Fréttablaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 48
24 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Auglýsing um framkvæmdaleyfi
Á fundi sínum þann 12. febrúar 2008 fjallaði skipul-
ags- og byggingarnefnd Norðurþings um ósk Ve-
gagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir þann hluta
1. áfanga Dettifossvegar sem liggur innan marka
Norðurþings. Um er að ræða 640 m langan kafl a frá
mörkum sveitarfélaga norður að nýrri vegtengingu að
Dettifossi, endurbygging bílastæðis við Dettifoss og
2,8 km löng aðkoma að því frá aðalvegi.
Nefndin telur framkvæmdina í samræmi við gildandi
aðalskipulag Kelduneshrepps. Nefndin hefur kynnt
sér matsskýrslu um framkvæmdina og staðfest að
framkvæmdin sé sú sama og þar er lýst. Nefndin
hefur einnig kynnt sér álit Skipulagsstofnunar um
mat á umhverfi sáhrifum framkvæmdarinnar. Tekið
er undir þau sjónarmið skipulagsstofnunar að innan
Norðurþings séu veglínur ásættanlegar og muni ekki
valda verulegum neikvæðum áhrifum á landbúnað,
menningarminjar, gróður, fugla, jarðmyndanir, land-
slag, náttúruverndarsvæði, ferðaþjónustu og útivist
að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum.
1. Vegagerðin þarf að skilgreina öryggis- og fram-
kvæmdasvæði, í samráði við Umhverfi sstofnun, eins
þröngt og hægt er. Við framkvæmd skal draga úr raski
á landi, úr sjónrænum áhrifum og áhrifum vegna
hávaða og ónæðis af umferð um veginn.
2. Vegagerðin þarf að loknum framkvæmdum að hafa
samráð við Umhverfi sstofnun og þjóðgarðsvörðinn í
Jökulsárgljúfrum um uppgræðslu og frágang svæði-
sins.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti framkvæm-
daleyfi ð að uppfylltum ofangreindum skilyrðum. Á
fundi sínum þann 19. febrúar staðfesti sveitarstjórn
framkvæmdaleyfi ð.
Framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar Norðurþings er
kæranlegt til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggin-
garmála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu
auglýsingar þessarar. Málsmeðferð er samkvæmt
skipulags- og byggingarlögum.
Húsavík 22. febrúar 2008
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
Landsliðsmaðurinn ungi Eggert Gunnþór Jónsson heldur áfram
að gera það gott með skoska liðinu Hearts sem er á mikilli sigl-
ingu þessa dagana. Eggert var maðurinn á bak við sigur liðsins
á Motherwell á laugardaginn en eina mark leiksin kom eftir skot
hans sem fór í varnarmann Motherwell og í netið.
„Ég er mjög ánægður með þennan leik og sigurinn var mikil-
vægur. Virkilega góð þrjú stig. Við erum að komast í efri hlutann
sem er markmið okkar úr því sem komið er. Markið var þannig að
ég skaut af löngu færi og boltinn fór í varnarmann og sveif þaðan
yfir markvörðinn í netið. Hann hefði sennilega samt verið inni
þó svo hann hefði ekki farið í varnarmanninn,“ sagði Eggert
léttur en hann hefur verið fastamaður í liðinu síðustu vikur.
Hearts er í sjöunda sæti deildarinnar sem stendur en
sex efstu liðin spila um titilinn en sex neðstu fallið. Hearts
gekk ömurlega framan af tímabili og fór lægt í næstneðsta
sæti deildarinnar.
„Ég hef verið mjög sáttur við mína frammistöðu og ég
er klárlega að taka framförum. Það munar um að fá
að spila mikið en ég er að læra mikið og á eftir að læra
mikið. Það er annars fín stemning í félaginu þessa dagana og allt
annað líf síðan Stephen Frail tók við liðinu. Hann veit hvað hann
er að gera ólíkt gamla þjálfaranum sem vissi ekkert í sinn haus.
