Fréttablaðið - 25.02.2008, Síða 20
● fréttablaðið ● fasteignir2 25. FEBRÚAR 2008
Fasteignasalan Domus hefur til sölu glæsilegt 152,4 fermetra parhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr með góðu
geymslulofti. Stór og vandaður pallur er fyrir framan húsið á þessum útsýnisstað í Grafarvogi.
Lýsing: Húsið er á tveimur hæðum. Gengið er inn um sérinngang á efri hæð sem skiptist í forstofu með flísum á
gólfi og skáp. Borðstofan er björt með gegnheilu eikarparketi á gólfi, þar er útgengt út á svalir með fallegu útsýni.
Eldhúsið er opið í stofu, allir efri skápar úr kirsuberjaviði og þeir neðri eru sprautulakkaðir. Í eldhúsinu er gaselda-
vél. Á neðri hæð hússins eru tvö herbergi, annað hjónaherbergi sem er mjög rúmgott með gegnheilu eikarpark-
eti á gólfi og fataskáp úr kirsuberjaviði. Þar er útgengt út í garð. Hitt er barnaherbergi sem er rúmgott með eikar-
parketi á gólfi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Klósettið er upphengt og þar er hornbaðkar ásamt sturtu.
Sjónvarpsherbergið er með gegnheilu eikarparketi á gólfi en auðvelt er að breyta því svefnherbergi. Á neðri hæð-
inni er einnig þvottahús með flísum á gólfi og þar eru hillur og skápur. Húsið er nýmálað að utan og stór og fal-
legur sólpallur er fyrir framan húsið. Stutt er í skóla, leikskóla og í alla almenna þjónustu.
Söluverð eignarinnar er 46.900.000 krónur.
112 Reykjavík: Parhús á tveimur hæðum
Vættaborgir 16: Frábært útsýni
100% f já rmögnun — Eng in ú tborgun!
Bjarni 0034-663326472 // bjarni@costablanca.is • Ívar 0034-606743181 // breytling@hotmail.com
Fr
u
m
Til sölu alveg ný 4 stórglæsileg raðhús á Costa Blanca
ströndinni á Spáni með mögulegri 100% fjármögnun. Húsin
eru staðsett í Cabo Roig hverfinu sem er á hinu þekkta
Torreviejasvæði á Spáni. Húsin standa við götu sem er
með svokölluðu grænu svæði fyrir framan, sem þýðir að
ekkert verður byggt fyrir framan húsin, og sameig-
inlegri sundlaug hinum megin sem er sérlega smekkleg.
Margir íslendingar hafa fest kaup á húsum í þessum kjarna
sem segir ansi margt um gæði þessara húsa.
Stærð: 110 fm. Í þessum húsum eru 3 svefnherbergi,
2 baðherbergi, eldhús, stofa, tvennar svalir, verönd og þak-
verönd með miklu útsýni til sjávar. Sameiginleg sundlaug
og bílastæði undir húsunum innifalið í verði.
Þegar fólk kemur í skoðunarferð og af kaupum verður borgum
við fyrir tvo aðila bæði gistingu og flug við afsal hússins.
Mögulegt er að fá allt kaupverðið lánað til 30 ára hjá
spænskum banka.
Öll gögn um verðmat liggja fyrir.
Verð: 185.000 c
Verð: 235.000 c (hornhús með stórri lóð 207,7 fm).
www.costablanca.is www.golf-houses.com
Danfoss ofnhitastillar
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Háþróuð og notendavæn
hitastýring sem veitir
þægilega húshitun og
hámarks orkusparnað
Við erum leiðandi í
framleiðslu ofnhitastilla
Hólmsheið B-21
108 Reykjavík
Hestamenn...Hestamenn
Stærð: 170 fm
Fjöldi herbergja: 0
Byggingarár: 0
Brunabótamat: 0
Bílskúr: Nei
Verð: 9.900.000
Grunn að 20 hesta húsi að Hólmsheiði.Húsið á að samanstanda af 103fm hesthúsi og 36,4fm
hlöðu,baðherbergi reiðtygjageimslu og kaffistofu á efri hæð. Komnir eru sökklar og búið að steipa
plötu.Búið er að smíða alla glugga og fylgja þeir með. Skift var um jarðveg í allri lóðinni sem er um
1000fm.Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Fasteignir
Stefán Páll
Lögg. fasteignasali
Ingi Már
Sölufulltrúi
stefanp@remax.is
ingim@remax.is
Grunnur að hesthúsi
RE/MAX Fasteignir - Engjateig 9 - 105 Reykjavík - Sími: 5788800 - www.remax.is
821 4644