Fréttablaðið - 07.04.2008, Síða 2
2 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott á mánudegi
Fiskibollur
Þú sparar 400 kr.
598kr.kg.
LÍKAMSÁRÁS Ungur karlmaður hlaut mjög alvarlega
áverka þegar hann var sleginn í höfuðið með
flösku í verslun 10-11 í Austurstræti snemma í
gærmorgun. Maðurinn er öryggisvörður í verslun-
inni.
Meintum árásarmanni hafði um einni og hálfri
klukkustund áður verið vísað út úr versluninni
vegna óláta. Var árásarmaðurinn, maður á
þrítugsaldri, strax handtekinn og fluttur í fanga-
geymslur lögreglunnar þar sem hann var látinn
sofa úr sér áfengisvímu. Var hann yfirheyrður í
gær og úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á
miðvikudag.
Áverkar öryggisvarðarins voru mun alvarlegri
en talið var í fyrstu. Hann hlaut meðal annars
skurð á höfði og tók að blæða inn á heila. Hann var
því strax sendur í aðgerð og að því búnu fluttur á
gjörgæsludeild.
„Hugur okkar er hjá þessum unga manni,“ segir
Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri 10-11.
„Við erum í sjokki eins og margir yfir ástandinu í
miðborginni og þeim uppákomum sem sífellt eiga
sér þar stað.“
Sigurður segir öryggisverði vera í öllum
verslunum þeirra á nóttunni. Verðirnir séu með
öryggishnappa og talstöðvar. „Vegna staðsetning-
arinnar eru oft uppákomur í þessari búð en þær
hafa allar verið innan þeirra marka sem menn
ráða við.“ Hann segir að ekki hafi komið til tals að
breyta opnunartíma verslunarinnar og á ekki von
á að þessi atburður breyti því. - ovd
Ungur karlmaður þungt haldinn eftir að hann var sleginn með flösku í höfuðið:
Blæddi inn á heila eftir höfuðhögg
REYKJAVÍK Hópur fólks sem fór inn
í gamla Sirkushúsið við Klappar-
stíg á föstudagskvöld og hélt þar
tónleika boðar fleiri slíkar
aðgerðir.
Í tilkynningu sem hópurinn
sendi frá sér í gær segir að
hópurinn afskrifi hugmyndina að
baki niðurrifi hússins.
„Í ljósi aðgerðaleysis yfirvalda
gagnvart vísvitandi vanrækslu
auðmagnsins á húsnæði í eigu
þess er nauðsynlegt að við tökum
málin í eigin hendur. [...] Ef hús
standa ónotuð og í niðurníðslu
hafa eigendur þeirra fyrirgert
eignar- og afnotarétti sínum af
þeim og það er skylda okkar og
réttur að grípa inn í og nýta
húsin,“ segir í tilkynningunni. - þo
Brutust inn á Sirkus:
Telja sér skylt
að nýta húsin
HÚSTAKA Hópurinn fór inn í gamla
Sirkushúsið og hélt þar tónleika en var
að lokum vísað út af lögreglu.
FRAKKLAND Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti fordæmdi í
gær skemmdarverk sem unnin
voru á gröfum 148 múslimskra
hermanna sem börðust í fyrri
heimsstyrjöldinni. Samkvæmt
vef breska ríkisútvarpsins, BBC,
eru grafirnar í Notre Dame
de Lorette herkirkjugarðinum
nálægt Arras, en þar áttu nokkrar
mestu orustur fyrri heimsstyrj-
aldarinnar sér stað. Svínshöfuð
var hengt á einn legsteinanna og
á aðra var skrifaður hatursáróð-
ur. Svipuð skemmdarverk áttu
sér stað í garðinum fyrir ári síðan
þegar hakakrossar voru málaðir á
legsteina á múslimagröfum. - vþ
Skemmdarverk í Frakklandi:
Grafir múslima
vanvirtar
Fjórir á slysadeild
Þó nokkuð var um pústra og líkams-
árásir í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt.