Við erum búnir að vinna fjóra af síðustu fimm leikjum og
ekki fengið á okkur mark í fjórum þessara leikja,“ sagði
Eggert en ekki er ljóst hvort hann fái að halda áfram
með liðið en hann þarf klárlega að koma liðinu í efri
hlutann eigi það að vera möguleiki.
Eins og áður hefur komið fram er Guðjón Þórðarson
einn af nokkrum sem eru orðaðir við stjórastöðuna hjá
félaginu.
„Ég þekki Guðjón ekki neitt en hann á góðan feril
að baki og það hlýtur að segja ýmislegt. Annars hef
ég ekkert heyrt um þjálfaramálin lengi. Ég var mikið
spurður út í Guðjón til að byrja með þegar nafn hans
kom upp og ég sagði þeim bara að hann ætti fínan
feril sem væri að þjálfa á Íslandi. Ég veit í raun ekkert
meira,“ sagði hinn bráðefnilegi Eggert sem spilaði
sinn fyrsta A-landsleik í lok síðasta árs gegn Dönum.
EGGERT GUNNÞÓR JÓNSSON: STENDUR SIG FRÁBÆRLEGA MEÐ SKOSKA LIÐINU HEARTS
Gamli þjálfarinn vissi ekkert í sinn haus
> GOG lagði Celje Lasko
Danska liðið GOG sem Snorri Steinn Guðjónsson og
Ásgeir Örn Hallgrímsson leika með vann góðan sigur, 34-
33, á Celje Lasko í Meistaradeildinni. GOG er í öðru sæti
síns riðils á eftir Barcelona. Ademar Leon, lið Sigfúsar Sig-
urðssonar, er einnig í öðru sæti síns riðils eftir óvæntan
sigur á Evrópumeisturum Kiel, 28-24. Sigfús komst ekki
á blað í leiknum. Logi Geirsson var hins vegar í
fínu formi með Lemgo og skoraði sex mörk í
tapleik gegn Rhein Neckar Löwen, 25-29.
KÖRFUBOLTI Sigurður Þorvaldsson átti
stórbrotinn leik fyrir Snæfell í gær -
skoraði 30 stig og setti niður sjö þrista.
„Mamma hans Magna, Maggý, bauð
upp á fiskisúpu og hún gerði gæfumun-
inn. Svo tók ég hafragraut í morgunmat
með lýsi,“ sagði Sigurður spurður um
hvað hann hefði eiginlega borðað fyrir
leikinn því hvað svo sem það var þá
virkaði það augljóslega.
„Við mættum tilbúnir til leiks. Við
töldum okkur vera með betra lið en þeir
og ég held að við höfum sannað það í
dag. Við vissum hvernig umræðan var
um að við ættum að vinna en við héldum
okkur á jörðinni og vanmat kom aldrei
til greina af okkar hálfu. Það er yndis-
legt að vinna þennan leik og við ætluð-
um aldrei að fara fúlir heim í Hólminn,“
sagði Sigurður kátur.
Bárður Eyþórsson, þjálfari
Fjölnis og fyrrum þjálfari Snæ-
fells, var ekki eins sáttur. „Ég er
hundsvekktur. Hlutirnir duttu
með þeim frá upphafi og við
vorum þess utan ekki nógu
grimmir í okkar aðgerðum,“
sagði Bárður en báru hans
menn of mikla virðingu fyrir
andstæðingnum? „Það verður hver
og einn að svara fyrir sig með það en
það leit þannig út, því miður.“ - hbg
Sigurður Þorvaldsson upplýsti leyndarmálið á bak við stórleik sinn gegn Fjölni:
Fiskisúpan hjá mömmu hans
Magna gerði gæfumuninn
FÓR Á KOSTUM Sigurður Þorvaldsson
hafði efni á að fagna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KÖRFUBOLTI Lýsingarbikar karla
fór í Stykkishólm í gærkvöldi eftir
glæstan sigur Snæfells á Fjölni,
109-86. Sterkt lið Snæfells féll
ekki í þá gryfju að vanmeta Fjöln-
ismenn, þeir mættu tilbúnir frá
byrjun, slökuðu aldrei á klónni og
lönduðu verðskulduðum og sann-
gjörnum sigri. Gríðarleg fagnað-
arlæti brutust út eftir leikinn og
fjölmargir Hólmarar hreinlega
töpuðu sér í gleðinni en biðin eftir
stórum bikar var búin að vera
erfið.
