Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 12

Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 12
12 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS Tölvunám Almennt tölvunám Sérstaklega hagnýtt og markvisst námskeið ætlað þeim sem hafa einhvern tölvugrunn að byggja á eða eru að vinna við tölvu og vilja auka við þekkingu sína hraða og færni. Mikið lagt uppúr vinnusparandi aðgerðum í tölvu. • Windows skjalavarsla • Word • Excel • Internet • Outlook tölvupóstur og dagbók Kennsla hefst 5. mars og lýkur 16. apríl (páskafrí 18. til 26. mars). Kennt er mánudaga og miðvikudaga, morgunnámskeið kl. 8.30 – 12 og kvöldnámskeið 18 – 21.30. Lengd 63 std Verð kr. 44.900,- 3 kennslubækur innifaldar. FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS SÍMI: 544 2210 UMRÆÐAN Leikskólamál Sama hversu mikið fárviðrið er á heima-velli stjórnmálamanna er ekki boðlegt að yngstu borgararnir sitji á hakanum á meðan nýr meirihluti hangir í óraunhæf- um og þokukenndum hugmyndum. Meirihluti leikskólaráðs samþykkti á fundi fyrir rúmri viku að í haust eigi fjórir grunnskólar Reykjavíkur að bjóða upp á sérstaka bekki fyrir fimm ára börn. En á mánudag hefst skráning nýnema í grunnskólans og lýkur á föstudag. Þrátt fyrir það hefur nákvæmlega ekkert verið ákveðið varðandi þetta verkefni meirihlutans. Ekki hvar, hvenær, hvernig eða hvers vegna í ósköpun- um þetta verkefni núna? Félag íslenskra leikskóla- kennara hefur mótmælt harðlega og það ekki að ástæðulausu. Fræðimenn hafa verið sammála um að leikur og skapandi starf í umhverfi leikskólans henti betur ungum börnum en það sem tillögur meirihlutans boða. Þá komst starfshópur leikskólaráðs að þverpólitískri niðurstöðu árið 2006, um að þessi hugmynd væri ekki vænleg. Auk þess sem kannanir sýna að 93% foreldra eru ánægð með leikskóla borgarinnar og sama hlutfall telur þörfum barna sinna vel mætt. Þá er ekki að finna heimild í núgildandi lögum fyrir fimm ára bekkjum og slíkir bekkir myndu ekki bjóða upp á samfelldan skóladag eins og er í leikskólunum og allt að helmingi færri kennarar yrðu á hvert barn. Ekki er til námskrá fyrir fimm ára bekki og ekki búið að ákveða hvert fimm ára börn fara að árinu loknu, í sex eða sjö ára bekk, ekki er vitað hvort markmiðið sé að flýta námi barna eða lengja grunnskóla- nám um ár, hvað þá hvert foreldrar eiga að leita upplýsinga. Þótt sveigjanleiki á milli skólastiga sé af hinu góða hefur meirihlutinn hlaupið fram úr sér í þessu máli og virðist vera í einum allsherjar blindbyl. Málið er bæði illa ígrundað og engin haldbær rök eru fyrir þessum hamagangi. En enn bíða börn eftir leikskóla- vist vegna manneklunnar og hægagangs í uppbygg- ingu leikskólanna og á það verður fókusinn að vera stilltur. Höfundur er fulltrúi Samfylkingarinnar í leikskólaráði. Glannaleg vinnubrögð BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERSDÓTTIR Ég heyrði Lárus Welding svara því í útvarpinu hvers vegna hann hefði fengið 300 milljónir að gjöf hjá Glitni þegar hann tók við forstjórastöðu þar af Bjarna Ármannssyni sem sjálfur fékk fyrir það framtak að hætta störfum upphæð sem mig skortir andlega burði að muna. Lárus muldraði um skaðabætur fyrir að hætta sem yfirmaður Landsbank- ans í Lundúnum og það umhverfi sem hann hefði verið í – og klykkti svo út með því að segja: „Banki er ekkert annað en mannauðurinn.“ Mannauðmenn allra landa... Forstjóragræðgi er vissulega alþjóðlegt vandamál og víða um lönd tíðkast ábyrgðarlaus fjáraustur til einstaklinga í toppstöðum – sem semja gjarnan hver við annan um laun og kaupréttarsamninga. Andófsmað- urinn Vilhjálmur Bjarnason hefur hins vegar bent á að erlendis séu kaupréttarsamningar tengdir árangri. En útlendingar eru víst ekki jafn snjallir í fjármálum og Íslendingar. Þeir halda til dæmis að íslenskir bankar standi illa. Það er ekki rétt. Þeir standa vel. Þeir sem standa hins vegar illa eru útlensku bankarnir. Og geta því ekki haldið áfram að ausa peningum í íslensku bankana. Sem standa samt mjög vel. Hér á landi hefur sem sagt þótt dæmigerð útlensk þröngsýni að tengja kaupréttarsamninga við árangur. Menn hafa talið að íslenskir bankar mali sjálfkrafa gull og íslenskir viðskiptamenn