Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 38
30 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 GAMLA MYNDIN LÁRÉTT 2. flagg 6. klaki 8. laug 9. metaskál 11. tveir eins 12. graftrarbólga 14. rými 16. ætíð 17. gagn 18. hrópa 20. ekki heldur 21. svall. LÓÐRÉTT 1. ávöxtur 3. í röð 4. þarfsemd 5. svelg 7. dragpípa 10. hlaup 13. þjófnaður 15. bakhluti 16. haf 19. járnstein. LAUSN LÁRÉTT: 2. fáni, 6. ís, 8. bað, 9. vog, 11. uu, 12. ígerð, 14. pláss, 16. sí, 17. nyt, 18. æpa, 20. né, 21. rall. LÓÐRÉTT: 1. kíví, 3. áb, 4. nauðsyn, 5. iðu, 7. sogpípa, 10. gel, 13. rán, 15. stél, 16. sær, 19. al. Hinn fágaði og vinsæli útvarpsmaður, Heiðar Austmann, lenti í óskemmti- legri lífsreynslu á dögunum. Hann var á heimleið eftir velheppnað frí á Kanaríeyj- um. En þegar flugvélin átti að hefja sig til flugs vantaði tvo farþega. Reynt var að kalla þá upp en allt kom fyrir ekki. Og þegar loks átti að koma töskum þeirra úr farangursrýminu gáfu dauðadrukk- in eldri hjón sig fram. Þau voru til almennra leiðinda og var ógeðsleg af þeim „áfengisfýlan“. Karlinn hafði, að sögn Heiðars, vit á því að láta lítið fyrir sér fara en hins vegar vildi „hundleiðinleg kerlingarálkan“ ekki hætta sínu djammi og angraði flugfreyjur og farþega á heimleið. Þannig að vafasamri framgöngu Íslendinga í sólarlandareisum sínum er ekki lokið. Bílflautur eru í mismunandi tón- tegundum, þótt algengast sé að flautað sé í fís. Þegar ýmsar tónteg- undir renna saman í langvarandi baul, eins og gerðist við mótmæli bílstjóra í gær, verður til hræðilegur hávaði sem fer sínu verst í lagvisst og listrænt fólk. Því var engin furða að Egill Helgason hlypi í lyfjaskáp- inn og næði í íbúfen-glas, eins og lesa mátti um á bloggi hans í gær, enda er hann mikill músíkáhuga- maður eins og oft má lesa um á sama bloggi. -jbg/glh FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég hef verið í takt við tísku þessa tíma, með þessa barta. Væntanlega sit ég þarna í forstjórastól hjá Sölu varnar- liðs eigna.“ Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgar- fulltrúi. Myndin er tekin í janúar 1978. „Ég skil vel að þeir séu skúffaðir í HÍ. Að við skyldum koma þarna í heimsókn og rassskella þá,“ segir Kristján Finnur Sæmundsson, nem- andi hjá Háskóla Reykjavíkur. Nýverið fór fram hin árlega hönnunarkeppni verkfræðinema við Háskóla Íslands en það var lið frá HR sem kom, sá og sigraði. Samkvæmt reglum verður í það minnsta einn liðsmanna að vera skráður í HÍ en þeir hjá HR áttu ráð við því. „Kærastan mín var skráð fyrir liðinu en hún er í félagsráðgjöf hjá HÍ. Við gerðum þetta mjög augljóst með því að skíra liðið Dóra og aðstoðarmennirnir,“ segir Kristján Finnur en ásamt honum voru í lið- inu þeir: Stefán Þór Bjarnason, Kristján Arnþór Grétarsson, Valdi- mar Ómarsson og Hjörtur Már Gestsson. Rík hefð er fyrir því að keppnin sé sýnd hjá RÚV og er þetta í 16. skipti sem það stendur til. Þáttur- inn er jafnan, með undantekningar- tilvikum, á dagskrá að vori sam- kvæmt óskum Háskóla Íslands ef vera má að hann laði að nema við verkfræðideildina. Nú telja HR- ingar sig hafa fyrir því heimildir að sýningu þáttarins verði frestað til hausts og segja samsæriskenninga- smiðir það vera til að vekja síður athygli á ágæti tæknináms HR. Jóhann Hlíðar Harðarson markaðs- stjóri HR segist vissulega hafa heyrt af þessu án þess að hann hafi nokkuð fyrir sér. „En mér þætti forvitnilegt að vita af hverju er búið að fresta sýningu þáttarins. En því verða þeir hjá RÚV og HÍ að svara. Mér kemur reyndar á óvart að HÍ hafi eitthvað um það að segja hvenær þátturinn er sýndur,“ segir Jóhann Hlíðar. Umsjá með þættinum hefur Sig- urður H. Richter og hann hefur ekki heyrt af frestun: „Þetta eru fréttir fyrir mig. Við erum að klippa þáttinn núna,“ segir Sigurður en þátturinn hefur verið á dagskrá frá árinu 1994. Fyrsta keppnin var haldin 1993. Í langflestum tilvikum hefur verið sýnt frá keppninni að vori, „ég held að HÍ vilji sýna hann þá skömmu áður en nemendur inn- ritast,“ utan í fyrra en þá voru kosn- ingar til að draga vinnslu þáttarins. „Hræddur er ég um að þessi sam særiskenning sé langsótt,“ segir Sigurður og kímir. En ætlar að spyrjast fyrir um málið. Frétta- blaðið heyrði einnig í sjálfum dag- skrárstjóranum til að kanna þetta dularfulla mál og Þórhallur Gunn- arsson var afdráttarlaus að vanda: „Alltaf gaman að góðum sam sær- iskenningum en oftast standast þær ekki. Og þessi er tóm þvæla.