Fréttablaðið - 25.02.2008, Side 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
25. febrúar, 56. dagur ársins.
8.51 13.42 18.32
8.42 13.26 18.11
Margir líta þá hornauga sem tala um fræðigreinar sínar á
skiljanlegan hátt. Það þótti ekki
fínt í fræðikreðsum hér áður að
vera í talsambandi við illa þveg-
inn almúgann. Þetta er þó að
breytast. En lúshægt. Svo er
Jóhanni Húss og fylgismönnum
hans fyrir að þakka að prestar
víða um lönd tóku að tala móður-
málið við sóknarbörn sín í stað
þess að halda yfir þeim ræður á
latínu. Það gerðist þó ekki fyrr en
eftir að kirkjan hafði verið starf-
andi í meira en eitt þúsund og
fjögur hundruð ár.
ÞAÐ ER mikil náðargáfa að vera
svo skýr í hugsun og vel máli far-
inn að geta lýst flóknum og sér-
fræðilegum hlutum þannig að
allur almenningur skilji og hrífist
með. Frægasti gáfumaður nútím-
ans, Stephen Hawking, skrifar
svo skemmtilega um svarthol og
afstæðiskenningu að bækur hans
Saga tímans í stuttu máli og
Alheimurinn í hnotskurn eru met-
sölubækur. Venjulegir með-
al skussar í fræðunum og sofandi
sauðir öfunda vitanlega þá kol-
lega sína sem bera skykkju lær-
dómsins svona létt á herðum.
FLESTAR stéttir í Vestur-Evr-
ópu hafa að einhverju leyti varp-
að af sér þeim leyndarhjúpi og
alvörudrunga sem miðaldamenn
notuðu til að hylja andlega fátækt
sína. Þessi þróun virðist þó hafa
farið fyrir ofan garð og neðan hjá
íslenskum stjórnmálamönnum
sem virðast vera í innbyrðis sam-
keppni um hver geti gert sig
hulduhrútslegastan í tali og alvar-
legastan í fasi.
TIL MARKS um þetta er sú
hneykslan sem íslenskur ráð-
herra hefur vakið fyrir að túlka á
hreinskilinn og skiljanlegan máta
það sem gerist baksviðs í þeim
helgileik stjórnmálanna sem
stjórnmálamenn leika til þess að
lokka auðtrúa almenning til að
treysta sér fyrir lífi sínu og eign-
um. Það fer hrollur um þingheim
við þá léttúð að læsa ekki laun-
helgunum að næturlagi fyrir
almenningi. Og forsætisráðherr-
ann muldrar ógnandi í barminn:
„Ráðherrar eiga að vinna á dag-
inn en sofa á nóttunni.“ Þessi
djúpvitra setning getur þýtt allt
frá „ætlarðu að koma okkur öllum
í vandræði?“ yfir í „hún Lóa litla
á Brú var lagleg mær“.
JÓHANN HÚSS var brenndur
6. júlí árið 1415. Fyrir að tala
tungumál sem almenningur
skildi.
Sofandi
hulduhrútar