Fréttablaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 51
MÁNUDAGUR 25. febrúar 2008 27
Tillaga að breytingu deiliskipulags
Höfðavegar á Húsavík
Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til
almennrar kynningar tillögu að breytingu á deiliskipu-
lagi Höfðavegar á Húsavík skv. 1. mgr. 26. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin felur
eingöngu í sér breytingar á lóðunum Höfðavegi 6a
og 6b. Þær eru sameinaðar í eina lóð, Höfðaveg 6.
Á lóðinni er nú gert ráð fyrir sex íbúða fjölbýlishúsi á
einni hæð í stað parhúss á tveimur hæðum. Heimilað
nýtingarhlutfall lóðar verði 0,4 og mesta hæð húss
5,0 metrar yfi r gólfkóta. Nánari byggingarskilmálar
fyrir lóðina eru skilgreindir í greinargerð.
Skipulagstillagan verður til sýnis á sveitarstjórnarskrif-
stofu Norðurþings frá 25. febrúar til 24. mars 2008.
Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefi nn kostur á
að gera athugasemdir við tillöguna til og með
mánudagsins 7. apríl 2008. Skila skal skrifl egum
athugasemdum til sveitarstjórnarskrifstofu
Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast
henni samþykkir.
Húsavík 20. febrúar 2008.
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi
KÖRFUBOLTI Grindavík varð bikar-
meistari í kvennaflokki í fyrsta
skipti í gær þegar liðið lagði
Hauka í úrslitum með tíu stiga
mun, 77-67. Haukar voru betri
aðilinn í fyrri hálfleik en stórkost-
legur þriðji leikhluti hjá Grinda-
vík lagði grunninn að öruggum
sigri.
„Þetta er alveg ólýsanleg til-
finning,“ sagði Grindavíkurstúlk-
an Petrúnella Skúladóttir sem átti
magnaðan leik fyrir Grindavík á
báðum endum vallarins.
„Maður verður að gefa sig allan
í svona leiki. Ég ætlaði ekki að
labba af velli hugsandi hvað ef ég
hefði gert hitt eða þetta. Ég veit
ekki hvað var að hjá okkur í fyrri
hálfleik. Það kom samt engin
örvænting í okkar leik og við
vorum ákveðnar að klára dæmið í
síðari hálfleik sem við og gerð-
um,“ sagði Petrúnella brosmild.
Það má í raun segja að leikurinn
hafi verið eins og svart og hvítt.
Haukar voru betri á flestum svið-
um í fyrri hálfleik. Munaði þar
aðallega um grimmdina en þær
tóku heil 17 sóknarfráköst í fyrri
hálfleik gegn 6 hjá Grindavík.
Suðurnesjastúlkur litu út fyrir að
vera engan veginn tilbúnar í slag-
inn og voru nær meðvitundarlaus-
ar og áttu verk fyrir höndum í
leikhléi einum 12 stigum undir, 41-
29.
Ræða Igors Beljanski, þjálfara
Grindvíkinga, í leikhléi var snörp
og augljóslega hitti í mark því allt
annað lið mætti til leiks í seinni
hálfleikinn. Þær fóru allt í einu að
taka öll fráköst og keyrðu upp
hraðann með Tiffany Robertson í
fantaformi. Haukar áttu ekkert
svar, töpuðu leikhlutanum 28-10
og þar með leiknum því þær kom-
ust aldrei inn í hann aftur.
„Þetta er gríðarlega svekkjandi
en ég er samt mjög stoltur af
mínum stelpum sem gáfu sig alla í
leikinn,“ sagði Yngvi Gunnlaugs-
son, þjálfari Hauka, súr á svipinn í
leikslok en hann var ekki sáttur
við dómgæsluna í þriðja leikhlut-
anum þegar leikurinn snérist.
„Það er 8-0 í villum gegn okkur
og við áttum aldrei möguleika. Ég
er mjög ósáttur við margt hér í
dag en skrifa þó tapið ekki alfarið
á dómarana.“
Þær Petrúnella, Robertson og
Skiba áttu hreint magnaðan leik
fyrir Grindavík en hinum megin
munaði mikið um að Kiera Hardy
náði sér ekki á strik og virtist eitt-
hvað há henni. - hbg
Ótrúlegur þriðji leikhluti hjá Grindavíkurstúlkum gegn Haukum í bikarúrslitum:
Bikarinn loksins til Grindavíkur
PETRÚNELLA SKÚLADÓTTIR Fór hreint á
kostum í Höllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LOKSINS, LOKSINS Grindavíkurstúlkurnar Ólöf Helga Pálsdóttir og Berglind Magn-
úsdóttir fögnuðu titlinum vel og innilega. Uppi í hægra horninu sjást þær Jovan
Stefánsdóttir og Petrúnella Skúladóttir lyfta bikarnum eftisótta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HAUKAR-GRINDAVÍK 67-77
Stig Hauka: Kiera Hardy 19, Kristrún
Sigurjónsdóttir 17, Guðbjörg Sverris-
dóttir 9, Ragna Brynjarsdóttir 8, Hel-
ena Hólm 5, Telma Björk Fjalarsdóttir
4, Unnur Jónsdóttir 3, Bára Hálfdánar-
dóttir 2.
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberts-
on 24 (13 frák.), Joanna Skiba 22,
Petrúnella Skúladóttir 15 (10 frák., 6
stoðs., 2 stolnir), Jovana Lilja Stefáns-
dóttir 6, Ólöf Helga Pálsdóttir 6 (11
frák.), Ingibjörg Jakobsdóttir 2.