Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 46
22 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
Frá framleiðendum Devils Wears Prada
Skemmtilegasta rómantíska gamanmynd
ársins með Katherine Heigl úr Knocked up
og Greys Anatomy í fantaformi.
Missið ekki af þessari!
FÓLK MEÐ ÓTRÚLEGA KRAFTA
SEM GETA BREYTT ÖLLU
KALLAST STÖKKVARAR!
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
14
7
16
7
14
7
27 DRESSES kl. 8 - 10
RAMBO kl. 5.50
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.50 ÍSLENSKT TAL
BRÚÐGUMINN kl. 8
JUMPER kl. 10
16
7
12
12
16
27 DRESSES kl.6 - 8.20 - 10.30
JUMPER kl.6 - 8.30 - 10.30
BEFORE THE DEVIL KNOWS kl.5.30 - 8 - 10.20
MEET THE SPARTANS kl.6 - 8 -10
27 DRESSES kl. 5.30 - 8 - 10.30
27 DRESSES LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
JUMPER kl. 6 - 8 - 10.10
MEET THE SPARTANS kl. 4 - 6 - 8
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.40 ÍSLENSKT TAL
CLOVERFIELD kl. 10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
THERE WILL BE BLOOD kl. 5.50 - 9
INTO THE WILD kl. 6 - 9
ATONEMENT kl. 5.30 - 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
STÓRKOSTLEG MYND Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
S.V. - MBL.B.B - 24 STUNDIR
drekktu betur
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
8 til Óskarsverðlaunatilnefningar
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 7
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 - 10:10 16
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 VIP
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
MR. MAGORIUMS.. kl. 5:50 L
SWEENEY TODD kl. 10:10 16
UNTRACEABLE kl. 8 16
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 7
STEP UP 2 kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 7
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10 L
JUMPER kl. 8 - 10:30 12
MR. MAGORIUMS... kl. 6 L
STEP UP 2 kl. 8 - 10:10 7
NO COUNTRY FOR OLD... kl. 10:10 L
JUMPER kl. 8 12
BRÚÐGUMINN sýnd lau og sun. 7
STEP UP 2 kl. 8 - 10 7
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
UNTRACEBLE kl. 10:30 16
STEP UP 2: THE STREETS kl. 8 7
CHARLIE WILSONS WAR kl. 10:10 12
RAMBO kl. 8 16
NO COUNTRY FOR... kl. 10 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
27 DRESSES kl. 8 og 10.10 L
RAMBO kl. 6, 8 og 10.10-P 16
JUMPER kl. 8 12
LOVEWRECKED kl. 6 L
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 ÍSL TAL L
2
- 24. Stundir
- V.J.V., Topp5.is
Alls horfðu 12,7 milljónir Bandaríkjamanna á sjónvarpsmyndina
Knight Rider sem er byggð á samefndum sjónvarpsþáttum frá
níunda áratugnum með David Hasselhoff í aðalhlutverki.
Myndin, sem er tveggja tíma löng, var sýnd á sama tíma
og hinir vinsælu þættir Dexter og Brothers and Sisters.
Kom það ekki að sök og varð myndin sú vinsælasta sem
hefur verið frumsýnd í sjónvarpi vestanhafs í þrjú ár.
Myndin fékk engu að síður misjafna dóma og töldu sumir
aðdáendur þáttanna að myndina vantaði þann neista sem
þættirnir höfðu. Vona aðdáendurnir að myndin sé aðeins
forsmekkurinn að því sem koma skal og að sjónvarpsþátta-
röð sé handan við hornið.
Sápuóperustjarnan Justin Bruening fetar í
fótspor Hasselhoffs í myndinni sem Mike
Traceur, fyrrverandi kappaksturshetja.
Ekur hann hinum talandi bíl Kitt og ljær
leikarinn Val Kilmer honum rödd sína.
Hljóp Kilmer í skarðið fyrir Will Arnett
úr þáttunum Arrested Development sem
hætti við verkefnið á síðustu stundu.
VAL KILMER Val Kilmer ljær bíln-
um Kitt rödd sína í myndinni.
DAVID HASSELHOFF
Strandvarðarhetj-
an fyrrverandi lék
aðalhlutverkið í
gömlu Knight Rider-
þáttunum.
Knight Rider langvinsælust
Það var þjóðleg stemning sem tók
á móti tónleikagestum í Laugar-
dalshöllinni á laugardagskvöldið.
Í anddyrinu var boðið upp á hákarl
og brennivín, harmonikkuleikari
skemmti gestum og glímukappar
tókust á í einu horninu.