“ Þórhallur segir þáttinn einfaldlega ekki tilbúinn, sjálfur eigi hann eftir að sjá þáttinn og svo mun hann taka afstöðu til þess hvar þættinum verður fundinn staður í dagskrá. jakob@frettabladid.is ÞÓRHALLUR GUNNARSSON: SAMSÆRISKENNINGIN ER TÓM ÞVÆLA Sigurreifir verkfræðinemar telja lítið gert úr sigri sínum Varðskipið Týr og TF-Líf, þyrla Landhelgis- gæslunnar, léku stórt hlutverk í tökum kvikmyndarinnar Brim sem fram fóru rétt fyrir utan Reykjavíkurhöfn í gærmorgun. Auk varðskipsins og þyrlunnar var tökuliðið um borð í annarri þyrlu sem sveimaði yfir öllu. Tökur á Brim hafa nú staðið yfir í níu daga og bjóst Árni Ólafur Ásgeirsson leikstjóri við að tuttugu dagar væru til viðbótar. Gærdag- urinn væri þó án nokkurs vafa stærsti dagurinn í tökuferlinu enda lokaatriði kvikmyndarinnar. „Ég vil ekkert gefa of mikið upp en fólk ætti að vera fært um að geta í eyðurnar,“ segir hann. Óhætt er hægt að segja að aðstandendur kvikmyndarinnar leggi sig alla fram við að fanga þvottekta andrúmsloft hjá hetjum hafsins. Mikið efni hefur verið tekið úti á hafi og þurfti tökuliðið meðal annars að glíma við fimm metra ölduhæð. Sem leiddi af sér sjóveiki og önnur óþægindi hjá mörgum um borð. „Að stíga ölduna eitt og sér er full vinna; að taka síðan upp kvikmynd í ofanálag er annað og það er eiginlega merkilegt hvað okkur hefur gengið vel,“ segir Árni en hann hefur notið leiðsagnar Indriða Björnssonar skipstjóra og fleiri manna. „Við lærum eitthvað nýtt í hverri viku og hvert gullkorn- ið hefur hrotið af vörum þeirra.“ Nánar verður fjallað um tökur á Brim í Fréttablað- inu á morgun. - fgg Landhelgisgæslan í stóru hlutverki í Brim HARÐSNÚIÐ LIÐ HR-INGA Sá orðrómur er uppi að sýningu þáttar frá keppninni hafi verið frestað til að hlífa Háskóla Íslands. Kristján stendur við borðsendann. Einar Bárðarson, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Bjarni Ármannsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson eru meðal þeirra íslensku stjarna sem koma fram í nýrri auglýsingaherferð Unicef. Snýst hún um að vekja fólk til meðvitundar um hversu heppin íslenska þjóðin er með hreina vatnið. Íslenska auglýsingastofan hefur veg og vanda af gerð auglýs- ingarinnar en það er Styrmir Sigurðsson sem leikstýr- ir henni. Að sögn Flóka Guðmundssonar hjá Unicef hefst svokölluð vatnsvika á föstudag en hún er samstarfsverkefni Unicef og Orkuveitu Reykja- víkur. „Fjórtán veitingastaðir á höfuðborginni og einn staður úti á landi ætla að bjóða gestum sínum að kaupa kranavatnið með matnum, sem hingað til hefur verið ókeypis, gegn vægu verði,“ segir Flóki, en peningurinn mun renna til þeirra barna sem eiga hvað erfiðast með að komast yfir heilsusamlegt vatn. Að sögn Flóka er talið að yfir sex þúsund börn deyi daglega vegna skorts á hreinu vatni. Verkefnið verður formlega kynnt á morgun og segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, að samfara því verði hleypt af stokkunum heimasíðu, vatnsvika.is, þar sem áhuga- samir geti kynnt sér allt um verkefnið og látið sitt af hendi rakna. - fgg Þjóðþekkt fólk auglýsir vatn SAMAN Í AUGLÝSINGU Þau Þorvaldur Bjarni, Bjarni Ármannsson og Ilmur Kristjánsdóttir koma fram í nýrri auglýsingu Unicef. Í STJÓRNKLEFANUM Magni Ágústsson tökumaður, og Árni Ólafur, leikstjóri Brim, gefa skipanir í gegnum talstöðvar um borð í þyrlu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.