hafi til að bera einhverja snilli umfram aðra. Manni skilst hálfpartinn að þessi íslenska sérgáfa í fjármálum sé til komin vegna einhvers Íslendingseðlis sem yfirleitt er tengt við víkinga. Samt voru nánast engir víkingar til á Íslandi, nema náttúrulega pappírsvíkingar. En útrásin hefur hvað sem því líður verið hrífandi ævintýri. Og árangur sumra íslenskra við- skiptamanna hefur vissulega verið ótrúlega góður – en hann hefur líka verið ævintýralega vondur hjá öðrum. Hins vegar er vandséð sambandið á milli launakjara forstjóranna og árangurs þeirra í útrásinni. Ekki man ég betur en að sá sem mestu tapaði, Hannes Smárason, hafi jafnframt verið sá sem hæst fékk launin, og þegar ekki var með nokkru móti hægt að leyfa manninum að halda áfram að fjárfesta – enda búinn að tapa 67 milljörðum á síðasta ári – var hann leystur út með 90 milljónum, enda „banki ekkert annað en mannauðurinn“. Ef væri ég auðmaður... Ég segi það ekki. Það er örugg- lega gott að vera auðugur og hægt að veita sér margt ánægjulegt, búa í góðu húsi, láta kammersveit leika fyrir sig undir borðum, læra á þyrlu, eiga bát, safna frímerkj- um... eiga góðar bækur og léleg fótboltalið. Auðsæld er líka góð fyrir samfélagið því að sannir auðmenn hafa unun af því að skapa, sjá eitthvað verða til úr fé sínu, styrkja góð málefni og borga mikla skatta. Og svo framvegis. En græðgi er samt ekki góð, enda er ágirnd ein af dauðasyndunum sjö. Fyrir einstaklinginn er ágirndin ákveðin tegund af taugaveiklun, skyld fíkn og brenglar dómgreindina. Hömlu- leysi í kaupréttarsamningum er ekkert virðingarverðara en til dæmis stjórnlaust lakkrísát eða túradrykkja; sá sem gefur sig græðginni á vald, hvort sem það er brennivín, peningar eða lakkrís, finnur um síðir til vansældar. Græðgi eyðileggur líka orðstír manna. Upp að vissu marki vekur velgengni virðingu samferðar- fólks, jafnvel öfundar- og óttablandna, en þegar menn eru farnir að skammta sér meiri laun en þeir komast yfir að eyða á þrjú hundruð árum með þeirri réttlætingu að þeir séu svo mikill mannauður – þá dofnar sú virðing. Og þegar menn hafa fyrirgert mannorði sínu með þessum oflaunum getur reynst erfitt að endurheimta það. Þá hætta vesalings auðmennirnir að geta umgengist venjulegt fólk en halda sig þess í stað í sínum hópi þar sem ríkir gagnkvæmur skilningur á gildi þess mikla mannauðs sem þeir séu. Og þannig verður til stéttaskipt- ing. Sérhverfi, sérskólar, sértil- vera. Helsti kosturinn við íslenskt samfélag á 20. öldinni var félagslegur sveigjanleiki þess, stéttaflakkið. Sjálfur átti ég til dæmis forríkan langafa en gæfa mín var sú að eiga föður sem „braust til fátæktar“ eins og mig minnir að mín millistéttaræska hafi verið kölluð. Ég væri áreiðanlega alveg hörmulegur auðmaður. Krafturinn í íslensku samfélagi er ekki síst vakinn af landlægum skorti á stéttarvitund. Virðingar- leysið við „fínt fólk“ og stein- runna siði, einhver sérstök smáþjóðarsamkennd og löngun til að sanna sig: allt hefur þetta hjálpað mönnum í útrásinni frekar en eitthvert víkingseðli og allt er þetta til komið af því að tilheyra ekki hástétt. Það er gott að menn séu ríkir og gaman þegar vel gengur en græðgi er ekki góð. Græðgi er vond Á liðnum sex mánuðum hafa setið þrír borgarstjórar í Reykjavík. Sú lausung hefur eðlilega komið mest niður á Sjálfstæðisflokknum enda ber hann sinn hluta ábyrgðar- innar. Skoðanakönnun Fréttablaðsins í gær er á hinn bóg- inn vísbending um að á landsvísu hafi þetta verið tíma- bundin lægð. Samfylkingin heldur þeirri uppsveiflu sem mældist í sambæri- legri könnun fyrir mánuði. Þrátt fyrir efnahagsþrengingar á síðustu vikum sýnist ríkisstjórnin og þeir flokkar sem að henni standa bæta stöðu sína umtalsvert frá síðustu kosningum. Sú niðurstaða er verð skoðunar. Ekki hefði komið á óvart að erfiðleikarnir sem borgarstjórnar- flokkur sjálfstæðismanna rataði í hefði haft langvinnari áhrif á flokkinn í heild. Hvers vegna gerist það ekki? Nærtækasta skýringin er sú að forysta ríkisstjórnarinnar hafi við erfiðar aðstæður, þar á meðal varðandi lausn kjarasamninga, sýnt fumleysi og öryggi. Það er einmitt við aðstæður eins og þessar sem ólíklegast er að menn ávinni sér traust með hávaðastjórnmálum. