Fréttablaðið - 25.02.2008, Síða 50
26 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
Enski deildarbikarinn:
Tottenham-Chelsea 2-1
0-1 Didier Drogba (39.), 1-1 Dimitar Berbatov, víti
(70.), 2-1 Jonathan Woodgate (94.).
Enska úrvalsdeildin:
Reading-Aston Villa 1-2
0-1 Ashley Young (45.), 0-2 Marlon Harewood
(84.), 1-2 Nickey Shorey (90.)
Blackburn-Bolton 4-1
1-0 Benni McCarthy, víti (24.), 1-1 Kevin Davies
(51.), 2-1 Benni McCarthy, víti (67.), 3-1 David
Bentley (71.), 4-1 Morten Gamst Pedersen (90.)
N1-deild karla:
Fram-Haukar 32-37
Mörk Fram (skot): Andri Berg Haraldsson 8/1
(16/2), Haraldur Þorvarðarson 6 (6), Jóhann
Gunnar Einarsson 4 (6), Rúnar Kárason 4 (6),
Hjörtur Hinriksson 2 (3), Stefán Stefánsson 2
(3), Halldór Jóhann Sigfússon 2/1 (4/1), Björn
Guðmundsson 1 (1), Einar Ingi Hrafnsson 1 (2),
Jón Björgvin Pétursson 1 (2), Guðjón Finnur
Drengsson 1 (4)
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 9/1 (32/2)
28,1%, Magnús Gunnar Erlendsson 4 (18/2)
22,2%.
Hraðaupphlaup: 5 (Stefán 2, Andri, Haraldur,
Jóhann)
Fiskuð víti: 3 (Haraldur 2, Einar)
Utan vallar: 6 mínútur
Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 12/3
(16/4), Andri Stefan 10 (14). Elías Már Halldórs-
son 7 (9), Gunnar Berg Viktorsson 5 (8), Kári
Kristján Kristjánsson 1 (2), Jón Karl Björnsson 1
(2), Freyr Brynjarsson 1 (3)
Varin skot: Gísli Guðmundsson 9 (29) 31%,
Magnús Sigmundsson 6/1 (18/3) 33,3%.
Hraðaupphlaup: 11 (Elías 4, Sigurbergur 3,
Gunnar 2, Freyr, Andri)
Fiskuð víti: 4 (Kári 3, Andri)
Utan vallar: 4 mínútur
Afturelding-ÍBV 28-25
Mörk Aftureldingar (skot) : Hilmar Stefánsson
8/3 (9/3), Magnús Einarsson 6 (8), Daníel
Jónsson 4 (8), Einar Örn Guðmundsson 4 (9),
Haukur sigurvinsson 2 (5), Hrafn Ingvarsson 2
(5), Davíð Ágústsson 2 (4), Ásgeir Jónsson (1),
Jóhann Jóhannsson (1).
Varin skot : Davíð Svansson 9 (23/2) 39%,
Oliver Kiss 12/1 (21/2) 57%
Hraðaupphlaupsmörk : 6 (Hilmar 3, Davíð 2,
Einar Örn)
Fiskuð víti : 3 (Magnús 2, Daníel)
Utan vallar : 2 mínútur
Mörk ÍBV (skot) : Sergiy Trotsenko 10 (21),
Sigurður Bragason 7/3 (13/4), Leifur
Jóhannesson 3 (5), Zlivinas Grieze 3 (8), Grétar
Eyþórsson 1 (2), Sindri Haraldsson 1 (3),
Nikolaj Kulikov (1).
Varin skot : Kolbeinn Aron Ingibjargarson 12
(29/1) 41%, Friðrik Þór Sigmarsson 3
(14/2) 21%
Hraðaupphlaupsmörk : 2 (Leifur, Sigurður)
Fiskuð víti : 4 (Zilvinas 2, Nikolaj, Sigurður)
Utan vallar : 4 mínútur
ÚRSLIT
HANDBOLTI Haukar náðu fjögurra stiga forystu
á toppi N1 deildar karla á ný þegar liðið lagði
Fram með fimm marka mun, 37-32, í Safamýr-
inni. Sigur Hauka var öruggur eins og tölurn-
ar gefa til kynna í hröðum og skemmtilegum
leik.
Leikurinn var jafn framan af eða allt þar til
20 mínútur voru liðnar af leiknum. Haukar
skoruðu þá fjögur mörk í röð og náðu fimm
marka forskoti, 14-9. Forysta Hauka var
komin í átta mörk þegar tíu mínútur voru til
leiksloka, 23-31, og úrslitin ráðin.
Fram hefur yfirleitt leikið betur en þetta í
vetur. Vörn liðsins var eins og gatasigti þar
sem hún er jafnan sterkust fyrir, á miðjunni.
Sóknarleikurinn komst aldrei á flug þrátt
fyrir að liðið skoraði 32 mörk. Markvarslan
var engin.
Markvarslan var litlu betri hjá Haukum en
varnarleikur liðsins var mjög góður. Sóknar-
leikurinn var fínn en þeir Sigurbergur Sveins-
son og Andri Stefan fóru á kostum í leiknum.
