Fréttablaðið - 02.04.2008, Page 12

Fréttablaðið - 02.04.2008, Page 12
 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR 20 08 ÍS L E N S K A S IA .I S L B I 41 80 9 0 4. 20 08 Fjármálakvöld Landsbankans Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning. Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjár- málum heimilanna, fjárfestingartækifærum og skatta- málum. Fjármálakvöldin hefjast kl. 20 og eru öllum opin án endurgjalds. Í boði eru kaffi og veitingar. Dagskrá fjármálakvölda 24. jan. Höfðabakki Fjármál heimilisins 7. feb. Akranes Fjárfestingartækifærin 21. feb. Laugavegur 77 Skattamál 6. mars Mjódd Skattamál 27. mars Vesturbær Fjárfestingartækifærin 3. apríl Ísafjörður Fjármál heimilisins 10. apríl Fjarðargata, Hafnarfj. Fjárfestingartækifærin Fjármál heimilisins Rætt er um heimilisbókhald, sparnaðarleiðir, vaxtakjör og hvaða lánamöguleikar henta hverju sinni. Skráning á fjármálakvöldin fer fram á landsbanki.is eða í Ráðgjafa- og þjónustuveri í síma 410 4000. Nánari upplýsingar á www.landsbanki.is T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA A ug lý si ng as ím i – Mest lesið STJÓRNMÁL Fyrsti fundur nefndar ríkisstjórnarinnar um þróun Evrópumála var haldinn í Ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. Alþingismennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylk- ingarinnar, og Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki eru formenn en aðrir nefndarmenn eru fulltrúar flokkanna á Alþingi og aðilar vinnu- markaðar og viðskiptalífs. Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fylgdu nefndinni úr hlaði í gær. „Við nálgumst verkefnið af víð- sýni,“ sagði Ágúst Ólafur í samtali við Fréttablaðið að fundi loknum. „Evrópumálin eru stærsta álitamál samtímans og þó aðild sé ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar eru allir sammála um að fylgjast þurfi vel með.“ Hann bendir á að í sáttmála ríkisstjórnarinnar segi að opinská umræða eigi að fara fram um mála- flokkinn. Nefndin starfi á þeim grunni. Henni er ætlað að stuðla að aukinni hagsmunagæslu tengdri Evrópustarfi, athuga vel hvernig hagsmunum Íslendinga verði best borgið gagnvart Evrópusamband- inu og að fylgjast með þróun mála í Evrópu og leggja mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga. Gert er ráð fyrir að nefndin skili ríkisstjórn skýrslu árlega en starfs- áætlun verður rædd á næsta fundi. - bþs Tvíhöfðanefnd stjórnvalda sem vaktar Evrópumálin tók til starfa í gær: Stærsta álitamál samtímans TVÍHÖFÐANEFNDIN Ágúst Ól. Ágústsson, formaður Samf. Illugi Gunnarsson, formaður Sjálfst.fl. Steingrímur Sigurgeirsson Sjálfst.fl. Bryndís Hlöðverðsdóttir Samf. Katrín Jakobsdóttir VG Birkir Jón Jónsson, Framsóknarfl. Jón Magnússon Frjálslyndi fl. Ingimundur Sigurpálsson SA Gylfi Arnbjörnsson ASÍ Erlendur Hjaltason Viðskiptaráð Páll H. Hannesson BSRBFYLGT ÚR HLAÐI Utanríkis- og for- sætisráðherrar afhentu Evrópunefnd stjórnvalda erindisbréf í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.