Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 34
7. APRÍL 2008 MÁNUDAGUR12 ● fréttablaðið ● híbýli - baðherbergi
Eitt af grundvallaratriðum
hvers baðherbergis er góð
handlaug. Notagildið má lesa
úr nafninu en útlitið og hönn-
unin getur verið margs konar
og ræður þar bæði efnahagur
og smekkur.
Úrval af baðherbergisvöskum er
mikið á markaðinum. Augljóslega
eru postulínsvaskar sem standa
ofan á innréttingunni geysivin-
sælir enn. Þeir eru ýmist kringl-
óttir eða kantaðir og stærðin er
allt frá því að slaga í lengd bað-
kars niður í nettar og grunnar
skálar. Vaska föt úr gleri þykja
líka flott, svo og krómuð ker.
Margt fleira er í boði því efnis-
val og litaframboð er fjölbreytt.
Hvítt hefur tvímælalaust vinn-
inginn að sögn sölumanna, en þó
er fólk aðeins að sleppa hendinni
af hvítu og svörtu og tileinka sér
mýkri liti. Vaskar úr gerviefni
sem nefnist cortop með áfastri
plötu í kring eru til dæmis á mark-
aðinum. Þeir eru bæði til hvítir og
litaðir, ýmist mattir eða pússaðir,
með grjótmylsnu í eða án. Það er
gaman að grúska í heimasíðum á
netinu og rúnta á milli verslana
með hreinlætistæki og hitta þar á
draumahandlaugina. -gun
Handlaugar á heimilið
Hér er handlaugin felld niður í skápinn
og plata í kring eykur á þrifnaðinn. Þessi
fæst í Egginu.
Kantaður postulínsvaskur frá Ido Sem
frá Finnlandi. Fáanlegur í Egginu á
Smáratorgi.
Hægt er að kaupa viðarstatíf fyrir glas
og tannbursta og koma fyrir á vask-
brúninni. Þessi fæst í Vatnsvirkjanum í
Ármúla. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Sanindusa-handlaug sem fæst í Vatns-
virkjanum í krómuðu rauðu, svörtu og
hvítu.
Margs konar litir og
lögun er á vösknuum í
Egginu á Smáratorgi.
Öll fjölskyldan
getur burstað í sér
tennurnar saman
við þennan vask
sem hægt er að fá
í Bykó.