Fréttablaðið - 07.04.2008, Síða 8
8 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
*Vextir á SPRON Vaxtabót samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 1. apríl 2008. Vaxtaaukinn leggst inn á reikninginn um næstu áramót.
A
R
G
U
S
/
0
8-
01
5
8
Allt að
16,30% vextir +16% vaxtaauki!*
Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu fyrir 15. apríl nk.
fá 16% vaxtaauka á áunna vexti til 1. júli nk.*
Nýttu þér þetta TILBOÐ
og stofnaðu reikning á spron.is
AFGANISTAN Dan McNeill, yfirmað-
ur herafla NATO í Afganistan, við-
urkennir fúslega að árangri í bar-
áttunni við andspyrnuhópa í
landinu verði ekki náð nema
tvennt komi til.
Annars vegar verði að koma í
veg fyrir að talibanar og aðrir
uppreisnarhópar hafi öruggt skjól
handan landamæranna í Pakistan,
þar sem þeir geta safnað liði og
búið sig undir átök. Hins vegar
segir hann nauðsynlegt að upp-
ræta ópíumrækt í landinu, vegna
þess að hún er megintekjulind
andspyrnuhópanna.
„Að mínu mati koma líklega tut-
tugu til fjörutíu prósent af tekjum
uppreisnarmanna frá valmúa-
rækt,“ segir McNeill í viðtali við
Fréttablaðið. „Sumir félagar mínir
telja þetta hlutfall enn hærra,
jafnvel yfir sextíu prósent, þannig
að augljóslega verður vart hægt
að vinna bug á þessari uppreisn án
þess að takast á við valmúarækt-
ina.“
Sameinuðu þjóðirnar telja lík-
legt að ópíumuppskeran í Afgan-
istan í ár verði jafnvel enn meiri
en í fyrra sem þó var metár og
skilaði átta þúsund tonnum af val-
múa. Það eru níutíu prósent af
allri ópíumframleiðslu heimsins.
Fyrir hersveitir NATO er vand-
inn sá að það fellur ekki undir
umboð þeirra í landinu að takast á
við þennan vanda. Það er í verka-
hring afgönsku stjórnarinnar, sem
hefur reyndar sent hersveitir á
vettvang til þess að eyðileggja
ópíumuppskeru og greiðir bænd-
um sérstaklega fyrir að skipta yfir
í aðra ræktun.
Nokkur héruð í Afganistan,
einkum í norður- og miðhluta
landsins, hafa nú þegar fengið
staðfestingu á því frá Sameinuðu
þjóðunum að þar hafi allri ópíum-
rækt verið hætt. Sums staðar í
þessum héruðum hafa menn hins
vegar skipt yfir í kannabisræktun,
eins og McNeill staðfestir:
„Þegar ég var á ferð þarna fyrir
norðan nýlega, á svæðum þar sem
ópíumrækt hefur verið sögð upp-
rætt, þá sá ég að þar sem áður var
valmúi er nú verið að rækta kanna-
bis.“
Um helgina fullyrti Michael
Hayden, yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, að í landa-
mærahéruðum Afganistans og
Pakistans hafi liðsmenn Al-Kaída
haft öruggt skjól og griðastað.
McNeill tekur í sama streng:
„Án þess að vilja benda á Pakist-
an sérstaklega vil ég einfaldlega
segja að allir sem stefna að því að
hjálpa Afgönum að ná öryggi og
stöðugleika til langframa verða að
átta sig á því að það er ekki fram-
kvæmanlegt ef uppreisnarmenn
geta fundið griðastað rétt fyrir
utan umráðasvæði fjölþjóðlega
herliðsins hér,“ segir McNeill.
gudsteinn@frettabladid.is
Ópíumrækt örugg tekjulind
Andspyrnuhópar gegn erlenda herliðinu í Afganistan hafa haft örugga tekjulind af ópíumrækt og öruggan
griðastað handan landamæranna að Pakistan. Þetta segir yfirmaður fjölþjóðaliðs NATO í Afganistan.
