Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 28
20 2. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Tipp á netinu! Snilldar-
uppátæki! Þetta breytir
öllu!
Hvað mein-
arðu? Ertu
að vinna?
Nei... ekki sem
stendur! En nú
verður þetta
allt miklu
einfaldara!
Já, þú munt tapa
ennþá meiri
peningum!
Nei! Ég slepp
við að dröslast
út í öllum
veðrum til að
skila seðlunum! Ég
get verið heima,
heima, heima!
En verður ekki erfitt
að krumpa tölvuna
saman í lítinn bolta
þegar þú tapar?
Bára...
Getur
þú farið
burt,
burt,
burt?
Af öllu því heiladauða
sem þið hafið tekið ykkur
fyrir hendur hlýtur bíltúr í
óskráðum bíl á almanna-
færi að vera það versta!
Ég hef bara þrjár
spurningar:
Meiddust þið
eitthvað?
Meiddust
aðrir?
Nei.
Nei.
Og þriðja
spurningin?
Hvernig er
að keyra
hann?
Lalli. Dill dill dill dill
dill dill dill
Vá.
Notaðu
það eða
misstu það.
Þegar þú hefur vanist pelanum
eru brjóstagjafardagar mínir
taldir...
Jahúúú! snökt!
Eins og þú sérð eru þetta
blendnar tilfinningar.
GRAS Partí í kvöld?
Þegar þetta er skrifað
hefur fólk enn sjö og
hálfan tíma til þess að
ljúga einhverjum and-
skotanum að mér.
Hingað til hef ég
sloppið nokkuð vel, og
ekki einu sinni verið látin
hringja í Rauða torgið eða Dominos
þegar ég held að ég sé að hringja í
alþingismann. Fyrir tilstilli illkvitt-
inna vinnufélaga hefur það gerst.
Það var að vísu ekki einu sinni á
fyrsta apríl, sem undirstrikar bara
punktinn með þessu: ég er svo auð-
trúa að ég má ekki við þessum
árans degi lyga og pretta.
Fyrir margt löngu, þegar ég var
ekki enn búin að koma mér upp
snefli af tortryggni, lét ástkær fjöl-
skyldumeðlimur mig hlaupa upp og
niður fjórar hæðir í blokk, til þess
eins að hlæja að mér þegar ég kom
móð og másandi upp stigann aftur
og hafði ekki fundið garðskófluna
eða grillpinnann sem ég átti að
sækja. Fyrir það fyrsta er þetta
náttúrulega mannvonska, sama
hvað mánaðardag dagatalið sýnir. Í
öðru lagi er þetta eitt af þessum
hundleiðinlegu og hvað mig varðar
gjörsamlega húmorslausu apríl-
göbbum sem einkenna þennan dag
því miður. Þau aprílgöbb sem eru
aðeins flóknari verða hins vegar
yfirleitt til þess að ég sé svart af
einhverjum ástæðum öðrum en
mæði. Fyrir nokkrum árum fékk ég
til dæmis næstum því taugaáfall af
hryllingi þegar ég fékk sms frá eig-
anda barsins sem ég vann á, sem
var eitthvað á þessa leið: „Ég veit
þú ert að stela af mér. Ég hef sann-
anir fyrir því. Láttu aldrei sjá þig
hér framar.“ Eftir að hafa haft and-
arteppu í fimm mínútur og verið
nærri bæði yfirliði og uppköstum
tók ég símann upp skjálfandi hönd-
um til að hrekja þessar hræðilegu
ásakanir. Þegar símanum var svar-
að heyrðist bara hlátur. Ég var nær
dauða en lífi.
Sjö tímar og korter eftir og ég er
guðs lifandi fegin að þessi dagur er
að verða búinn. Nenni hvorki að
hlaupa á milli hæða eða fá andar-
teppur. Nú er ég farin að hitta vin-
konu mína á toppi Hvannadals-
hnjúks, hún er víst að bíða eftir
mér þar með pikknikkkörfu.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hjartsláttur og hlaup
SUNNA DÍS MÁSDÓTTIR ER EKKI SÉRLEGA HRIFIN AF FYRSTA APRÍL
30. mars - uppselt
3. april
4. april
10. april
11. april
17. april
18. april
23. april
24. april
Framsækið
samfélag með
álver á Bakka
Opinn borgarafundur um verkefnið Framsækið samfélag
með álver á Bakka, verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl,
kl. 20:00-22:00 á Fosshótelinu, Ketilsbraut 22, Húsavík.
Fulltrúar Norðurþings, Alcoa, HRV, Landsvirkjunar og
Landsnets kynna á fundinum undirbúning og stöðu þessa
mikilvæga verkefnis og svara fyrirspurnum íbúa.
Dagskrá
Fundarsetning
Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings
Norðurþing, staða mála og næstu verkefni
Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga
Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslu
Gaukur Hjartarson, skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings
Orkuflutningar
Árni Jón Elíasson, sérfræðingur, Landsneti
Orkuöflun
Árni Gunnarsson, forstöðumaður jarðhita, Landsvirkjun Power
Undirbúningsrannsóknir vegna álvers
Arnór Þórir Sigfússon, HRV
Grunnur að styrkingu atvinnulífs
á Norðausturlandi – álver á Bakka
Kristján Þ. Halldórsson, verkefnisstjóri samfélagsmála
hjá Alcoa á Norðurlandi
Spurningar og svör
Samantekt og fundarslit
Bergur Elías Ágústsson
Fundarstjóri:
Erna Björnsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Norðurþings
NORÐURÞING