Fréttablaðið - 07.04.2008, Síða 13
MÁNUDAGUR 7. apríl 2008
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
AKRANES Heildarhagnaður Verka-
lýðsfélags Akraness var rétt
tæpar 80 milljónir á síðasta ári,
þar af er 24 milljóna króna hagn-
aður af félagssjóði. Þegar ný
stjórn tók við árið 2003 nam tap á
rekstri félagssjóðs tæpum tveim-
ur milljónum eftir því sem fram
kemur á vef félagsins.
Félagsmönnum Verkalýðsfé-
lags Akraness fjölgaði gríðarlega
á síðasta ári eða sem nemur 700
félagsmönnum.
„Endurspeglast þessi fjölgun
af hinu góða atvinnuástandi sem
verið hefur á okkar félagssvæði
og hinni miklu jákvæðu uppbygg-
ingu sem orðið hefur á Grundar-
tangasvæðinu,“ segir á vefnum.
- ghs
Verkalýðsfélag Akraness:
80 milljónir í
hagnað í fyrra
FÉLAGSMÖNNUM FJÖLGAÐI Félags-
mönnum Verkalýðsfélags Akraness fjölg-
aði um 700 í fyrra. Hér sést formaðurinn
Vilhjálmur Birgisson.
Ók of hratt á Reykjanesbraut
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók
ökumann fyrir hraðakstur á Reykja-
nesbraut aðfaranótt laugardagsins.
Ók maðurinn á 131 kílómetra hraða
þar sem hámarkshraði er 80 kílómetr-
ar á klukkustund. Má hann búast við
80 þúsund króna sekt.
Hraðakstur við Kambabrún
Lögreglan á Selfossi tók ökumann
fyrir hraðakstur á Suðurlandsvegi
í Kömbum ofan við Hveragerði
skömmu fyrir hádegi á laugardaginn.
Mældist bifreið mannsins á 130 kíló-
metra hraða á klukkustund þar sem
90 er hámarkshraði. Má maðurinn
búast við 90 þúsund króna sekt.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LANDSBYGGÐARMÁL Atvinnuleysi hefur dregist saman
á Vestfjörðum á síðustu vikum. Fyrir tveimur vikum
voru 28 skráðir atvinnulausir en á vef Vinnumála-
stofnunar mátti sjá í gær að þeir voru aðeins 17.
„Ég hef orðið var við að það er verið að auglýsa
eftir fólki hérna, það vantar fólk til vinnu,“ segir Hall-
dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. „Ég
verð einnig var við það að fólk leitar til okkar eftir
ódýrara húsnæði og vinnu nú þegar harðnar á dalnum
í efnahagslífinu,“ bætir hann við.
Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar,
tekur í sama streng. „Heimamenn hafa verið að búa
sér til störf og svo hafa verið flutt störf hingað vest-
ur,“ segir hún. „Svo hugsum við okkur gott til glóðar-
innar á næsta ári þegar slitlag verður komið á alla leið-
ina til Reykjavíkur, þá mun það taka aðeins um tvo og
hálfan tíma að aka þessa leið. Þá tel ég að margir kjósi
að búa hér í hæfilegri fjarlægð frá borginni.“ - jse
Atvinnuleysi dregst saman á Vestfjörðum:
Hagur vænkast fyrir vestan
HALLDÓR HALLDÓRSSON Nú þegar þrengir að í efnahagslífinu
verður bæjarstjórinn fyrir vestan var við frekari áhuga fólks á
að flytjast vestur. Atvinnuleysi þar er nú með minnsta móti.
ÚTIVIST Íslenskir fjallaleiðsögu-
menn hafa gert samning um
kaup á Íslenskum ferðamarkaði
í Bankastræti fyrir milligöngu
Saga Capital. Jafnframt hafa
eigendur Íslenskra fjallaleið-
sögumanna og Iceland Rovers,
Íslandsflakkarar ehf., undirritað
samkomulag um sameiningu.
Nýtt sameinað fyrirtæki verð-
ur rekið undir nafni Íslenskra
fjallaleiðsögumanna. Höfuð-
stöðvar fyrirtækisins verða
á Vagnhöfða 7 í Reykjavík og
framkvæmdastjóri verður Elín
Sigurveig Sigurðardóttir, núver-
andi framkvæmdastjóri Íslenskra
fjallaleiðsögumanna. - ghs
Breytingar á ferðamarkaði:
Útivistarfélög
sameinast í eitt