Fréttablaðið - 25.02.2008, Qupperneq 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Í hvítum sófa í Grafarvogi slást falleg mæðgin
um tunguna sem svo gott er að hvílast í. Sá slag-
ur endar oftast í bróðerni og góðum skiptum.
„Ég var búin að leita víða að þægilegum og fallegum
sófa og fann loks þennan dásamlega hvíta tungusófa í
Línunni,“ segir Þórunn Þórðardóttir, löggiltur fast-
eignasali hjá RE/MAX Íslandi, þar sem hún lætur fara
vel um sig í þeim húsbúnaði heimilisins sem hún hefur
mest dálæti á.
„Mér finnst ótrúlega gott að slappa af í tungunni
eftir annasaman dag. Þarna er ég með sjónvarpið mitt,
kaffibollann og Fréttablaðið og sofna gjarnan yfir
sjónvarpinu sem er auðvitað allra besta slökunin,“
segir Þórunn hlæjandi, en sonur hennar á unglings-
aldri ásælist einnig tunguna mjúku.
„Við sláumst oft um tunguna en oft fara leikar
þannig að við liggjum þar saman og horfum á fótbolta
þótt hann sé orðinn þrettán ára og 180 sentimetrar á
hæð. Þannig má segja að tungan sameini okkur,“ segir
Þórunn sem í starfi sínu fer inn á óteljandi heimili
íslenska lýðveldisins.
„Mér finnst hlýleiki skipta mestu þegar inn í hýbýli
fólks er komið, en þegar kemur að innra skipulagi spái
ég mest í eldhús og bað og hér heima var það sólrík
borðstofan sem heillaði mig upp úr skónum. Persónu-
leg einkenni eru það sem gerir heimili að heimili og
hjá mér er allt ljóst í blönduðum gamaldags og nútíma-
legum stíl. Eini fornmunurinn er rokkur sem áður var
í eigu langömmu, ömmu og svo mömmu en stendur nú
í stofunni hjá mér,“ segir Þórunn sem tók löggildingu
fasteignasala árið 2000 og nýtur starfsins mjög.
„Í þessum bransa kemst maður fyrstur í námunda
við töfrandi húsnæði og ég sem hrifnæm manneskja
hef samstundis fallið fyrir slíku og gert tilboð daginn
eftir. Starfið er bæði skemmtilegt, fjölbreytt og lif-
andi, en líka annasamt og á köflum erfitt. Þá er gott að
koma heim og eiga góðan sófa til afslöppunar, en ég er
afar heimakær. Það jafnast ekkert á við það að koma
heim í sitt afdrep og eiga kósí stundir með syninum í
sófanum.“ thordis@frettabladid.is
Persónuleg einkenni
gera heimili að heimili
Þórunn Þórðardóttir fasteignasali ásamt syni sínum Andra Þór Arnarsyni í sófanum góða. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Martha Stewart
er drottning í augum
margra húsmæðra.
Hún getur eldað
frábærar máltíðir
og föndrað fínustu
muni úr nánast engu.
Hún er með ítarlega og
fjölbreytta heimasíðu
sem skemmtilegt er að
skoða. www.marthas-
tewart.com
Listamenn
leynast á mörgum
heimilum þar sem
börn eru flest
mjög skapandi.
Ef lífga þarf upp
á heimilið er
tilvalið að fara í
gegnum listaverka-
safnið og setja
nokkrar myndir í
fallega ramma.
Blaðakörfur geta
bjargað heimilum.
Þegar allt virðist
vera í drasli
er oft nóg að
safna saman
dagblöðum og
auglýsingum,
stinga þeim í
fallega blaðakörfu
og allt í einu er allt
sem nýtt.
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri
Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
ÚTSALA
HEILSÁRSDEKK
Dekk Stærð Áður Tilboð
NordMaster ST 13" 175/70R 13 5.990,- 3.990,-
NordMaster ST-310 14" 185/65R 14 6.900,- 4.900,-
NordMaster ST 15" 195/65R 15 7.990,- 5.990,-
NordMaster ST 15" 205/65R15 8.600,- 7.600.-
NordMaster ST 15" 205/70R 15 8.900,- 7.900,-
NordMaster ST-310 16" 205/55R 16 9.990,- 8.900,-
Ath! takmarkað magn
Besti afþreyingarvefurinn 2007
Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn sem hlýtur verðlaunin Afþreyingarvefur ársins 2007 er í senn fræðandi, áhugaverður,
yfirgripsmikill og vinsæll en hefur um leið mikið afþreyingargildi. Vefurinn inniheldur allt sem góður afþreyingarvefur þarf
að hafa, vel unninn texta, gott myndmál, útvarpsefni, sjónvarpsefni, sem og síaukna aðkomu notenda, sem er eitt af því
sem skiptir sífellt meira máli hjá framsæknum vefjum í dag. Vefurinn verður að teljast inni í daglegum rúnti íslenskra
netverja enda einn af fjölsóttustu vefjum landsins.“
Sjá vef Samtaka vefiðnaðarins – svef.is
...ég sá það á visir.is
Samtök vefiðnaðarins völdu visir.is besta afþreyingarvefinn fyrir árið 2007.