Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 02.04.2008, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2008 27 FÓTBOLTI Stórleikur kvöldsins í Meistaradeildinni verður á Emir- ates-leikvanginum þegar ensku liðin Arsenal og Liverpool mætast en Chelsea ferðast til Tyrklands og mætir Fenerbahçe. Arsenal og Liverpool hafa marga hildina háð í gegnum tíðina en fyrir tilviljun munu liðin nú mætast þrisvar sinnum í röð á sjö dögum, tvisvar í Meistaradeild- inni og einu sinni í ensku úrvals- deildinni. Jafntefli var niðurstað- an í leik liðanna á Anfield í ensku úrvalsdeildinni fyrr í vetur en Arsenal vann þrjár af fjórum við- ureignum liðanna í fyrra og sló Liverpool út úr báðum bikar- keppnunum á Englandi. Kolo Touré, varnarmaður Arsenal, telur í því samhengi að Liverpool óttist Arsenal. „Þetta verða rosalegir leikir en ég held að leikmenn Liverpool séu minnugir þess hvernig fór á síð- ustu leiktíð og séu því smeykir við að mæta okkur. Lið okkar er líka mun sterkara núna,“ sagði Touré sigurviss í viðtali við Sky. Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, blés á ummæli Tourés. „Erum við hræddir við Arsenal? Nei, alls ekki. Við spilum alltaf með miklu sjálfstrausti í Meist- aradeildinni og ég held að við munum vinna viðureignina ef við spilum af sömu ákefð og við höfum gert í Evrópu til þessa,“ sagði Ben- itez á blaðamannafundi í gær. Chelsea er talið mun sigur- stranglegra fyrir einvígið við Fen- erbahçe en tyrkneska liðið kom mörgum í opna skjöldu með því að slá spænska liðið Sevilla út í sex- tán liða úrslitunum. Nicolas Anelka, framherji Chelsea sem lék áður með Fenerbahçe, varar þó liðsfélaga sína við fyrir leik lið- anna í Istanbúl í kvöld. „Það verður allt brjálað á leik- vanginum og við verðum að spila okkar besta leik til þess að ná úrslitum þar sem Fenerbahçe er með mjög sterka leikmenn innan- borðs. Það kemur mér alls ekki á óvart að tyrkneska liðið sé komið þetta langt í keppninni,“ sagði Anelka. - óþ Stríðið á milli Arsenal og Liverpool hefst í kvöld: Fyrsta orrustan af þremur ALLT LAGT UNDIR Arsenal og Liverpool mætast í þremur mikilvægum leikjum á næstu sjö dögum. NORDIC PHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.