Fréttablaðið - 02.04.2008, Side 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Nú hafa stórkaupmenn sent út kaldrifjaða orðsendingu um
hroðalegar verðhækkanir sem
augsjáanlega koma okkur illa.
Margir munu bíta á jaxlinn og
aðlagast eins og áður en ekki allir
hafa svigrúm til þess. Í þessu spili
erum við eins og átthagabundnir
leiguliðar í þjónustu óðalsbónda
sem ákveður álögurnar eftir eigin
hentugleikum. Tortryggni stétta-
skiptingarinnar er svo auðvakin
að umsvifalaust fara af stað sögur
um gráðuga kaupmenn sem nýta
sér ástandið til að hækka verð
umfram þörf. Ekki hvarflar samt
að galeiðuþrælunum að leggja
árar í bát, til þess erum við of
tamin.
FYRIR rúmum tveimur áratugum
stóð þjóðin líka frammi fyrir ógn-
vekjandi verðbólgubylgju. Þá var
einmitt fundin upp þjóðarsáttin
sem reyndist haldgott verkfæri í
ölduganginum og greidd með
kjaraskerðingum launafólks sem
var mjög handhægt. Þessarar
gömlu þjóðarsáttar er samt minnst
með nokkurri hlýju því hún var
yfirlýst, hafði göfugt markmið og
bar bæði fallegt nafn og árangur.
Nú væri upplagt að blása til nýrr-
ar þjóðarsáttar. Að þessu sinni
yrði hún í boði banka og fjármála-
stofnana, olíufélaga, niðurgreiddr-
ar matvælaframleiðslu ríkisins og
stórkaupmanna sem tækju á sig
kjaraskerðingu í nafni réttlætis-
ins. Einmitt.
EF til vill höfum við alþýðan haft
samviskubit í laumi yfir aukinni
velsæld undanfarinna ára, okkur
finnst við ekki alveg hafa átt þetta
skilið. Einhvern veginn trúðum
við alltaf innst inni að gæðin yrðu
frá okkur tekin fyrir rest. Alveg
eins og við vissum alveg að lækk-
un matarskattsins yrði hirt.
Kannski var uppreisnareðli for-
feðranna barið niður í móðuharð-
indunum því síðan þá höfum við í
mesta lagi kunnað að tuða. Engum
dettur í hug að fjölmenna niður á
torg með kröfuspjöld, hertaka
útvarpsstöðvarnar og brenna
íslenska fánann fyrir framan
stjórnarráðið.
EN hey, eitt getum við gert! Rifj-
að upp vannýtta auðlind, hófsem-
ina sem er æðst allra dyggða.
Getum búið til nýtt trend sem felst
í því að skera niður efnislegan
óþarfa; upplifað unað skortsins og
velt okkur upp úr rómantíkinni.
Með samtakamætti gætum við
sjálf skapað nýja þjóðarsátt án
lögboða frá yfirvaldi. Það er stund-
um gott að láta sig vanta. Einkum
ef það er að eigin vali.
Æðst allra
dyggða
6.41 13.31 20.23
6.22 13.16 20.12
Í dag er miðvikudagurinn 2.
apríl, 93. dagur ársins.
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
12
87
0
3/
08
Athyglin er á
Avensis
Upplifðu Avensis í dag
Það getur verið erfitt að einbeita sér að hversdagslegum hlutum þegar
maður hefur kynnst Avensis. Hugurinn er alltaf fullur af tilhlökkun fyrir
næstu ökuferð. Þetta er skemmtilegt vandamál. Ennþá skemmtilegra er að
njóta reynslunnar og upplifa útlit bílsins, auk allra þeirra þæginda sem
einkenna Avensis meira en nokkru sinni fyrr.
Avensis verður ekki lýst með orðum.
Komdu og reynsluaktu Avensis í dag.
Ps. Ekki gleyma að þú komst á öðrum bíl í reynsluaksturinn.
Verð frá 3.345.000 kr.*
*Verð miðast við Avensis Wagon Sol - 5 dyra.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070