Eins og áður segir mættu
Hólmarar vel stemmdir til leiks
með Sigurð Þorvaldsson í fanta-
formi en hann setti niður þrjá
þrista í fyrsta leikhluta. Það var
ekkert vanmat af hálfu Hólmara
en að sama skapi báru Fjölnis-
menn fullmikla virðingu fyrir and-
stæðingnum. Fjölnismenn fóru
loks að taka almennilega á því í
öðrum leikhluta og héldu Snæfelli
nærri sér í leikhléi aðeins tíu stig-
um undir, 48-38.
Fjölnismenn héldu áfram að
berjast í síðari hálfleik en það var
sama hvað þeir reyndu, það datt
allt niður hjá Snæfellingum og
þeir virtust vart geta klikkað á
skoti í langan tíma. Sigurður,
Shouse og Subasic fóru hamförum
fyrir utan þriggja stiga línuna en
alls setti Snæfell niður 14 þrista í
leiknum.
Staðan 77-69 eftir þrjá leikhluta
og það bil náði Fjölnir aldrei að
brúa. Snæfell hélt skotsýningunni
áfram í fjórða leikhluta og
skemmti sér hreint konunglega
við að skjóta Fjölnismönnum alla
leið heim í Grafarvog.
„Við vorum tilbúnir og reyndum
að þvinga Fjölnismenn í erfið skot.
Við vissum sem var að ef vörnin
virkaði myndi sóknarleikurinn
koma af sjálfu sér,“ sagði Justin
Shouse skælbrosandi í leikslok.
Hann átti magnaðan leik en þessi
strákur hefur reynst mikill happa-
fengur fyrir Hólmara.
„Þetta var einn af þessum
dögum þar sem hreinlega allt fer
ofan í körfuna. Það er ólýsanlega
gaman að vinna bikarinn fyrir
framan þessa ótrúlegu stuðnings-
menn sem fylgdu okkur. Það verð-
ur hrikalega gaman að fagna þess-
um titli og ég efast um að einhver
mæti í vinnu í kjölfarið,“ sagði
Shouse léttur. henry@frettabladid.is
Skotsýning hjá Snæfelli
Snæfell varð bikarmeistari KKÍ í fyrsta skipti í gær eftir öruggan sigur á Fjölni,
109-86. Hólmarar buðu upp á skotsýningu af allra bestu gerð þar sem nánast
allt fór niður. Það var meira en baráttuglaðir Fjölnismenn réðu við.
KÁTIR Geof Kotila þjálfari, Jón Ólafur Jónsson og aðrir leikmenn Snæfells slepptu sér
í gleðinni eftir leikinn. Hlynur Bæringsson fyrirliði er með bikarinn á minni myndinni
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SNÆFELL-FJÖLNIR 109-86
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson
30 (7 þristar), Justin Shouse 27 (10
stoð.), Slobodan Subasic 24, Hlynur
Bæringsson 8 (18 frák., 7 stoð.), Jón
Ólafur Jónsson 7, Anders Katholm 6,
Magni Hafsteinsson 2, Atli Hreinsson
2, Árni Ásgeirsson 2, Guðni Valentín-
usson 1.
Stig Fjölnis: Anthony Drejaj 26, Níels
Dungal 17, Sean Knitter 12, Pete
Strobl 8, Tryggvi Pálsson 6, Valur Sig-
urðsson 5, Kristinn Jónasson 5, Helgi
Þorláksson 2.