Komu fjórir á slysadeild Landspítal-
ans til aðhlynningar eftir slagsmál í
miðbænum.
Fótbrotnaði í Bláfjöllum
Lögregla og sjúkraflutningamenn
sóttu í gær skíðamann í Bláfjöll sem
hafði fótbrotnað.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Þrír teknir í Reykjanesbæ
Tveir ökumenn voru teknir undir
morgun í Reykjanesbæ í gær grunaðir
um ölvun við akstur.
DANMÖRK Tæplega 200 Danir
tilkynna um stolin reiðhjól á degi
hverjum, þar af um fimmtíu í
Kaupmannahöfn. Samkvæmt
dagblaðinu Politiken hefur
hjólaþjófnaður aukist umtalsvert
undanfarin ár þar sem lögregla
leitar sjaldnast að stolnum hjólum
og auðvelt er að koma þeim í verð.
Yfirvöld í Kaupmannahöfn taka
þetta vandamál þó alvarlega þar
sem 36 prósent borgarbúa hjóla til
og frá vinnu á degi hverjum. Því er
nú leitað lausna og meðal annars
litið til Hollands þar sem mikið er
um vaktaðar hjólageymslur og
önnur úrræði sem draga úr
hjólaþjófnaði. - vþ
Samgönguvandi í Danmörku:
Hjólaþjófnaður
færist í aukana
HJÓLAMERGÐ Á STRIKINU Danir ferðast
mikið um á reiðhjólum enda þægilegur
og ódýr ferðamáti.
Egill, hvernig lýst þér á viður-
nefnið langsokkur?
Egill langsokkur! Glæsilegt. Frá og
með deginum í dag er ég ekki leng-
ur stóri G-maðurinn.
Egill Einarsson, betur þekktur undir viður-
nefninu Gillzenegger, segir að sögusagnir
um að vissir líkamspartar séu ýktir í nýja
myndbandinu með hljómsveitinni Merz-
edes Club úr lausu lofti gripnar. Engin
þörf sé fyrir ýkjur á þeim bænum.
FÓLSKULEG ÁRÁS Maðurinn sem ráðist var á er öryggisvörður í
verslun 10-11 í Austurstræti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NEYTENDAMÁL Stjórn Verkalýðs-
félags Vestfirðinga gagnrýnir
harðlega þá bylgju hækkana sem
launþegar hafa þurft að taka á sig
að undanförnu. Í ályktun félagsins
segir að spyrna þurfi við ört
hækkandi eldsneytis- og matarverði
ásamt hækkunum á öðrum
nauðsynjum sem dynja á lands-
mönnum.
Þar segir að það sé óásættanlegt
að fyrsti kostur skuli vera að
hækka vöruverð og þjónustu til
neytenda og sama gildir um þau
„vinnubrögð birgja og heildsala að
lauma breytingum á vaxta- og geng-
ismun inn í boðaða hækkun
vöruverðs“. - shá
Verkalýðsfélag Vestfjarða:
Verðhækkanir
fordæmdar
STJÓRNSÝSLA Geir H. Haarde for-
sætisráðherra og Björgvin G. Sig-
urðssonar viðskiptaráðherra halda
í dag til Riksgränsen í Norður-Sví-
þjóð með þotu sem forsætisráðu-
neytið hefur tekið á leigu. Þeir
eiga fund með norrænum forsæt-
isráðherrum en fundarefnið er
alþjóðavæðing og áhrif hennar.
Þetta er í annað sinn á stuttum
tíma sem ráðamenn leigja slíka
vél en mikil umræða skapaðist
þegar forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra fóru á fund NATO í
Rúmeníu í síðustu viku með leigu-
þotu. Ráðherrar og fylgdarlið
þeirra koma heim á miðvikudags-
kvöldið.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu kemur fram að með leigu
á vélinni sparist einn til tveir
ferðadagar á mann. Lauslega áætl-
aður kostnaðarauki miðað við að
fljúga í áætlunarflugi er sagður
vera um 8-900 þúsund krónur.
