Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2008, Qupperneq 47

Fréttablaðið - 25.02.2008, Qupperneq 47
MÁNUDAGUR 25. febrúar 2008 23 Sýnishorn úr kvikmyndinni Sex and the City sem er byggð á samnefndum sjónvarpsþátt- um er komið á netið í fullri lengd. Í því sést til Carrie (Sarah Jessica Parker) sem er í þann mund að giftast Mr. Big. Einnig kemur þar í ljós að Char- lotte verður ófrísk auk þess sem Miranda á í vandræðum með hjónabandið. Miðað við sýn- ishornið virðist því sem drama tíkin verði í forgrunni í myndinni á kostn- að grínsins og kynlífsins sem var ráð- andi í sjónvarpsþáttunum. Óskarsverð- launaleikkonan Hilary Swank, sem sló í gegn í Boys Don´t Cry, var fyrir skömmu heiðruð fyrir góð- gerðastarf sitt í þágu krabbameinssjúkra. Á meðal þeirra sem voru viðstaddir athöfnina, sem fór fram í Los Angeles, voru stjörnurnar Tom Hanks, Steven Spielberg og Christ- ian Slater. Málverk sem vinur leikarans Heaths Ledger málaði af honum er eitt af 249 verkum sem keppa um virt áströlsk myndlistarverðlaun. Ledger, sem var jarð- settur á dögunum, er ber að ofan á myndinni og lagði vinur hans, Vincent Fantauzzo, mikið á sig til að fullvinna hana. Verðlaunin, sem kallast Archibald Prize, verða afhent 7. mars. Breska hljómsveitin Coldplay er að leggja lokahönd á sína fjórðu hljóðversplötu. Kemur hún út í sumar á vegum útgáfufyrirtækisins Capitol. Í framhaldinu ætlar sveitin í tónleikaferð um Norður-Ameríku og Evrópu. Upptökur á plötunni hófust í nóvember árið 2006 í London. Í mars á síðasta ári tók sveitin pásu til að fara í sína fyrstu tónleikaferð um Suður-Ameríku. Upptöku- stjórar voru Brian Eno og Markus Dravs auk hljómsveit- ar meðlima. FRÉTTIR AF FÓLKI Sóknarprestur, lögregluþjónn, barnakennari og skjalavörður skipa Mæðusveitina Sigurbjörn sem spilar á blúshátíðinni Norðurljósablús sem verður haldin á Hornafirði 28. febrúar til 2. mars. „Hljómsveitin var stofnuð upp úr fyrstu blúshátíð- inni árið 2006,“ segir sóknarpresturinn og trommar- inn, Sigurður Kr. Sigurðsson. „Við höfðum allir verið að spila áður bæði með mismunandi hljómsveitum og saman. Við spiluðum á blúshátíðinni í fyrra og það gekk bara mjög vel.“ Sigurður viðurkennir að það sé ekki auðvelt að skipuleggja æfingar með þessum óvenjulega mannskap. „Það getur verið dálítið snúið en okkur hefur tekist nokkuð vel að ná þessu saman og þykjumst bara vera orðnir býsna góðir. Við reynum að æfa tvisvar í viku og þurfum að fara að kýla á þetta núna.“ Að sögn Sigurðar finnst Hornfirðingum ekkert undarlegt að þeir fjórmenningar séu saman í hljómsveit. „Ég held að fólk hafi bara gaman að því. Fólk þekkir okkur alla fjóra af öðrum sviðum tónlistarlífsins líka. Ég er búinn að vera að spila frá því ég var strákhvolpur í Reykjavík í bílskúrsbönd- um og ég og bassaleikarinn (Sigurður Örn Hannes- son, skjalavörður) vorum líka í danshljómsveit,“ segir Sigurður sem er einnig meðlimur í Lúðrasveit Hornafjarðar. Mæðusveitin Sigurbjörn stígur á svið föstudags- kvöldið 29. febrúar á Hótel Höfn og má búast við því að áflog og aðrar uppákomur í salnum verði í algjöru lágmarki á meðan fjórmenningarnir mikilsvirtu spila blúsinn. - fb Prestur og lögga spila blús MÆÐUSVEITIN SIGURBJÖRN Frá vinstri: Sigurður Guðnason (lögga), Sigurður Örn Hannesson, Sigurður Kr. Sigurðsson, og Björn Sigfinnsson (kennari) skipa Mæðusveitina Sigurbjörn. Leikarinn Leonardo DiCaprio verður framleiðandi leikinnar Hollywood- útgáfu af japönsku teiknimyndinni Akira. Fyrirtæki DiCaprio, Appian Way, ætlar að búa til tvær Akira-myndir og er sú fyrri væntanleg sumarið 2009. Upphaflega Akira-myndin kom út í Japan árið 1988. Var hún byggð á manga-teiknimyndasögum sem leikstjóri myndarinnar, Katsuhiro Otomo, samdi. Myndin varð gríðarvin- sæl og er þegar orðin sígild þar í landi. Fjallar hún um hinn unga Tetsuo frá Tókýó sem flækist inn í dularfullt verkefni ríkisins sem nefnist Akira. DiCaprio, sem ætlar ekki að leika í myndinni, hefur lengi reynt að koma henni á koppinn í Bandaríkjunum. Hann öðlaðist kvikmyndaréttinn fyrir mörgum árum og átti síðan í vandræð- um með að finna framleiðendur. Framleiðir Akira LEONARDO DICAPRIO DiCaprio ætlar að framleiða Hollywood- útgáfu af japönsku teiknimyndinni Akira.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.