Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 43
MÁNUDAGUR 25. febrúar 2008 19
folk@frettabladid.is
> HRINGLAUS CHERYL
Cheryl Cole mætti á afhendingu
Brit-verðlaunanna í London í síð-
ustu viku ásamt hljómsveit sinni,
Girls Aloud. Fingur hennar vöktu
sérstaka athygli í þetta skiptið, en
þar var hvergi að sjá 10 milljóna
króna giftingarhringinn sem fót-
boltamaðurinn Ashley Cole dró
á fingur hennar. Það þykir vera
merki um að Cheryl ætli sér ekki
að fyrirgefa honum margumrætt
framhjáhald og að hjónabandi
þeirra sé lokið.
Að undanförnu hefur litið út fyrir að Amy Wine-
house væri á batavegi en umgengnin í hótelher-
bergi hennar á hótelinu Riverbank Plaza í London
gefur annað til kynna. Breska blaðið The Sun
greinir frá því að starfsfólki hótelsins hafi brugð-
ið í brún þegar það kom inn í herbergi söngkon-
unnar til að þrífa síðastliðinn miðvikudag en því
hafði ekki verið hleypt inn í herbergið áður. Amy
hefur dvalið á hótelinu frá því hún sneri úr áfeng-
ismeðferð sinni í síðustu viku.
„Starfsfólkið komst loks inn í herbergið á
meðan Amy var á Brit-verðlaunahátíðinni. Það
var hrikalegt. Það var allt út í áfengi og sígarettu-
stubbum, algjörlega viðbjóðslegt. Það hafði ekki
verið skipt á rúminu frá því að hún kom,“ segir
heimildarmaður blaðsins. „Það voru óhrein nær-
föt úti um allt og herbergið lyktaði mjög illa. Þeir
hafa þegar þurft að skipta um hluta af parketinu
á gólfinu,“ segir heimildarmaðurinn, en kostn-
aðurinn við það var um 400 þúsund krónur.
„Hver veit hver lokaupphæðin verður?“ bætir
heimildarmaðurinn við.
Starfsfólki brá þó mest við þegar það fann
spegil sem hangið hafði á veggnum liggjandi á
gólfinu, en kókaíns er oftast neytt af sléttum
flötum eins og speglum. „Maður getur bara gisk-
að á til hvers spegillinn var notaður,“ segir
heimildarmaður The Sun, sem segir það
hafa tekið þrjár hótelþernur tvo klukku-
tíma að taka til í herberginu.
Amy eyðileggur hótelherbergi
SÓÐALEG Umgengni Amy Winehouse um hótel-
herbergi sitt á Riverbank Plaza þykir fyrir neðan
allar hellur, og hefur fólk áhyggjur af því að hún
sé aftur farin að neyta eiturlyfja.
Leikkonan Edie Falco hefur tekið
að sér hlutverk hjúkrunarkonu frá
New York í nýrri gamanþáttaröð
sem fer í framleiðslu
vestanhafs á næst-
unni. Talið er að
þættirnir verði
frumsýndir seint á
þessu ári. Falco er
þekktust fyrir
hlutverk sitt sem
mafíósafrúin Carm-
ella Soprano í
þáttunum The
Sopranos. Hún var sex sinnum
tilnefnd sem besta leikkonan á
Emmy-verðlaunahátíðinni og varð
hlutskörpust þrívegis. „Það var
yndislegt að leika í The Sopranos,“
sagði Falco. „Það hefur verið erfitt
að finna eitthvað sem höfðar til
mín en þessi persóna og handritið
eru afar spennandi.“
Úr Sopranos
í gamanþátt
EDIE FALCO
Griffin Road Trip 6.990 kr.
Þráðlaus mús 6.990 kr.
Þráðlaust lyklaborð 7.990 kr.
USB sjónvarpsmóttakari
12.990 kr.
Griffin iTrip 4.990 kr.
Apple iPod USB 3.490 kr.
Fí
to
n
/
S
ÍA
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
Fermingartilboðið gildir til 31. mars 2008
Tomma fyrir hvert ár!
MacBook hvít
2,0 GHz
Intel Core 2 Duo
80 GB HD / 1 GB vinnsluminni
13,3” hágljáa skjár
1280 x 800 díla upplausn
Combo Drive geisladrif
iSight myndavél
Fjarstýring
Íslenskt hnappaborð
2 ára neytendaábyrgð
13” MacBook á fermingartilboði
Þunn, þægileg og örugg. MacBook er ein af
þeim öflugustu. Með 2,0 GHz Intel Core 2 Duo
örgjörva og 1 GB vinnsluminni vinnur hún jafn
ljúflega með Mac OS X og Windows.
Með skínandi björtum 13,3” hágljáa breið-
tjaldsskjá er hún fullkomin fyrir þá sem vilja
almennilegan kraft í fallegri, einnar tommu
þykkri fullorðinni tölvu.
Áður 119.990 kr.99.990 kr.
TILBOÐ
99.990 kr.
Hafi einhver stúlka haldið að lífið
væri auðvelt með prinsi skjátlast
henni hrapallega því nú hefur Vil-
hjálmur ákveðið að slá ástinni á frest
og beðið unnustu sína Kate Middleton
að hinkra aðeins.
Í News of the World er sagt að Vilhjálmur hafi
óskað eftir því að Kate hafi lítið samband við
hann á þessu ári. Mun Vilhjálmur vilja einbeita
sér að hernum um stundarsakir en ku víst hafa
lofað stúlkunni að biðja hennar þegar hann
verður orðinn kóngur árið 2009. Samkvæmt
heimildum News of the World hefur Vilhjálm-
ur hins vegar reynt að drepa sambandið hægt
og rólega og forðast það eins og heitan eldinn
að vera í samskiptum við kærustuna sína.
„Þetta er svona „ég hringi í þig, þú mátt ekki
hringja í mig“-samband,“ hefur News of the
World eftir nafnlausum heimildarmanni
sínum.
Samband þeirra Vilhjálms og Kate hefur
verið nokkuð óstöðugt svo ekki sé meira sagt.
Þau hættu að vera saman í apríl á síðasta ári en
náðu aftur saman eftir stuttan aðskilnað. Þau
hafa hins vegar ekki sést mikið saman opinber-
lega eftir að hitnaði í kolunum aftur og nú virð-
ist Vilhjálmur vilja leika lausum hala. „Kate
vill bíða, á því leikur enginn vafi. Hún hefur
hins vegar miklar áhyggjur af því að Vilhjálm-
ur sé bara að reyna að losa sig við hana með
þessum hætti,“ segir náinn vinur Kate. „Hún
veit að biðin er áhætta en er reiðubúin að taka
hana enda er hjarta hennar bundið Vilhjálmi,“
bætir hann við.
News of the World greinir frá því að Vil-
hjálmur á eftir erfiðan kafla í herþjálfuninni
og vill fá að einbeita sér að honum. „Hann er
búinn að tjá Kate að ef þau komast yfir þetta
muni þau giftast á næsta ári,“ segir heimildar-
maður blaðsins.
Vilhjálmur vill bíða með bónorðið
SUNDUR OG SAMAN Vilhjálmur ætlar að taka sér
smáfrí frá unnustu sinni Kate og einbeita sér alfarið að
hernum. Kate ætlar að bíða eftir sínum manni.