Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2008 13 ÖRYGGISMÁL Smíði nýrrar DASH-8 eftirlitsflugvélar fyrir Landhelgis- gæsluna gengur vel og er á áætlun. Smíðin fer fram í verk- smiðjum flugvélaframleiðandans Bombardier í Kanada. Skrokkur vélarinnar er samsettur og vængirnir tilbúnir til ásetningar. Reiknað er með að flugvélin, sem er af gerðinni Dash-8 Q300, verði flughæf um miðjan maí næstkomandi, en þá verður hafist handa við að breyta vélinni í eftirlitsflugvél. Sú breyting felst í uppsetningu eftirlitstækja og björgunarbúnaðar og er reiknað með að flugvélin verði afhent fullbúin í júlí 2009. - shá Flugvél Landhelgisgæslunnar: Smíði vélarinn- ar á áætlun SAMSETNING Vélin er óðum að taka á sig mynd og verður flughæf í maí. MYND/HÖSKULDUR ÓLAFSSON UMBOÐSMAÐUR Ein stúlknanna sem kært hefur Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins, fyrir kynferðislega misneytingu hefur kvartað undan Birgi Ottóssyni, forstöðumanni þjónustudeildar Félagsbústaða, til umboðsmanns Alþingis. Hún sakar Birgi um einelti og að hafa fjarlægt eigur sínar úr íbúð sem hún var með á vegum Félagsbústaða. Í kærunni segir að Birgir hafi brotið stjórnarskrárrétt stúlkunnar þar sem hann hafi farið inn í íbúðina án dómsúrskurðar. Hann hafi ekki haft samband við fjölskyldu hennar. Í bréfinu til umboðsmanns eru erfiðleikar stúlkunnar raktir og áhrif Byrgisumfjöllun- ar á hana. Hún hafi búið í Fannarfelli 12 þegar kviknaði í út frá rafmagni í íbúðinni. Hún hafi legið á spítala í nokkra daga og síðan verið svipt sjálfræði „til að leggja hana inn á áfengis- og vímuefnadeildina og var hún þar í níu daga“, segir í kvörtuninni sem móðir stúlkunnar skrifar. Þar kemur jafnframt fram að stúlkan hafi getað gengið út af lokaðri deild, án sjálfræðis og húsnæð- is. Síðan fékk stúlkan annað húsnæði og var búslóð hennar flutt þangað inn, en síðan borin út. Hún fór í meðferð og var í kjölfar- ið dæmd í 18 mánaða fangelsi, sem hún afplánar nú. - jss Byrgisstúlka kvartar til umboðsmanns Alþingis út af Félagsbústöðum: Segir starfsmann leggja sig í einelti FANNARFELL Allmargar íbúðir á vegum Félagsbústaða eru í Fannarfelli. UNGVERJALAND, AP Talsmenn minni stjórnarflokksins í Ungverjalandi, Bandalags frjálsra demókrata, sögðu í gær að hann myndi slíta samstarfinu við Sósíalistaflokk Ferenc Gyurcsanys forsætisráð- herra hinn 30. apríl. Sósíalistar muni eftir það stjórna án þing- meirihluta. Þingmenn frjálsra demókrata segjast áfram munu styðja þær aðgerðir stjórnarinnar sem miða að því að búa landið undir þátttöku í Efnahags- og myntbandalagi Evrópusambandsins. Á mánudag sagði forysta frjálsra demókrata að þeir hygðust yfirgefa stjórnina þar sem þeir litu svo á að Gyurcsany styddi ekki lengur umbótaáformin. - aa Stjórnin í Ungverjalandi: Samstarfinu slitið 30. apríl UMHVERFISMÁL Umhverfisdagar eru nú haldnir í Háskóla Íslands í fyrsta skipti og standa út morgun- daginn. Tilgangurinn er að auka umhverfisvitund meðal stúdenta og starfsfólks skólans. Á umhverfisdögum má meðal annars finna opna kynningarbása á Háskólatorgi, kvikmyndasýningu og umræður, fyrirlestra, spurn- ingakeppni um umhverfismál og uppskeruhátíð á Grand Rokki. Að Umhverfisdögum standa Gaia – félag meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, Stúdentaráð Háskóla Íslands og Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við HÍ. - ghs Háskóli Íslands: Umhverfisdag- ar í fyrsta skipti NOREGUR Rán var framið í verð- mætaflutningum í Noregi í gær. Starfsmönnum vaktþjónustufyrir- tækis, sem hafa það hlutverk að flytja peninga úr næturöryggis- hólfum fyrirtækja, var ógnað með vopnum og þeir fengnir til að sækja peninga á þremur stöðum í nágrenni Óslóar. Að því loknu voru þeir bundnir og skildir eftir, að sögn norska blaðsins VG. Talið er að ræningjarnir hafi haft jafnvirði um 150 milljónir króna upp úr krafsinu. Rán í bönkum og í verðmæta- flutningum hafa verið tíð í Svíþjóð að undanförnu en ekki í Noregi. - ghs Vopnað rán í Noregi: Andvirði 150 milljóna rænt Ríkulegur staðalbúnaður Galvaniseruð grind Evrópskar þrýstibremsur Radial dekk / 13” álfelgur Góð fjöðrun, hentar vel á ísl. vegum Útdraganleg trappa við inngang Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk) 50 mm kúlutengi 220v tengill (blár skv. reglugerð) Útvarp með geislaspilara, hátalarar inni og úti Upphitaðar 12 cm springdýnur Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti 2 gaskútar Gasviðvörunarkerfi Öflug Truma combi 4 miðstöð m/heitu vatni Stór loftlúga m/ þriggja hraða viftu Skyggðir gluggar 2 feta geymsluhólf Stórt farangurshólf Voldugir öryggisarmar fyrir þak og tjald 1 x færanlegt lesljós með viftu 110 amp rafgeymir Heitt og kalt vatn, tengt Rafmagns vatnsdæla 86 lítra vatnstankur Klósett með hengi Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla, fylgihluti og margt fleira. Fossháls 5-7 110 Reykjavík Sími 551 5600 Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is CD spilari/ Útvarp vatn tengt Heitt/kalt Fjöðrun f. ísl. aðstæður Evrópskar Þrýstibremsur Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Lau kl. 10.00-17.00 Sun kl. 12.00-16.00 Rockwood Fellihýsin 2008 Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Rockwood fellihýsum helgina 5.-6. apríl í verslun okkar að Fosshálsi 5-7. Rockwood fellihýsin eru glæsileg og sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum. Með evrópskum þrýstibremsum, galvaniseraðri grind og hlaðin staðalbúnaði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.