Að þessu sinni leigir ráðuneytið
flugvél af flugfélaginu Erni.
Kostnaður við leigu vélarinnar
fékkst ekki uppgefinn.
„Ég tel að þetta ágæta fólk sem
gegnir ráðherrastöðum eigi að
deila kjörum með þjóðinni en ekki
með þotuliðinu,“ segir Álfheiður
Ingadóttir, þingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs. Hún segir málið annars
vegar spurningu um stíl og skila-
boð til þjóðarinnar en hins vegar
um umhverfismál.
„Á sama tíma og menn eru að
segja þjóðinni að hún eigi að herða
sultarólina og það séu blikur á
lofti, sem allir skynja vegna vax-
andi verðbólgu, þá skuli ráðherrar
velja sér þennan ferðamáta sem
hingað til hefur einkennt nýríka
Íslendinga.“
Álfheiður telur það ekki aðalat-
riðið hvort flugið sé einhverjum
þúsundkallinum dýrara eða ódýr-
ara. „Það er klárt að frá umhverf-
issjónarmiðum er þetta alltaf dýr-
ara.“
Álfheiður segir að í íslensku
samfélagi hafi hingað til verið
reynt að viðhalda tilteknum jöfn-
uði. „Þá höfum við viljað að stjórn-
málamenn og ráðherrar séu eins
og einn af þjóðinni en þarna hefur
verið tekinn upp annar stíll. Menn
kjósa þægindi þotuliðsins umfram
það að deila kjörum með þjóðinni.
Það eru skilaboðin og þau eru
ömurleg.“
Að þessu sinni munu sjö manns
fljúga með leiguþotu Ernis til Sví-
þjóðar. Auk ráðherranna og starfs-
manna þeirra munu tveir gestir
verða með í för. Það eru Þorsteinn
Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins
og Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. olav@frettabladid.is
Leigja aftur þotu fyrir
ferð forsætisráðherra
Forsætisráðherra og viðskiptaráðherra fara með leiguþotu til Svíþjóðar í dag.
Kostnaðarauki miðað við áætlunarflug er hátt í eina milljón króna. Þingmaður
Vinstri grænna fordæmir leiguna og segir ráðherra kjósa þægindi þotuliðsins.
ÞOTA FLUGFÉLAGSINS ERNIS Ráðherrarnir fjúga ásamt fylgdarliði með einkaþotu til
Svíþjóðar í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÍNA Kínverski listamaðurinn Liu Jin náði heldur
betur að vekja athygli með listagjörningi sínum í
Shanghai um helgina. Hann átti hins vegar ekki
beinlínis von á að áhorfendur fengju hjartaáfall við
að líta verkið augum.
Verkið kallaðist Særðir englar og samanstóð af
nokkrum gínum í fullri stærð sem héngu utan á
skýjakljúfum með vængi á bakinu.
Vegfarendur rak í rogastans þegar þeir urðu varir
við gínurnar enda töldu flestir að hér væru á
ferðinni menn af holdi og blóði sem ætluðu sér að
stökkva til jarðar.
Lögreglu bárust fjölmargar ábendingar frá
skelfingu lostnum borgarbúum og slökkviliðið var
kallað á staðinn til að bjarga fólkinu sem reyndist
þegar betur var að gáð ekki mennskt.
Líklega tók þó enginn verkið jafn nærri sér og
öldruð kona sem fékk hjartaáfall þegar hún sá
gínurnar. Hún var flutt í snarhasti á sjúkrahús til
aðhlynningar. - þo
Listamaðurinn Liu Jin bjó til áhrifaríkara listaverk en hann óraði fyrir:
Naktar gínur ollu hjartaáfalli
SÆRÐIR ENGLAR Gínurnar voru svo raunverulegar að vegfar-
endur töldu þær af holdi og blóði.
Ég tel að þetta ágæta fólk
sem gegnir ráðherrastöðum
eigi að deila kjörum með þjóðinni
en ekki með þotuliðinu
ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR
ÞINGMAÐUR
SPURNING DAGSINS