Aron Kristjánsson, þjálfari Haukaliðsins,
var að vonum kampakátur í leikslok.
„Við vorum virkilega grimmir í byrjun og
ákveðnir í að gefa okkur alla í verkefnið. Ég
vil hrósa varnarleiknum okkar þar sem Arnar
Pétursson og Gunnar Berg binda þetta saman
á miðjunni og eiga frábæran leik. Sigurberg-
ur og Andri spila virkilega stóran leik sóknar-
lega og mér finnst liðið standa vel saman í
dag. Þetta var virkilega gott,“ sagði Aron
Kristjánsson kátur en hann vildi að lokum
hrósa ungum og óreyndum dómurum leiksins
þeim Herði Aðalsteinssyni og Gunnari Jarli
Jónssyni sem stóðu sig með mikilli prýði og
áttu hrósið svo sannarlega skilið.
- gmi
Fram hafði ekkert að gera í sterka Hauka sem komu í heimsókn í Safamýri og tóku öll stigin:
Haukar keyrðu Fram á kaf í Safamýrina
STERKUR Andri Stefan skoraði 10 mörk gegn Fröm-
urum úr 14 skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Afturelding var
þremur stigum fyrir ofan ÍBV
fyrir leikinn en bæði lið hafa háð
erfiða baráttu í N1-deildinni í
vetur. Leikurinn var því mjög
mikilvægur fyrir bæði lið.
Leikmenn Aftureldingar mættu
grimmir til leiks og höfðu
forystu í fyrri hálfleik. Liðið náði
mest sex marka forystu en
Eyjamenn skoruðu tvö síðustu
mörk hálfleiksins og staðan í
leikhléi 18-14.
ÍBV hóf seinni hálfleikinn
betur og þegar hálfleikurinn var
tæplega hálfnaður var munurinn
kominn niður í eitt mark.
Mosfellingar bættu aftur í og
juku forystuna og uppskáru að
lokum nokkuð þægilegan sigur,
28-25 og sitja Eyjamenn því einir
á botninum og fátt bendir til
annars en að þeir spili í
1.deild að ári.
Bjarki Sigurðsson þjálfari
Aftureldingar var ánægður í
leikslok. „Ég er mjög
sáttur með sigurinn og það var
nauðsynlegt fyrir okkur að hafa
sigur í þessum leik. Við
höfum verið að spila skelfilegan
handbolta og menn taka það
auðvitað inn á sig og það sýnir
karakter að halda út og vinna
þennan leik. Mér fannst við í raun
hafa þetta í hendi okkar
allan tímann,“ sagði Bjarki að
lokum. - sjj
N1-deild karla:
ÍBV tapaði í
Mosfellsbæ
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Tottenham höfðu loksins
ástæðu til þess að brosa í gær er þeirra lið lagði
Chelsea í úrslitum deildarbikarsins á Wembley. Það
var Jonathan Woodgate sem tryggði Spurs sigurinn
með marki í framlengingu. Didier Drogba kom
Chelsea yfir í leiknum en Dimitar Berbatov tryggði
Tottenham framlengingu með marki úr vítaspyrnu.
Hinn spænski stjóri Spurs, Juande Ramos, játaði
að sigurinn hefði verið sætur en hann tók við stjórn-
artaumunum hjá félaginu fyrir aðeins fjórum mán-
uðum.
„Það er gríðarlega ánægjulegt að vinna þennan
bikar, sérstaklega fyrir félagið og stuðningsmennina.
Það er langt síðan árangur náðist hjá þessu
félagi,“ sagði Ramos réttilega
enda vann Tottenham síðast
bikar árið 1999 og
þá þann sama og í
gær. „Spurs var
betra liðið á vellin-
um í dag og við
áttum sigurinn skil-
inn.“
Ramos var mjög
farsæll stjóri hjá
Sevilla á Spáni og hann
sagði þennan bikar sérstakan.
„Þessi titill er vissulega sérstak-
ur því við vorum að mæta liði sem
á að vera talsvert sterkari en við.
Svipað og þegar Sevilla lék gegn
Barcelona eða Real Madrid. Þetta er búin
að vera frábær reynsla og við viljum finna þessa
sigurtilfinningu oftar en munum samt ekki fagna of
lengi enda bíða okkar ærin verkefni,“ sagði Ramos
sem telur sig vera á réttri leið með liðið.
Woodgate játaði að hafa verið heppinn í sigurmark-
inu. „Ég fer nú ekki oft fram í horn en ég tók áhætt-
una í þetta skiptið og það borgaði sig. Ég fékk boltann
bara í hausinn og sem betur fer fór hann í markið.
Mér fannst við vera betri og vonandi getum við byggt
ofan á þetta á næsta ári,“ sagði Woodgate.
henry@frettabladid.is
Woodgate tryggði sigurinn
Hinn meiðslahrjáði varnarmaður, Jonathan Woodgate, tryggði Tottenham
sætan sigur á Chelsea, 2-1, í úrslitum enska deildarbikarsins í gær.
SÆTT Jonathan Woodgate hefur mætt miklu mót-
læti á sínum ferli en hann uppskar loksins í gær
með sætu sigurmarki gegn Chelsea. NORDIC PHOTOS/AFP