Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 28
25. FEBRÚAR 2008 MÁNUDAGUR
Oftast fylgir uppáhaldshnífur
kokknum á milli staða á sama
hátt og myndavélin fylgir
ljósmyndaranum hvar svo sem
hann vinnur.
Hallgrímur Friðrik Sigurðarson,
yfirkokkur á veitingastaðnum Frið-
riki V á Akureyri, lagði góðfúslega
niður hnífana til að sýna lesendum
Fréttablaðsins hvaða eggjárn eru
nauðsynleg í hvert eldhús. Kokk-
arnir voru á þönum er blaðamað-
ur rann á gómsæta lyktina úr eld-
húsinu enda Fóður og fjör í fullum
gangi.
Allir eru þeir sammála um að
góða hnífa megi alls ekki setja í
uppþvottavél heldur verði að hand-
þvo þá og strjúka af virðingu. „Það
leyfist engum að koma illa fram við
hnífinn minn, ekkert frekar en við
konuna eða börnin mín,“ segir Frið-
rik V og hlær en meinar það engu
að síður. „Bera skal umhyggju og
virðingu fyrir hníf sínum, vei þeim
sem fer illa með minn hníf,“ segja
hinir kokkarnir einróma og taka
undir orð eigandans.
Að sögn Hallgríms kaupa alvöru-
kokkar ekki hnífasett heldur bæta
við sig einum og einum góðum hníf
í gegnum tíðina. Á fjórtán ára ferli
hefur hann safnað að sér hnífum og
getur nú valið á milli þrjátíu mis-
munandi gerða. „Mínir bestu hníf-
ar hafa kokkanafn mitt grafið við
hlið nafn hnífsins svo það fer ekki á
milli mála hver á hvaða hníf.“ Hall-
grímur viðurkennir að hann sé nú
orðinn hálfgerður eldhúsdótakarl
og leiti uppi nýja hnífa til að bæta
í safnið. Þessa dagana langar hann
mest í hníf í formi skeiðar með
brýnda hlið „til þess að ná ostrunni
úr skelinni“, segir hann og telur það
nauðsynlega viðbót í safnið.
Annað gott ráð frá kokkunum
hjá Friðriki V er að ef ekki er til
stál til að brýna hnífana sé gott að
nota glerungsbilið á botni postulíns-
diska. Þá er disknum haldið á hvolfi
og egginni rennt yfir á sama hátt og
gert er með stálið. - va
Hnífarnir stroknir
af virðingu
Listakokkurinn Friðrik V veitir lesendum innsýn í heim hnífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Flottasti hnífurinn. Þessi steikarhnífur
var sérpantaður fyrir nýja veitingastað-
inn enda skiptir miklu máli að áhöldin
virki vel allt frá fyrsta skurði að munni
gestanna.”
„Nauðsynlegt er að eiga að minnsta
kosti þessa fjóra grunnhnífa. Það er frá
vinstri: grænmetishnífur, ávaxtahnífur,
úrbeinari og saxari. Til að fullkomna
grunninn er gott að eiga einnig góðan
brauðhníf og svokallaðan graflaxhníf
sem sker mjög þunnt,” segir sjálfur
Friðrik V.
Þegar setið er við borð í góðum veislum getur borðbúnaður verið ansi flókinn. Góð
þumalputtaregla er að byrja yst og borða sig inn. Á myndinni má sjá smjörhníf sem
liggur á aukadiski en aðrir hnífar eru notaðir frá hægri til vinstri. Yst liggur forrétta-
hnífurinn, svo fiskihnífurinn og innstur er steikarhnífurinn.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
● GOTT ANDRÚMS-
LOFT Í ELDHÚSINU
Haldið eldhúsinu ávallt hreinu.
Mikilvægt er að ganga frá
matarílátum, þurrka af borð-
um, sópa gólf, sjá til þess að
birta sé nægileg og gæta þess
að loftræsting sé góð.
Hentu út hlutum sem ekki
hafa verið notaðir síðasta árið.
Heimilistæki sem aldrei eru
notuð eru bara fyrir og laða til
sín neikvæða orku. Drasl gerir
það sömuleiðis.
Haltu ruslafötunni hreinni
og hafðu hana þar sem ekki
sést til. Vond lykt hrekur góða
orku á braut.
Þrífðu eldhússkápana reglu-
lega. Mælt er með að það sé
gert á hálfs árs fresti.
Skál með ferskum ávöxtum
og blómum fyllir eldhúsið og
matinn sem þar er jákvæðri
orku.
Tæmdu ísskápinn reglu-
lega. Það mun koma þér á
óvart hvaða dular-
fullu matarleifar
geta leynst í
honum.