Fréttablaðið - 07.04.2008, Side 23

Fréttablaðið - 07.04.2008, Side 23
fasteignir 7. APRÍL 2008 Fasteignasalan Ás hefur til sölu 2-4 herbergja íbúðir í nýju lyftuhúsi á fjórum hæðum í Hafn- arfirði. Í húsinu eru 19 2-4 herbergja íbúðir og þrír bíl-skúrar. Húsið er sérlega vel staðsett og er fallegt útsýni úr flestöllum íbúðunum. Íbúðirnar eru vandaðar sem sést best á því að allar afhendast þær fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Sérstaklega góð hljóðeinangrun er á milli hæða og allar innréttingar ná upp í loft og eru vandaðar, frá AXIS. Í eldhúsi eru granítborðplöt- ur og vönduð tæki frá Húsasmiðjunni, meðal annars span suðuhelluborð og fleira. Myndavéladyrasími og sérinngangur í sumar íbúðirnar. Suðursvalir á flest- um íbúðum og fallegt útsýni og hraunlóð. Íbúðirnar skiptast í forstofu, þvottahús, baðher- bergi, svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu og fylgir sérgeymsla í sameign. Húsið afhendist fullfrá- gengið að utan, lóð tyrfð, stéttir hellulagðar og bíla- stæðin malbikuð. Afhending er áætluð í maí og júní 2008. Verktaki er tilbúinn að lána allt að 90% strax á eftir Íbúðalána- sjóði. Verð frá 18,9 milljónum og verð á bílskúrum er 3,5-4 milljónir. Gólfhiti og granítplötur í nýju húsi í Hafnarfirði Kvistavellir 44 er lyftuhús á fjórum hæðum. Brúarlán Netbankans er þægileg leið til að brúa bilið frá kaupum á nýrri íbúð til sölu á þeirri gömlu. Farðu á www.nb.is og kynntu þér málið eða fáðu nánari upplýsingar í síma 550 1800.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.