Fréttablaðið - 07.04.2008, Side 12
12 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
Viðskiptafræði
VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK
Viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem opnar þér dyr að
margvíslegum starfstækifærum, góðum launum og framhaldsnámi.
Við stefnum að því að vera fyrsta val fólks sem vill læra viðskiptafræði á Íslandi.
• BSc-nám í viðskiptafræði við HR einkennist af framúrskarandi kennslu.
• Námið er í stöðugri þróun og í sterkum tengslum við atvinnulífið.
• Við sýnum í verki að hver einasti nemandi í HR skiptir máli.
Við stefnum að því að vera fyrsti valkostur þeirra sem vilja ráða nýútskrifaða viðskiptafræðinga.
• Viðskiptafræðingar frá HR eru framúrskarandi vel að sér á helstu sviðum viðskiptafræðinnar.
• Viðskiptafræðingar frá HR geta unnið sjálfstætt sem einstaklingar og eru öflugir liðsmenn
á sínum vinnustöðum strax frá fyrsta degi.
Kynntu þér nám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík á vef deildarinnar,
www.vidskiptafraedi.is.
UMM er spennandi nýjung í matarflóru Íslendinga sem h entar öllum sem hugsa um líkama
sinn og vilja borða vel. UMM er bragðsterk veisla frá öllum heimshornum; salöt, tortillur,
ávextir, kús kús, orkustykki og ... umm, hvað þetta er gott.
UMM ER GLÆNÝR HEILSUBITI ÚR SPENNANDI HRÁEFNI
BORÐAÐU
VEL
–
BORÐAUVEL-B
OR
L -
Ð
A
Ð
U
VE
úÞ færð UMM-réttina í Ne sti á N1 stöðinni.
GÆLUDÝR „Mér voru settir tveir
valkostir, annar var að láta svæfa
kisa en hinn var að hann gengist
undir erfiða aðgerð fyrir tugi þús-
unda króna,“ segir Margrét Lára
Einarsdóttir, gæludýraeigandi.
Margrét á fallegan skógarkött
sem heitir Snúður og langaði hana
að gleðja hann með nýju leikfangi.
Hún keypti litlar gervimýs sem
fást í flestum gæludýrabúðum og í
sérvörudeildum matvöruverslana
og kisi tók strax að leika sér að
einni. Honum tókst þó að ná leik-
fanginu í sundur og át einhvern
hluta af því. Sá hluti festist í iðrum
hans. „Hann byrjaði svo að kasta
upp. Ég fór með hann til dýra-
læknis og þar fékk hann olíur sem
áttu að skila innihaldi magans út
en ekkert gekk. Þegar líða tók á
var hann orðinn mjög veikur af
vökvaskorti. Mér var síðan til-
kynnt að annað hvort yrði að
svæfa köttinn eða gera á honum
aðgerð,“ segir Margrét sem tók
seinni kostinn og greiddi fyrir 52
þúsund krónur.
Hún hafði samband við eiganda
gæludýraverslunarinnar sem
seldi henni leikfangið en segir
hann ekkert hafa viljað fyrir sig
gera.
„Ég vil bara vara fólk við því að
kaupa svona dót fyrir dýrin sín
því þetta getur reynst kisum og
smáhundum stórhættulegt,“ segir
hún. - kdk
Gæludýraeigandi varar við hættulegu leikfangi:
Leikfangamús banaði
næstum skógarketti
VILDI GLEÐJA KISA MEÐ LEIKFANGAMÚS Kisi náði leikfangamúsinni sinni í sundur og
át hluta af henni. Sá hluti festist í maga hans og kostaði hann næstum því lífið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HÆTTULEGT LEIKFANG Margrét Lára
varar fólk við að kaupa leikfang sem
þetta. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR