Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 7

Fréttablaðið - 02.04.2008, Qupperneq 7
or.is • reykjavik.is Þetta er ekki aprílgabb! Ókeypis hleðsla: Bankastræti • Kringlan • Smáralind ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 02 96 0 4/ 08 Orkuveitan opnaði í gær „orkupósta“ í samvinnu við Reykjavíkurborg þar sem boðið er upp á ókeypis rafhleðslu og frí bílastæði fyrir eigendur rafmagnsbíla. Orkupóstarnir eru staðsettir á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Bankastræti, við Kringluna og Smáralind. Með því að bjóða ókeypis rafhleðslu og frí stæði vilja Orkuveitan og Reykjavíkurborg hvetja almenning til að velja vistvænni bíla og leggja þannig sitt af mörkum til hreinna umhverfis og meiri lífsgæða. Með grænum skrefum Reykjavíkurborgar eru ökumenn visthæfra bifreiða verðlaunaðir með ókeypis stæðum í miðborginni í 90 mínútur í senn. Orkuveitan er leiðandi fyrirtæki í umhverfisvernd og hefur sett sér það markmið að vistvænni bílar verði um 55% af bílaflota hennar í árslok 2013. Njótið vel! Ókeypis áfylling á bílinn alla daga Eigendur rafbíla fá lykil að orkupóstum í afgreiðslu Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 og bílastæðaskífur hjá Reykjavíkurborg í Borgartúni 10 -12.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.