Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 1

Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI híbýli - baðherbergiMÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Ekkert er heimili án bóka. Í bókahillum Erdnu Varðardóttur, aðstoðarskólastjóra MCI Biblíu- skólans, standa Biblíur frá öllum heimshornum, en eftirlætið er útkrotuð Biblía frá unglingsár- unum. lega vegna þess hve hún var stelpuleg; hvít með gyllt- um krossi,“ segir Erdna sem ásamt eiginmanni sínum safnar Biblíum og á orðið merkilegt safn hinnar merku bókar í stofunni heima„Við ferðum t Guðs heilaga orð Ernda Varðardóttir í sófanum heima með Biblíuna góðu frá unglingsárunum og fartölvuna sína, en þetta tvennt fylgir henni daglega heima. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA SYNT Á VEGGNUMReynir Sýrusson húsgagna-hönnuður hefur hannað fiskabúr með veggfest-ingu sem skapar líf í stofunni. HEIMILI 2 HÁSÆTI SMÁFÓLKSINSVandasamt getur verið að velja barna-stól þar sem úrvalið er mikið og ýmsar útfærslur í boði. HEIMILI 3 Aukin ökuréttindi Meirapróf- Nýlegir kennslubílar UPPLÝSINGAR O is ing MjóddStaðsetning í Mjóddwww.ovs.is upplýsingar og innritun í síma 588-1414 VinnuvélanámskeiðNæsta námskeið hefst 11. apríl n.k. Við stöndum upp úr Allt sem þú þarft... ...alla daga 40,09% 33,18% 63,07% Fréttablaðið er með 57,32% meiri lestur en 24 stundir og 90,08% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað m.v. allt landið 18–49 ára skv. könnun Capacent 1. nóv. 2007–31. jan. 2008 Fréttablaðið 24 stundir M orgunblaðið Sími: 512 5000 MÁNUDAGUR 7. apríl 2008 — 94. tölublað — 8. árgangur VEÐRIÐ Í DAG VÍÐA SKÝ Á HIMNI Í dag verða suðvestan 5-10 m/s norðvestan til annars hægari. Dálítil súld á landinu vestanverðu og líka norðan til síð- degis. Annars þurrt og bjart með köflum. Hiti 1-7 stig, svalast austast. VEÐUR 4 4 3 2 34 HEILBRIGÐISMÁL Alvarlegur lækna- skortur er yfirvofandi á lands- byggðinni innan fárra ára. Fjöldi lækna hættir sökum aldurs á næst- unni. Nokkrar stöður hafa verið auglýstar árum saman án þess að tekist hafi að manna þær. Heil- brigðisyfirvöld hafa ekki sýnt vandanum tilhlýðilega athygli, að mati formanns Félags lækna á landsbyggðinni, sem segir málið komið í óefni. Óttar Ármannsson, formaður Félags lækna á landsbyggðinni, segir ljóst að í óefni stefni með nýliðun lækna á landsbyggðinni. Hann tekur Heilbrigðisstofnun Austurlands sem dæmi þar sem hefur verið auglýst föst staða við stofnunina í mörg ár án þess að sótt hafi verið um hana. „Þar er meðalaldur starfandi lækna 55 ár og tveir af hverjum þremur lækn- um við stofnunina hætta á næstu tíu árum sökum aldurs.“ Að óbreyttu segir Óttar framtíð- arsýnina vera að fáir eldri læknar verði starfandi úti á landi en aðrar stöður verði mannaðar af ungum og reynslulitlum læknum. „Þetta er grafalvarlegt mál. Ef ungur læknir þarf að starfa einn getur það skapað óöryggi hjá honum jafnt sem þeim sem hann á að þjóna.“ Óttar minnir á að munur- inn á læknisþjónustu á höfuðborg- arsvæðinu og landsbyggðinni sé afar mikill. Á landsbyggðinni þurfi heimilislæknar að sinna bráða- tilfellum ólíkt því sem almennt gerist þar sem fullkomin sjúkra- hús eru skammt undan. „Þetta gerir meiri kröfur til læknis sem er í hrópandi ósamræmi við þá þróun að stöður séu mannaðar af unglæknum.“ Sigurður Guðmundsson land- læknir segir hugsanlegan lækna- skort vissulega áhyggjuefni. „Ég er þó bjartsýnn því áhugi lækna- nema á heimilislækningum hefur aukist. Í því felast sóknarfæri. Ef við getum fléttað framhaldsnám í heimilislækningum saman við stöður á landsbyggðinni aukast líkur á að við eignumst fleiri góða dreifbýlislækna.“ Sigurður segir að heilsugæslan taki við átta af hverjum tíu sem leita til læknis. „Við verðum að átta okkur á því og efla hana til sam- ræmis.