Fréttablaðið - 25.02.2008, Page 54
30 25. febrúar 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. blikk 6. pot 8. titill 9. fálm 11. ekki
12. rými 14. beikon 16. tveir eins
17. mánuður 18. viður 20. átt 21.
ættgöfgi.
LÓÐRÉTT
1. tind 3. hvort 4. fargið 5. þreyta
7. raddbönd 10. blekking 13. er 15.
ávöxtur 16. frændbálkur 19. pfn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. depl, 6. ot, 8. frú, 9. pat,
11. ei, 12. pláss, 14. flesk, 16. ææ, 17.
maí, 18. tré, 20. nv, 21. tign.
LÓÐRÉTT: 1. topp, 3. ef, 4. pressan,
5. lúi, 7. talfæri, 10. tál, 13. sem, 15.
kíví, 16. ætt, 19. ég.
„Það er nú bara Bylgjan alltaf.
Það eru nokkuð góð lög þar. En
svo skipti ég yfir á Rás 1 til að
hlusta á fréttirnar.“
Valur Richter meindýraeyðir
Dragnótabáturinn Jón á Hofi sem
gerður var út frá Þorlákshöfn
verður í aðalhlutverki í kvik-
myndinni Brim. Kvikmyndafé-
lagið ZikZak hefur fengið bátinn
að láni frá Þormóði ramma á
Siglufirði og leikstjóri myndar-
innar, Árni Ólafur Ásgeirsson, er
kampakátur með gripinn. „Hann
er alveg geðveikur og mikið
sjarmatröll,“ segir Árni en mynd-
in er byggð á samnefndu leikriti
Jóns Atla Jónassonar sem Vest-
ur port setti upp fyrir nokkru.
Myndin gerist að mestu leyti um
borð í línubát og lýsir lífi og
örlögum sjómanna. Með helstu
hlutverk í myndinni fer Vest-
ur ports-leikhópurinn eins og
hann leggur sig: Gísli Örn Garð-
arsson, Nína Dögg Filippusdóttir,
Ingvar E. Sigurðsson, Björn
Hlynur Haraldsson, Víkingur
Kristjánsson, Ólafur Egill Egils-
son og Ólafur Darri.
Segja má að ZikZak hafi frestað
andláti Jóns á Hofi en hann var
afskrifaður strax eftir áramót og
var á leiðinni til útlanda í brota-
járn. Þau verða reyndar örlög
bátsins þegar tökum er lokið en
það ætti að verða í kringum maí.
Að sögn Árna er báturinn vel
siglingarhæfur þrátt fyrir að
vera gamall og ryðgaður.
„En það hentar okkur í sjálfu
sér ákaflega vel,“ segir Árni en
ráðgert er að hefja tökur á kvik-
myndinni um miðjan mars. Leik-
hópurinn fer síðan á sjó í byrjun
næsta mánaðar sem er hluti af
æfingaferlinu og lærir að gera
að. Árni segir að nú sé verið að
vinna hörðum höndum að því að
finna pláss á hinum og þessum
bátum en sjálfur fór hann á sjó
fyrir áramót og undi sér bara
nokkuð vel.
Árni hefur einnig verið að
kynna sér málfar sjómanna og
lífsvenjur og verið tíður gestur á
Kaffivagninum úti á Granda.
„Við ætlum síðan að reyna fá
alvöruskipstjóra og vélstjóra til
að vera með okkur um borð og
þiggja ráðleggingar frá þeim,“
útskýrir Árni. -fgg
Jón á Hofi í aðalhlutverki í Brimi
Ljósmyndarinn Áslaug Snorradóttir
hefur myndað nokkra íslenska hönnuði
fyrir grein sem mun birtast í blaðinu
WWDScoop í lok mars. Tímaritið tilheyr-
ir útgáfurisanum Condé Nast, sem gefur
út blöðin Vogue, W magazine og Vanity
Fair, svo eitthvað sé nefnt. Það kemur út
fjórum sinnum á ári og er helgað umfjöll-
un um tísku og hönnun um heim
allan.