VALMÚINN UPPRÆTTUR Afgönsku hersveitirnar, sem hafa það hlutverk að eyðileggja
ópíumuppskeru, þurfa að ganga yfir akrana og tæta plöntur með handafli til þess að
eyðileggja ekki hveitið sem oft er ræktað inn á milli valmúans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DAN MCNEILL Yfirmaður herafla NATO
í Afganistan staðfestir að bændur eru
sums staðar farnir að rækta kannabis
þar sem ópíumrækt hefur verið hætt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐSTEINN
VINNUMARKAÐUR Drög að kjara- og
ráðningarsamningi fyrir þá kenn-
ara og starfsmenn Iðnskólans í
Reykjavík sem ætla að ráða sig
til starfa við sameinaðan skóla
Iðnskólans í Reykjavík og Fjöl-
tækniskólans hafa verið lögð
fram í samningaviðræðum Félags
framhaldsskólakennara og
Menntafélagsins.
Reynir Vilhjálmsson, formaður
Kennarafélags Iðnskólans í
Reykjavík, segir að ýmislegt eigi
eftir að bæta í samningsdrögun-
um þannig að allir flytjist á þeim
kjörum sem þeir hafa verið hing-
að til. Hann nefnir sérstaklega
hvernig útfæra eigi kjör starfs-
fólksins og reglur sem giltu fyrir
það sem ríkisstarfsmenn. Þær
muni ekki gilda í nýja skólanum.
Reynir nefnir einnig reglur um
rétt til biðlauna þegar störf eru
lögð niður og hvernig eigi að
útfæra þennan rétt. Þá gildi upp-
lýsingalög ekki fyrir starfsmenn
á almennum markaði og einnig sé
spurning um að setja inn í samn-
inginn ákvæði um að svipaðar
reglur gildi áfram.
„Vissar reglur eru um faglegt
sjálfstæði kennara í þessum nýja
skóla. Mér finnst persónulega að
það þurfi að taka fram að við
kennarar berum eftir sem áður
þessa faglegu ábyrgð sjálfstætt
og eins gagnvart nemendum. Við
eigum ekki bara að vera háðir
vilja skólameistara,“ segir Reyn-
ir og býst við að samningar
„gangi saman með tímanum“.
Reynir gerði ráð fyrir að samn-
ingsdrögin yrðu kynnt fyrir
kennurum í Iðnskólanum í
Reykjavík á næstunni. Ganga
verður frá samkomulagi fyrir lok
maí. - ghs
Formaður Kennarafélags Iðnskólans í Reykjavík um drög að ráðningarsamningi:
Bæta þarf ýmislegt í samningsdrögunum
DRÖG LIGGJA FYRIR Drög að kjara- og
ráðningarsamningi liggja fyrir í Iðnskól-
anum í Reykjavík en Reynir Vilhjálms-
son, formaður kennarafélagsins, segir að
enn eigi eftir að bæta þau.
SIMBABVE, AP Zanu-PF, flokkur
forsetans Roberts Mugabe, hefur
farið fram á endurtalningu
atkvæða úr forsetakosningunum í
Simbabve sem fóru fram í lok
seinasta mánaðar.
Minnihlutaflokkurinn Hreyfing
fyrir lýðræðislegum breytingum
hefur mótmælt endurtalningunni
harðlega þar sem niðurstöður
kosninganna hafa ekki enn verið
gerðar opinberar. Herskáir
stuðningsmenn Mugabes réðust í
gær inn á þrjá búgarða og ráku
hvíta bændur af landi sínu.
Aðgerðirnar þykja benda til
þess að Mugabe hyggist beita
ofbeldi til að halda völdum. -vþ
Forsetakosningar í Zimbabwe:
Flokkur Muga-
bes fer fram á
endurtalningu
ROBERT MUGABE Forseti Simbabve.
Flokkur hans, ZANU-PF, hefur farið fram
á endurtalningu atkvæða í nýafstöðnum
forsetakosningum.
1. Hvaða bandaríski tónlistar-
maður ætlar að halda tónleika
í Laugardalshöll 1. júlí?
2. Hvar fór unglingalandsmót-
ið á skíðum fram um helgina?
3. Hvert ætlar tónlistarmaður-
inn Þorvaldur Bjarni að flytja
í haust?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
VEISTU SVARIÐ?