“ Spurður hvort heilbrigðisyfir- völd séu meðvituð um vandann og hafi rætt hann við félag lækna á landsbyggðinni segir Óttar að svo sé ekki. „Það hefur aðallega verið fjallað um mönnunarvandann í Reykjavík þrátt fyrir að hann sé Yfirvofandi lækna- skortur úti á landi Margir læknar á landsbyggðinni hætta störfum innan fárra ára sökum aldurs. Lausar stöður hafa verið auglýstar árum saman án þess að um þær sé sótt. Landlæknir bindur vonir við aukinn áhuga á námi í heimilislækningum. ERDNA VARÐARDÓTTIR Biblíur á heimilinu frá öllum heimshornum heimili Í MIÐJU BLAÐSINS HÍBÝLI Ný tilbrigði við gömul stef á baðherberginu Sérblað um híbýli og baðherbergi FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Góður liðsstyrkur Ung og upprennandi frönsk leikkona í næstu kvikmynd Dags Kára. FÓLK 34 Býður upp myndir á ný Pétur Þór Gunnarsson heldur fyrsta uppboð Gallerí Borgar í langan tíma. FÓLK 34 Svo fleygði rannsóknum fram ADHD-sam- tökin 20 ára. TÍMAMÓT 18 Sex í röð Ragna Ing- ólfsdóttir varð í gær Íslands- meistari í bad- minton sjötta árið í röð. ÍÞRÓTTIR 30 Handklæðaofnar Caleido Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá10 -15 NOREGUR Nýleg rannsókn list- fræðinga við Háskólann í Ósló hefur leitt í ljós að lögreglu- og tolleftirlitsmenn í Noregi hafi litla sem enga þjálfun í að þekkja listmuni og geri því listaverka- og fornleifaþjófum auðvelt að flytja stolna muni um landið. Samkvæmt dagblaðinu Afton- posten telja listfræðingarnir að slappt eftirlit í Noregi hafi leitt til þess að fornmunir sem stolið var úr þjóðminjasafninu í Írak árið 2003 hafi verið fluttir til Noregs í stórum stíl og þaðan seldir til annarra vestrænna landa. - vþ Ný rannsókn listfræðinga: Gott að smygla list til Noregs UMHVERFISMÁL Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins sinnti þremur útköllum vegna sinubruna í gærmorgun. Í Heiðmörk var kveikt í sinu skammt frá bænum Hvammi og var þar nokkur eldur. Þá var kveikt í sinu á Nónhæð í Garðabæ þar sem töluverður eldur komst nokkuð nálægt íbúðarhúsum. Loks var kveikt í sinu skammt frá hesthúsum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Ekki urðu miklar skemmdir vegna brunanna og er það þakkað skjótum viðbrögðum slökkviliðsins. - ovd Annríki hjá slökkviliðinu: Þrír sinubrunar í gærmorgun BRETLAND, AP Mótmæli brutust út víða um London í gær þegar ólympíueldurinn var borinn í gegnum borgina. Nokkrum sinn- um kom til handalögmála milli lögreglu og mótmælenda og voru rúmlega þrjátíu hand- teknir. Mótmælendurnir reyndu meðal annars að ná kyndlinum úr höndum eins kyndilberans og einnig að slökkva eldinn með slökkvitæki. Heyra mátti mót- mælendurna hrópa slagorð til stuðnings sjálfstæðisbaráttu Tíbeta og sjá mátti skilti sem hvöttu Kínverja til samningsum- leitana við Dalai Lama. Vegna mótmælanna þurfti að breyta áætlaðri ferð með kyndil- inn um borgina. Fjölmargir mót- mælendur komu saman þar sem áætlað var að Fu Ying, sendiherra Kína í Bretlandi, tæki við kyndl- inum og því þurfti að að færa athöfnina fyrirvaralaust í annað hverfi til að forðast átök. - vþ Hörð mótmæli urðu í London í gær gegn kínverskum stjórnvöldum: Tekist á um ólympíueldinn HLAUPIÐ MEÐ ELDINN Til handalögmála kom á milli lögreglu og mótmælenda þegar ólympíueldurinn var borinn í gegnum London í gær. NORDICPHOTOS/AFP TÉKKLAND Marketa Vachova, sextug afgreiðslukona í matvöru- verkslun, kom í veg fyrir rán á dögunum með því að bjóða vopnuðum ræningja í te og kökur. Marketa útskýrir að þrátt fyrir skammbyssu og Spiderman- grímu hafi henni sýnst ungi maðurinn hinn efnilegasti. „Þegar ég byrjaði að spjalla við hann slakaði hann á og bað mig afsökunar. Hann ætlar að koma í heimsókn til mín og ræða sín vandamál,“ segir Marketa. - shá Kom í veg fyrir vopnað rán: Bauð ræningja í te og kökur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.