„Ég var einmitt að tala við blaða-
konuna Emilie Marsh áðan, hún er
að velja myndirnar í greinina,“
segir Áslaug, sem tók myndirnar
í nóvember síðastliðnum, þegar
Emilie dvaldist hér á landi yfir
helgi. Þær hittu þá fyrir fjöld-
ann allan af íslenskum hönn-
uðum. „Emilie var rosalega
spennt fyrir Steinunni Sig-
urðardóttur fatahönnuði, enda skrifar
hún aðallega um tísku,“ segir Áslaug.
Áslaug myndaði einnig Guðrúnu Lilju
Gunnlaugsdóttur, Sigríði Sigurjónsdótt-
ur og Snæfríði Þorsteinsdóttur, ljósa-
hönnuðinn Aðalstein Stefánsson, Stein-
grím Eyfjörð og tónlistarkonuna Urði
sem oftar en ekki er kennd við Gusgus,
svo einhverjir séu nefndir.
Greinin í WWDScoop verður í
formi nokkurs konar ferðahand-
bókar um Ísland, þar sem
ferðalöngum verða gefin góð
ráð um hvar sé best að gista og snæða á
landinu. Þeirri grein mun fylgja úttekt á
þeim íslensku hönnuðum sem að mati
WWDScoop skara fram úr.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Áslaug
tekur að sér verkefni fyrir útgáfurisann,
en bæði hún og eiginmaður hennar, ljós-
myndarinn Páll Stefánsson, hafa áður
myndað fyrir Condé Nast. „Hann hefur
samt gert meira af því,“ segir Áslaug,
sem er nýkomin heim úr vinnuferð til
Indlands. „Það var ótrúlega gef-
andi, en ég er ennþá svona að
lenda,“ segir hún. - sun
Tekur myndir fyrir erlent tískutímarit
MYNDAÐI FYRIR WWDSCOOP Áslaug
Snorradóttir myndaði nokkra íslenska
hönnuði fyrir grein sem mun væntan-
lega birtast í hönnunar- og tískutímaritinu
WWDScoop.
VAKTI ATHYGLI Söngkon-
an Urður vakti athygli
blaðakonunnar Emilie
Marsh sem dvaldist
hér á landi í nóvem-
ber síðastliðnum.
BJARGA LÍFI BÁTSINS Jón á Hofi átti
að fara í brotajárn en þeirri ferð hans
hefur verið frestað vegna þátttöku hans
í kvikmynd.
KAMPAKÁTUR MEÐ DALLINN Árni Ólafur
um borð í Jóni sem hann segir vera
mikið sjarmatröll.
Föndurverslun
Síðumúli 15
S: 553-1800
Sjón er sögu ríkari
„Glymur hæst í tómri tunnu,“
sagði söngvarinn Friðrik Ómar um
leið og tilkynnt var að þjóðin hafði
kosið This is my life sem framlag
Íslendinga til Eurovision. Orð Frið-
riks voru stór og söngvarinn segist
standa við þau. Hann tekur skýrt
fram að þeim hafi ekki verið beint
til helstu keppinautanna, Merced-
ez Club, heldur áhangenda hljóm-
sveitarinnar. Friðrik segir að sá
hópur sem studdi Mercedez Club
hafi látið óviðurkvæmileg orð falla
þegar hann og Regína Ósk stigu á
og af sviðinu. „Systkini mín og
börnin þeirra voru þarna rétt hjá
og þau tóku þetta mjög svo til sín,“
segir Friðrik.„Auðvitað vona ég að
þetta kasti ekki einhverri rýrð á
okkar sigur. Og ég get lofað því að
við ætlum að vera þjóð okkar til
sóma,“ bætir Friðrik við.
Hlynur Áskelsson, betur þekkt-
ur sem Ceres 4, segist harma ef
áhangendur Mercedez Club hafi
hagað sér á þennan hátt sem Frið-
rik lýsir. Hann bætir því hins
vegar við að Mercedez Club hafi
einnig mátt þola háðsglósur og
hvers kyns fordómafulla umræðu.
