Fréttablaðið - 25.02.2008, Qupperneq 8
8 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
MENNING Hátíðin er haldin í sam-
starfi við Bozar, lista- og menning-
armiðstöðina í Brussel sem er
stærsta og þekktasta stofnun
Belgíu á sínu sviði. Yfirskrift henn-
ar er Iceland on the edge sem að
sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur utanríkisráðherra skírskot-
ar bæði til kraftsins og fjölbreytn-
innar í íslensku listalífi og til legu
landsins á jaðri Evrópu.
„Þetta er eitthvert stærsta land-
kynningarverkefni sem við höfum
ráðist í og markmiðið er að efla
ímynd Íslands á alþjóðlegum vett-
vangi og sýna þann kraft sem býr í
íslensku lista- og menningarlífi. Við
erum sannfærð um að með því er
hægt að miðla mynd af Íslandi sem
skiptir verulegu máli fyrir stöðu
okkar í alþjóðlegu samhengi,“ segir
Ingibjörg Sólrún og bætir við að
menning og listir skapi verðmæti
nú og til framtíðar.
Á kynningarfundi með blaða-
mönnum tók Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra undir þessi orð og sagði
útrásarmenn í viðskiptum sjá sér
hag í að efla útrás á sviði menning-
ar. Það staðfestist meðal annars
með því að Landsbankinn er mátt-
arstólpi hátíðarinnar og Icelandair
og Icelandair Cargo eru samstarfs-
aðilar. Hátíðin er haldin að frum-
kvæði íslenska sendiráðsins í
Brussel en fjögur ráðuneyti,
Reykja víkur borg, Ferðamálastofa
og Útflutningsráð koma að verk-
efninu.
Þorgerður Katrín sagði listræn-
an stjórnanda Bozar hafa að mestu
valið listviðburði hátíðarinnar og
ánægjulegt væri að hann beindi
sjónum sérstaklega að ungu lista-
fólki.
Stefán Haukur Jóhannesson,
sendiherra Íslands í Brussel, segir
borgina kjörlendi fyrir kynningu
sem þessa. „Sumir kalla borgina
hjarta eða höfuðborg Evrópu því
hún er svo alþjóðleg.“ Hátíðinni er
beint jöfnum höndum að Belgum
og starfsmönnum erlendra ríkja
og fyrirtækja í Brussel.
Umfangsmikið kynningarstarf
hefur farið fram af hálfu Bozar og
segir Stefán Haukur að fjallað hafi
verið um Ísland og Íslandshátíðina
í tugum greina í blöðum og tíma-
ritum. Að sögn Ingibjargar Sólrún-
ar er verðmæti verkefnisins áætl-
að um 120 milljónir króna og
skiptist kostnaður á milli Bozar og
Íslands. bjorn@frettabladid.is
Ísland nemur
land í Brussel
Á annað hundrað listamenn koma fram á viðamikilli
Íslandshátíð sem hefst í Brussel í Belgíu á morgun.
MENNING STYRKIR ÍMYND ÍSLANDS
Þorgerður Katrín, Ingibjörg Sólrún og
Stefán Haukur kynna hátíðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Brussel-búar og gestir fá að
njóta margvíslegra listviðburða
í Bozar-miðstöðinni næstu
mánuði. Meðal annars verður
íslensk samtímamyndlist sýnd,
Fossaverkefni Rúríar og verk
Kjarvals, Kristjáns Davíðssonar
og Georgs Guðna.
■ Af sviðslistum má nefna dans-
sýningu Ernu Ómarsdóttur og
félaga og sýningu á uppfærslu
Baltasars Kormáks á Pétri Gaut.
■ Haldið verður bókmenntakvöld
tileinkað Halldóri Laxness í
umsjá Halldórs Guðmundssonar
með þátttöku Auðar Jónsdóttur
og Hallgríms Helgasonar.
■ Kvikmyndahátíð verður í lok maí
og fjöldi tónleika, bæði klassískra
og popptónleika.
Á ANNAÐ HUNDRAÐ LISTAMENN