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna kallaði sjálfur yfir sig gagnrýni og efasemdir um trúverðugleika og getur ekki kvartað undan því. En vera má að andstæðingarnir hafi á hinn bóginn ekki kunnað sér hóf og þjappað stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins saman með ofnotkun stóryrða. Það getur skýrt að hluta til að lægð hans er grynnri og tímabundnari en búast hefði mátt við. Ákvörðun oddvita borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna um að sækjast ekki ákveðið eftir borgarstjórastólnum á síðasta ári kjör- tímabilsins er skiljanleg í ljósi atburðanna. Hún viðheldur hins vegar um sumt óheppilegri óvissu. Sennilega væri sterkasti leikur borgar- stjórnarflokksins í því fólginn að stöðva frekari hringdans um borg- arstjórastólinn á þessu kjörtímabili í þeim tilgangi að bjóða borgar- búum upp á meiri festu. Til lengri tíma litið gæti slík stundarfórn aukið bæði traust og tiltrú. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins benti fyrr í vetur á að innan flokksins hefur verið reynt að grafa undan samstarfi hans við Sam- fylkinguna. Í því samhengi er athyglisvert að skoðanakönnunin sýnir að nærri 96% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins styðja stjórnar- samstarfið. Það bendir til þess að gagnrýnendurnir hafi ekki næma tilfinningu fyrir því hvað fólkið telur landinu fyrir bestu. Til lang- frama geta stjórnmálaflokkar varla leyft sér að hafa annað viðmið. Athyglisvert er að Framsóknarflokkurinn nær sér ekki á strik í stjórnarandstöðu. Lægðin sem flokkurinn lenti í við síðustu kosn- ingar heldur einfaldlega áfram að dýpka. Skýringin gæti verið sú að línan að hugsanlegu pólitísku framtíðarhlutverki flokksins í flokka- kerfinu fer ekki saman við þá línu sem forystumenn flokksins hugsa eftir. Misvísun af því tagi er ekki vænleg til árangurs. Forystuflokkur stjórnarandstöðunnar, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, heldur hins vegar þeirri sterku stöðu sem hann náði í kosn- ingunum. Framtíðarvandi VG er hins vegar í því fólginn að næstu kosningar geta ekki snúist um ríkisstjórnina eða stjórnarandstöðuna. Ætli flokkurinn sér að komast í ríkisstjórn þarf hann að opna leiðir að öðrum hvorum stjórnarflokkanna. Engin merki eru í þá veru. Að öllu virtu sýnast báðir stjórnarflokkarnir standa vel að vígi þrátt fyrir efnahagslegan mótbyr og erfiðleika Sjálfstæðisflokks- ins á vettvangi borgarstjórnar. Styrkur ríkisstjórnarinnar er þar af leiðandi ótvíræður. Borgarstjórnarlægðin grynnist Sterk ríkisstjórn ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Ofurlaun Beðið eftir Godot Hamaganginum í borgarpólitíkinni hefur gjarnan verið líkt við farsa und- anfarnar vikur. Nú þykir farsinn farinn að minna óþægilega á leikrit Samuels Beckett Beðið eftir Godot sem oftast er talið eitt merkasta verkið í leikhúsi fáránleikans. Í stað þess að bíða eftir Godot bíða menn nú og bíða eftir að eitthvað gerist og tekin sé ákvörðun. Líkt og í leikritinu góða er farsinn í Ráðhúsinu allur farinn að snúast um þessa endalausu og örvæntingarfullu bið og lausnin virðist alltaf vera rétt handan við hornið rétt eins og Godot sem við vitum þó öll að kemur aldrei. Leitað að leiðtoga Námskeiðið Listin að vera leiðtogi er á dagskrá stjórnmálaskóla Sjálfstæð- isflokksins 3. mars næstkomandi. Nú binda menn vonir við að borgarfulltrúar flokksins fjölmenni á námskeiðið og taki í kjölfarið ákvörðun um hver eigi að stjórna borginni þegar tími Ólafs F. Magnús- sonar er liðinn. Það vekur hins vegar athygli að enn hefur ekki verið skráður fyrirlesari á námskeiðið sem vekur spurningar um hvort enginn innan flokksins treysti sér til að kenna þessi fræði. Rólegt á blogginu Lætin í kringum bloggið hans Össurar Skarphéðinssonar virðast í rénun enda hefur kappinn ekki komist á skrið á lyklaborðinu síðan hann skrifaði hina umdeildu færslu um ung stirnið Gísla Martein. Á miðviku- daginn bloggaði Össur um mat sem verður að teljast frekar sakleysislegt og nýjasta færslan fjallar um Clinton og Obama sem skilja ekki íslensku og geta þar af leiðandi ekki farið í fýlu út af skrifunum. thorgunnur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.