurinn eigi að reyna að ná sameiginlegri niður- stöðu í það mál og það eigi ekki að taka of langan tíma.“ Hún vill þó ekki tímasetja það nákvæmar. ENGIN TÍMAMÖRK „Við styðjum þessa ákvörðun, og þessa yfirlýs- ingu Vilhjálms,“ segir Gísli Mart- einn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. „Við styðjum Vil- hjálm sem oddvita, og tökum það hlutverk að okkur að leysa úr því okkar á milli hver taki við embætti borgarstjóra eftir rúmt ár.“ Gísli segir engin tímamörk sett á það hvenær borgarstjóraefnið verði ákveðið. FRESTA EKKI VANDA „Málin voru rædd í mikilli hreinskilni og svo komust menn að niður- stöðu sem var studd einróma,“ segir Kjartan Magnússon, borg- arfulltrúi Sjálfstæð- isflokks. Hann segist ekki telja að með þessari niðurstöðu sé verið að fresta vandanum, sjaldnast séu borgarstjórakandídatar valdir með meira en árs fyrirvara. Hann segir það ekki hafa verið rætt í dag hve- nær borgarstjóraefnið verði valið, flokkurinn hafi rúmt ár til stefnu. ÁKVÖRÐUN FLJÓTT GENGIÐ 22.02.2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.