Þeir hafi meðal annars ranglega
verið sakaðir um að nota ólögleg
efni á borð við stera. „Slík umræða
er bara eitthvað sem maður verð-
ur að þola þegar maður tekur þátt
í jafn opinberri keppni og Eurov-
ision er. Ég hef aldrei notað ein-
hver ólögleg efni til að ná meiri
árangri en verð hins vegar að
útskýra slíkar glósur fyrir fjöl-
skyldunni minni,“ segir Hlynur.
Egill Gillz Einarsson vísar
orðum Friðriks Ómars til föður-
húsanna. Segir að þeim hafi aug-
ljóslega verið beint til hljómsveit-
arinnar. Hann telur af og frá að
einhverjir úr þeirra aðdáendahópi
hafi sýnt af sér ódrengilega fram-
komu. Hann segir Friðrik því vera
að kasta steinum úr glerhúsi.
„Friðrik er einhver mesta vælu -
skjóða sem ég veit um og hann ætti
að hætta þessu væli,“ segir Egill
sem er handviss um, í fullri alvöru,
að This is my life eigi ekki eftir að
ná stigi í Serbíu.
Sigur Eurobandsins var hins
vegar stór; lagið hlaut 50 þúsund
atkvæði en Ho ho ho-smellur Barða
Jóhannssonar 23 þúsund. Aðrir
fengu minna en alls greiddu 111
þúsund atkvæði.
freyrgigja@frettabladid.is
FRIÐRIK ÓMAR: STENDUR VIÐ STÓRU ORÐIN
Áhangendur Mercedez
Club sakaðir um fordóma
SÆTUR SIGUR Friðrik Ómar fer ekki ofan af því að sigurinn hafi verið einn sá sætasti á ferlinum.
Eurovision-keppnin var bæði
löng og ströng og var augljóst að
keppendur höfðu lagt líf og sál í
framlag sitt. En einna helst vakti
athygli að Rebekka Kolbeins-
dóttir, söngkona Mercedez Club,
komst einhvern veginn aldrei í takt
við lagið. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafði
þetta einnig komið
fyrir á einni general-
prufunni og þá voru
einhverjar tæknilegar
ambögur í gangi. Eftir
að þær voru lagaðar
gekk allt eins og í sögu
en tæknin virðist
eitthvað hafa verið að
stríða kraftajötnun-
um á úrslitakvöldinu
sjálfu.
Og meira af Eurovision því þrátt
fyrir að Mercedez Club hafi ekki
farið með sigur af hólmi þá trylltu
þeir lýðinn á Nasa seinna um
kvöldið. Hins vegar var kvöldinu
ekki lokið hjá Hlyni Áskelssyni,
Ceres 4, eftir þá tónleika. Þegar
hann rölti heim upp Laugaveginn
lenti hann í útistöðum við hóp
stráka sem reyndu að slá til hans.
Að sögn sjónarvotta bar Hlynur sig
vel, komst frá högginu að mestu
en fékk þó hnefann í ennið. Ekki
sá á söngvaranum sem gerði ekki
stórmál úr þessu.
En þrátt fyrir að glamúrinn og
gleðin hafi verið fyrirferðarmikil í
Smáralindinni þá örlaði á nokkurri
óánægju meðal lagahöfundanna
og flytjenda með Þórhall Gunn-
arsson & Co hjá RÚV. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var ekki
boðið upp á áfenga drykki eins
og venja er í slíkum keppnum og
þurftu þeir sem vildu róa taugarnar
með Bakkusi frænda að kaupa sér
bjór á sjö hundruð krónur.
Fór þetta illa í keppend-
urna sem töldu milljón-
irnar í sms-atkvæðum
á meðan þeir vættu
kverkarnar með vatni
og djúsi. -fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Auglýsingasími
– Mest lesið