Þursaflokkurinn hefur áður
verið endurvakinn til að spila í
Laugardalshöllinni. Það var á
Reykjavík Music Festival árið
2000. Þá var minna lagt undir og
þó að einhverjir hafi þar fengið
eina af sínum heitustu óskum upp-
fyllta þá voru þeir tónleikar að
mínu mati einkennilega ófullnægj-
andi. Nú var stefnt hærra, skrifað-
ar nýjar útsetningar og Caput hóp-
urinn fenginn til samstarfs.
Það voru hátt í þrjátíu manns á
sviði Laugardalshallarinnar. Þurs-
arnir sex voru þarna, Egill, Þórð-
ur, Tómas, Ágeir, Rúnar og Eyþór.
Caput hópurinn var við þetta tæki-
færi skipaður tuttugu manns, blás-
urum, strengjaleikurum og slag-
verksleikurum og fremstur á
sviðinu stóð svo stjórnandinn,
Guðni Franzson.
Tónleikarnir hófust á því að
Caput flutti Þursasíu, tónverk
samsett úr lögum Þursaflokksins
eftir Ríkarð Örn Pálsson. Í því var
aðallega leitað í lög af fyrstu
Þursa plötunni og Þursabiti og
þjóðlagastefin áberandi. Ágæt
upphitun. Að henni lokinni komu
svo Þursarnir sjálfir á sviðið og
byrjuðu á lokalaginu af Gæti eins
verið, Ranimosk. Dagskránni var
annars nokkuð bróðurlega skipt á
milli laga af hljóðversplötunum
þremur auk tveggja laga úr söng-
leiknum Gretti. Hún var flutt
nokkurn veginn í tímaröð.
Það var greinilegt að það var
mikill hugur í Þursum á þessum
tónleikum. Þeir áttu allir sín
augnablik á sviðinu, en mest áber-
andi var Egill sem lék á als oddi og
var í miklu stuði strax frá fyrsta
lagi. Hann söng af mikilli innlifun
og stóð oft upp frá píanóinu og
hoppaði og skakaði sér og sagði
skemmtisögur á milli laga.
Þessar nýju útsetningar á Þursa-
lögunum voru margar að svín-
virka. Hápunktar á dagskránni
voru margir og eiginlega hvergi
dauður punktur: Einsetumaður
einu sinni var mjög áhrifamikið,
Æri-Tobbi jafn magnað og áður
með snilldartakta Þórðar í mið-
punkti, Caput setti mikinn svip á
Sjö sinnum það sagt er mér sem
byrjaði á svölum saxófónblæstri
frá Sigurði Flosasyni og Jóel Páls-
syni. Bannfæring var mikilfeng-
legt í þessari stóru útsetningu og
það sama er hægt að segja um
Grafskript.
Vill einhver elska 49 ára gamlan
mann var í nettri kammerpopp-
útsetningu og Sérfræðingar segja í
hálfgerðum teknóbúningi. Eins og
áður segir: Eintómir töfrar og
hvergi dauður punktur. Síðasta
lagið á hinni eiginlegu dagskrá var
Gegnum holt og hæðir sem var
ágætlega sungið af Ragnheiði
Gröndal.
Eftir kröftugt uppklapp komu
Þursarnir aftur á svið án Caput og
tóku þrjú aukalög, Sigtryggur
vann, Nútímann og Gegnum holt
og hæðir öðru sinni. Þá hurfu þeir
af sviðinu en birtust á ný eftir enn
meira klapp og stapp og nú án Egils
og Tómas söng Jón er kræfur karl
og hraustur eftir að hafa blótað því
að „þurfa að vinna á þessum helvít-
is tónleikum kvöldið sem hann ætl-
aði að slappa af heima og horfa á
Eurovision“. Jón... byrjaði sem
polki, en fór svo út í gömlu góðu
pönkútgáfuna og um salinn fór enn
einn sæluhrollurinn... Fullkominn
endapunktur á frábærum tónleik-
um. Trausti Júlíusson
Mögnuð endurkoma Þursa
TÓNLEIKAR
Hinn íslenzki Þursaflokkur og
Caput
Laugardalshöll 23. febrúar.
★★★★★
30 ára afmælistónleikar Þursanna í
Laugardalshöllinni heppnuðust frá-
bærlega. Nýju útsetningarnar og sam-
starfið við Caput glæddu gömlu góðu
Þursalögin nýju lífi án þess að ræna
þau kraftinum og spilagleðinni sem
einkenndi upprunalegu útgáfurnar.