Fréttablaðið - 02.04.2008, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 2. apríl 2008 21
Óperustúdíó Íslensku óperunnar
er í fullum undirbúningi um þess-
ar mundir og verður frumsýning á
Così fan tutte (Allar eru þær eins!)
eftir W.A. Mozart, tekin er fyrir að
þessu sinni, sunnudaginn 6. apríl
næstkomandi. Glitnir er aðalbak-
hjarl Óperustúdíós Íslensku óper-
unnar fjórða árið í röð og var
samningur þess efnis undirritaður
í liðinni viku. Lárus Welding, for-
stjóri Glitnis, og Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, stjórnarmaður í Menning-
arsjóði Glitnis, undirrituðu
samninginn fyrir hönd Glitnis
ásamt Stefáni Baldurssyni, óperu-
stjóra Íslensku óperunnar. „Við
erum afskaplega ánægð með sam-
starfið við Íslensku óperuna í
gegnum árin,“ sagði Lárus Weld-
ing við undirritunina. „Við erum
sérstaklega stolt af því að styðja
ungt og hæfileikaríkt tónlistarfólk
og hvetja það til dáða.“
Óperustúdíóið var fyrst starf-
rækt vorið 2004 og er þetta því í
fimmta sinn sem Íslenska óperan
stendur fyrir verkefninu. Óperu-
stúdíóið er vettvangur innan
Íslensku óperunnar þar sem langt
komnir og hæfileikaríkir söng-
nemendur syngja öll hlutverk og
kór í óperuuppfærslu og tónlistar-
nemendur skipa ennfremur hljóm-
sveitina. Listræn stjórn er hins
vegar í höndum atvinnumanna og
gefst nemendunum þannig kostur
á að fá glögga innsýn í hið viða-
mikla verkefni sem uppsetning
óperu er. Alls verða fjórar sýning-
ar á óperunni, 6., 9., 11. og 13.
apríl. - pbb
Glitnir styður óperu
TÓNLIST Stefán Baldursson óperustjóri, Sigrún Hjálmtýsdóttur og Lárus Welding við
undirritun samningsins. MYND/ÍSLENSKA ÓPERAN
Út er kominn nýr geisladiskur sax-ófónleikarans Sigurðar Flosason-
ar; Blátt ljós. Diskurinn er sjálfstætt
framhald Blárra skugga sem komu
út síðastliðið haust og hlutu frá-
bærar viðtökur. Sami kvartett leikur
hér, en hann skipa auk Sigurðar
framverðir elstu starfandi kynslóðar
íslenskra djasstónlistarmanna, þeir
Þórir Baldursson á Hammond-orgel,
Jón Páll Bjarnason á gítar og Pétur
Östlund á trommur. Á nýja disknum
eru níu lög, öll eftir Sigurð, en þau
voru samin sérstaklega fyrir þessa
hljómsveit og einstaklingana sem
hana skipa. Tónlistin er blúskennd
og byggir að nokkru leyti á gamalli
hefð samruna djass- og blústónlist-
ar. Diskurinn var tekinn upp í hljóð-
veri FÍH í júní og september 2007.
Hljóðritun annaðist Hafþór Karls-
son. Diskinn prýða ljósmyndir eftir
Guðmund Albertsson og Nökkva
Elíasson. Dimma gefur út.
NÝIR DISKAR
Eftirfarandi leiðrétting við leikdóm
Páls Baldvins Baldvinssonar um
leiksýningu Möguleikhússins á
Aðventu hefur borist Fréttablaðinu
frá Pétri Eggerz: „Í leikdómi um
sýningu Möguleikhússins á Aðventu
segir að bæði ríki og borg hafi látið
af stuðningi til starfsemi leikhúss-
ins á yfirstandandi ári. Hér er ekki
rétt farið með. Hið rétta er að við
úthlutun Menntamálaráðuneytis á
fé til sjálfstæðra leikhúsa sem fram
fer samkvæmt tillögum Leiklistarráðs
hlaut Möguleikhúsið í fyrsta sinn í
fjórtán ár engan stuðning þaðan,
hvorki í formi starfslauna né beins
fjárstuðnings. Reykjavíkurborg styrkir
Möguleikhúsið hins vegar um þrjár
milljónir króna í ár og er það sam-
kvæmt þriggja ára starfssamningi.
Sá samningur var endurnýjaður fyrir
rúmu ári og lækkaði þá um 25 pró-
sent frá því sem áður var. Mennta-
málaráðuneytið hefur nú veitt
Möguleikhúsinu 2 milljónir króna til
reksturs leikhússins á yfirstandandi
ári. Samtals hefur Möguleikhúsið því
hlotið 5 milljónir króna til reksturs
og uppsetninga leikverka í ár. Það er
ljóst að þessi stuðningur dugir hvergi
nærri fyrir óbreyttum áframhaldandi
rekstri og stefnir því allt í að Mögu-
leikhúsið flytji úr húsnæði því sem
það hefur yfir að ráða við Hlemm
síðar á árinu og dragi verulega úr
allri starfsemi. Þá segir á öðrum stað
í dómnum „Í inngangsorðum verks-
ins er okkur sagt fyrirmunað að skilja
fjárgæslu á vetrum. Okkar tímar
skynji ekki þá miklu vá sem vofði yfir
fjármönnum í vetrarveðrum.“ Þessar
fullyrðingar er hvergi að finna í texta
sýningarinnar og eru því alfarið túlk-
un gagnrýnandans á verkinu.“
LEIÐRÉTTING
LEIKHÚS Pétur Eggerz