Fréttablaðið - 07.04.2008, Qupperneq 10
10 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Réttu tækin í þrifin
- háþrýstidælur, ryk- og vatnssugur frá 8.888 kr.
Nilfisk P160 1-15 B X-tra
Dæluþrýstingur: 160 bör
Vatnsmagn: 650 l/klst.
Nilfisk E140 2-9 X-tra
Dæluþrýstingur: 140 bör.
Vatnsmagn: 500 l/klst.
Nilfisk C100 4-5
Dæluþrýstingur: 100 bör.
Vatnsmagn: 320 l/klst.
Nilfisk Buddy 18
ryk- og vatnssuga
Loftflæði: 3600 l/mín.
Mótor: 1300W
15 l tankur
Nilfisk C120 2-6
Dæluþrýstingur: 120 bör.
Vatnsmagn: 520 l/klst.
20%
afslá
ttur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
02
96
0
4/
08
Ókeypis áfylling á bílinn alla daga!
Eigendur rafbíla fá lykil að orkupóstum í afgreiðslu Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1
og bílastæðaskífur hjá Reykjavíkurborg í Borgartúni 10-12.
or.is • reykjavik.isÓkeypis hleðsla: Bankastræti • Kringlan • Smáralind
HEILBRIGÐISMÁL Félag læknanema
fékk á föstudaginn afhendan farand-
bikar Blóðgjafamánaðar Háskóla
Íslands sem haldinn var í mars. Er
þetta í fyrsta sinn sem Blóðgjafar-
mánuðurinn er haldinn en markmið
hans er að vekja athygli á vaxandi
þörf Blóðbankans og hvetja ungt
fólk til að gerast blóðgjafar.
Var efnt til keppni milli nem-
endafélaga háskólans og gáfu hlut-
fallslega flestir læknanemar blóð
eða 15,5 prósent. Í öðru sæti var
Hvarf, félag efna- og lífefnafræði-
nema, þá Haxi félag líffræðinema
og svo Soffía, félag heimspeki-
nema. Fróði, félag sagnfræðinema
var svo í fimmta sæti.
Að sögn Eyjólfs Þorkelsson, hjá
Lýðheilsufélagi læknanema gekk
Blóðgjafarmánuðurinn mjög vel
en á annað hundrað nemendur gáfu
blóð á umræddum tíma. Hann segir
það hlutfallslega samsvara því að
70 Íslendingar hefðu gefið blóð á
hverjum degi. Bæði hafi blóðgjaf-
arbíllinn verið við Háskólann en
svo hafi nemendur einnig gefið
blóð í Blóðbankanum.
„Læknanemar hafa vissuleg svo-
lítið forskot þar sem læknadeildin
er nær Blóðbankanum en margar
aðrar deildir,“ segir Eyjólfur. Á
móti sé læknadeildin mjög fjöl-
menn og þá þurfi fleiri til að ná
hárri prósentu.
Lýðheilsufélag læknanema,
Stúdentaráð, Blóðbankinn og Voda-
fone standa að Blóðgjafamánuði
Háskóla Íslands. - ovd
Blóðgjafamánuður Háskóla Íslands haldinn í fyrsta sinn í nýliðnum marsmánuði:
Læknanemar duglegastir að gefa blóð
FRÁ UPPSKERUHÁTÍÐINNI Félag læknanema hlaut farandbikar á uppskeruhátíð
Blóðgjafamánaðar HÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MINJAR Unnið er að raðtilnefningu
á minjum frá víkingatímanum á
heimsminjaskrá UNESCO í sam-
vinnu við hinar Norðurlandaþjóð-
irnar, Þjóðverja,
Frakka, Kanadamenn,
Breta og Íra. Afar lík-
legt er að staðirnir
Jelling í Danmörku,
Birka í Svíþjóð og
L‘Anse aux Meadows í
Kanada verði tilnefnd-
ir ásamt Þingvöllum.
Verið er að skoða hvort
fleiri staðir komi til
greina, jafnvel í öðrum
löndum.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra hefur skrifað bréf
til menntamálaráðherra ofan-
greindra þjóða til að kanna hvort
þjóðirnar hafi áhuga á að taka þátt
í verkefninu og er búist við svari
frá þeim á næstunni. Ef allt geng-
ur eftir tilnefna nokkur lönd staði
sem fulltrúa fyrir víkingatímabil-
ið á heimsminjaskrá.
Ragnheiður Helga Þórarinsdótt-
ir hjá menntamálaráðuneytinu
segir að þegar séu fjórir staðir frá
víkingatímanum á heimsminja-
skrá þó að þeir hafi ekki verið til-
greindir þannig sérstaklega. Það
eru grafreiturinn og minnismerk-
ið í Jelling í Danmörku, víkinga-
borgin Birka í Svíþjóð og land-
námsstaðurinn L‘Anse aux
Meadows í Kanada auk Þingvalla
á Íslandi. Aðrir staðir koma einnig
til greina. Rætt er um að Norð-
menn tilnefni hugsanlega verslun-
arstaðinn Kaupang við Óslóarfjörð-
inn og víkinga bæinn
Borg á Lófóten, Slés-
vík-Holtsetaland í
Þýskalandi tilnefni
verslunarstaðinn Heið-
arbæ og varnarvegg-
inn Danavirki.
Á Íslandi er rætt um
ýmsa staði. Sem dæmi
má nefna þingstaði á
borð við Múlaþing,
Kjalarnesþing og
Þorskafjarðarþing og
Hrísbrú þar sem
vangaveltur eru um
hvort gröf Egils Skallagrímssonar
sé að finna, landnámsskálann og/
eða skálann í Aðalstræti.
Ragnheiður segir að hver þjóð
verði að fara yfir það hvaða staðir
uppfylli þau skilyrði sem sett séu
fyrir raðtilnefningu, ákveða hvaða
stað eða staði hún ætlar að tilnefna
og ganga frá rökstuðningi í
umsóknina.
Íslendingar leiða vinnuna og
afhenda plöggin þegar þar að
kemur. Ráðuneytið sinnir undir-
búningsvinnunni núna en á næstu
dögum eða vikum verður málinu
vísað til Heimsminjanefndar
Íslands. Í henni eru Björn Bjarna-
son formaður og þau Össur Skarp-
héðinsson og Sæunn Stefánsdóttir.
ghs@frettabladid.is
Víkingaminjar
fari á heims-
minjaskrá
Stefnt er að því að Íslendingar tilnefni minjar frá
víkingatímanum á heimsminjaskrá UNESCO í sam-
starfi við aðrar þjóðir. Íslenskir þingstaðir tilnefndir.
HRÍSBRÚ Fjórir staðir, sem þegar eru á heimsminjaskrá, gætu verið inni í raðtilnefn-
ingunni, að sögn Ragnheiðar Helgu Þórarinsdóttur, starfsmanns menntamálaráðu-
neytisins. Vinnan er á frumstigi og því hafa engar ákvarðanir verið teknar. Meðal
staða sem nefndir hafa verið er Hrísbrú. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR
RAGNHEIÐUR HELGA
ÞÓRARINSDÓTTIR
MEÐ TVÖ ANDLIT Þessi litla indverska
stúlka fæddist með fjögur augu, tvö
nef og tvo munna. Foreldrar hennar
segja hana þó anda og nærast eðli-
lega og dafna vel. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP