Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 18
[ ]Húsbíll er heimili á hjólum og þægilegur ferðamáti fyrir þá sem vilja vera frjálsir ferða sinna. Fylltu tankinn og skelltu þér í hringferð. Lúxus leigubíll GULI LEIGUBÍLLINN ER ÓRJÚF- ANLEGUR HLUTI AF NEW YORK- BORG EN NÚ KEMUR NÝR BÍLL Í FLOTANN. Ford kynnti á dögunum nýja gerð leigubíla. Að því er kemur fram á vef FÍB er hann ólíkur þeim leigubílum sem Banda- ríkjamenn eiga að venjast. Í New York-borg eru um tólf þúsund leigubílar, stórir um sig en plásslitlir. Nýi bíllinn tekur þrjá farþega og er með renni- hurðum. Farþegar geta horft á sjónvarp í bílnum sem er að auki búinn þráðlausri net- og símatengingu. - rat Um tólf þúsund leigubílar eru í New York-borg og nú er von á endunýjun í bílaflotanum. Tvinnbílar í Formúlu 1 RÓTTÆKAR BREYTINGAR VERÐA Á FORMÚLU 1 Á NÆSTA ÁRI. Max Mosley, forseti FIA, heildar- samtaka bifreiðaeigendafélaga og bílasportsins, vill stuðla að orkusparnaði í Formúlu 1. Fyrsta skrefið í þá átt verður stigið árið 2009 þegar tvinnkerfi (hybrid) verður innleitt í Formúlu 1. „Ekki er lengur lögð áhersla á að þróa sjálfar vélarnar heldur verður meira vélarafl eingöngu framkallað með betri nýtingu eldsneytis,“ sagði Mosley á bíla- sýningu í Genf í byrjun mánaðar- ins. - ve Litir valdir eftir starfi ÓLÍKAR STARFSTÉTTIR VELJA ÓLÍKA LITI Á EINKABÍLANA. Í flestum heimshlutum eru lögreglubílar í bláum tónum og í nýlegri könnun á Bretlandi kemur fram að lögreglumenn eru hrifn- astir af bláum bílum til einkanota líka, enda stundum kallaðir „blástakkar“ meðal gárunga. Í könnuninni kom fram annar sannleikur og nokkuð ólíklegri, en þar dreymir útfararstjóra einna helst um skærgulan fararkost. Þykir sú niðurstaða sálrænt merki um undirliggjandi þrá til að komast sem lengst frá svörtum líkbílum sem annars lita daga þeirra drunga. Í samanburði kom fram að lögreglumenn eru sjö prósentum líklegri til að aka bláum bíl utan vakta á lögreglustöðinni en útfar- arstjórar eru 115 prósent líklegri til að velja sér gular bifreiðar í sunnudagsbíltúrinn. - þlg Volvo stefnir að framleiðslu háþróaðra farartækja á næstu árum. Næsta kynslóð rafmagnstvíorku- bíla er komin á teikniborðið hjá Volvo og stefnt er að því að fjölga slíkum bílum verulega á vegum Svíþjóðar. Þá er átt við bíla sem nýta annars vegar E85 sem er etanól og rafmagn úr geymum sem hlaða má með húsarafmagni. Volvo hefur því gert samstarfssamning við raforkufyrirtækið Vattenfall í Svíþjóð, bílaframleiðandann Saab, Battery and FuelCells Sweden AB (ETC) og sænsk yfirvöld um þró- unina. Volvo framleiðir nú þegar bíla sem nýta Etanol sem orkugjafa en betur má ef duga skal og endan- legt markmið er að hanna sjálf- bærar bifreiðar er haft eftir Fredrik Arp, forstjóra Volvo Car Corporation. Hann vill taka for- ystu í heiminum í innleiðingu umhverfisvænna farartækja. -gun Háþróuð farartæki Volvo hefur þegar framleitt bíla sem nýta etanól sem orkugjafa. Aukin ökuréttindi Næsta námskeið byrjar 22. ágúst Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 Meirapróf- Nýlegir kennslubílar Næsta námskeið hefst 9.ap íl UPPLÝSINGAR O is ing Mjódd Staðsetning í Mjódd www.ovs.is upplýsingar og innritun í síma 588-1414 Vinnuvélanámskeið á pólsku Næsta námskeið hefst 4. mars n.k. Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Bremsuhlutir í alla jeppa og pickupa Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Diskar Klossar Dælur Borðar Ísetningarþjónusta P R E N T S N IÐ E H F .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.