Fréttablaðið - 07.04.2008, Síða 55
MÁNUDAGUR 7. apríl 2008 27
Áfram Ísland! er önnur plata Morð-
ingjanna, en sú fyrsta, hin
bráð skemmtilega Í götunni minni
kom út fyrir tveimur árum. Á henni
voru tólf stutt og hröð pönklög, en á
nýju plötunni eru lögin orðin heldur
lengri og tónlistin orðin fjölbreytt-
ari þó að þetta sé allt saman hrátt
rokk ennþá.
Það eru 14 lög á Áfram Ísland! og
það er óhætt að segja að áhrifin
komi víða að. Á stöku stað eru fyrir-
myndirnar augljósar, t.d. minnir
lagið Eiturlyfjafíklar mjög á
Fræbbblana og byrjunin á Er þetta
ekki að verða komið gott? er tilvís-
un í Holiday in Cambodia með Dead
Kennedys. Sú sveit er reyndar
greinilega mikill áhrifavaldur hjá
Morðingjunum. Mér finnst þeir líka
vera undir miklum áhrifum frá Dr.
Gunna. Söngur Hauks minnir oft á
Gunna og sumar lagasmíðarnar eru
líka Gunnalegar, t.d. Ekki í dag. Auk
þess er eitt tökulag á plötunni, lagið
Bölvun fylgi þeim sem var upphaf-
lega með vinnuskólapönkhljóm-
sveitinni F-8 sem Gunni var með-
limur í.
Textar Morðingjanna eru margir
skemmtilegir. Umfjöllunarefnin
eru tekin úr hversdagslífinu, en
húmorinn er ríkjandi í úrvinnslunni
hvort sem það er verið að syngja
um skemmtanalífið, eiturlyfjaheim-
inn eða Airwaves. Textinn við lagið
Airwaves er kostuleg upptalning á
hljómsveitum sem spiluðu á hátíð-
inni í fyrra: „Drekka bjór með Worm
is Green/Reykja sígó með Singa-
pore Sling/Far’í partí með Amiina/
og kyssa Bloodgroup stelpuna“...
Það er kannski ekki hægt að segja
að tónlist Morðingjanna marki djúp
spor í tónlistarsöguna. Þetta hljóm-
ar allt of kunnuglega til þess. Hins
vegar hefur þeim Atla, Hauki og
Helga tekist að búa til skemmtilega
rokkplötu sem gaman er að blasta á
hæsta styrk og það er ekki lítils
virði. Trausti Júlíusson
Melódískt pönk
TÓNLIST
Áfram Ísland!
Morðingjarnir
★★★
Hrátt pönk með húmorískum textum.
Mörg laganna eru melódísk og
grípandi og fjölbreytnin hefur aukist
mikið frá fyrri plötunni. Gaman.
Ópera um líf Önnu Nicole Smith
er nú á teikniborðinu. Það er
Richard Thomas sem sér um
textasmíði og segir hann líf Play-
boy-fyrirsætunnar afar „óperulegt“
og „stórbrotið“. Óperan mun fjalla
um lífshlaup fyrirsætunnar,
en sleppa því fjölmiðlafári
sem tók við eftir dauða
hennar, þegar stórskrýtið
faðernismál vegna
hinnar nýfæddu
Dannielynn tröll-
reið öllu svo vikum
skipti. „Fyrir mér lýkur
þessu með henni,“ segir
Thomas.
Rapparinn Snoop Dogg er ekki
einn þeirra sem styðja Barack
Obama. Femalefirst vitnar í rappar-
ann þar sem hann heldur því fram
að Obama hafi fengið fjárstuðning
frá hinum alræmdu Ku Klux Klan-
samtökum. „Fjölmiðlar segja fólki
það ekki. Þeir vilja ekki að
fólk viti það,“ segir rapparinn.
„Við vitum öll að forsetar
ljúga til að komast í
embætti. Það er
vinnan þeirra,“
segir Snoop,
sem telur þó
að Obama muni
fara með sigur af
hólmi.
Af fleiri röppurum. 50 Cent stendur
aftur í málaferlum við barns-
móður sína, Saniqua Tomkins.
Fyrr á árinu snerust átök þeirra
um meðlag með syni þeirra,
Marquise, en nú segir
Tomkins rapparann
hafa brotið loforð um
að kaupa handa
þeim mæðginum
hús. 50 Cent vann
síðustu málaferli,
þar sem úrskurðað
var að hann þyrfti
eingöngu að greiða
Tomkins andvirði
hálfrar milljónar
íslenskra króna á
mánuði hverjum.
Vinna við gerð nýrrar plötu með
Lindsay Lohan virðist ganga hægt
fyrir sig. Samkvæmt Perezhilton.
com er Lohan þung í taumi og
hefur tvívegis aflýst fundi með
stjörnuupptökustjóranum Timba-
land, sem útgefendur plötunnar
vildu fá til að vinna með Lohan.
Áætlað var að platan
myndi koma út um mitt
þetta ár, en allt útlit
er fyrir að það frestist.
Síðasta plata hennar, A
Little More Person-
al (Raw), kom út
í desember 2005
og hlaut dræmar
viðtökur.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Félagar í góðverkasamtökunum
Betri bær máluðu yfir veggjakrot í
miðbænum á dögunum við mikinn
fögnuð verslunareigenda og
almennings. Ungu mennirnir sem
skipa hópinn vilja ekki koma fram
undir nafni en féllust á viðtal.
„Við vorum ekki nema þrír sem
gerðum þetta,“ segir talsmaður
hópsins. „Allt verkið tók ekki nema
tæpa tvo klukkutíma frá Snorra-
braut og niður að Lækjargötu.
Sums staðar fórum við meira að
segja tvær umferðir hjá heppnum
húsnæðiseigendum. Það var ótrú-
lega lítið mál og fljótlegt að mála
yfir þetta. Að vísu er kannski hægt
að kenna myrkrinu um hve víða
eru gloppur. En þær verða hugsan-
lega lagaðar í næstu umferð.“
Er búið að „tagga“ á veggina
aftur?
„Eftir því sem ég best veit hefur
það ekki verið gert. Sem þýðir jú
ein vika af fallegri miðbæ fyrir
vikið.“
Hvernig væri hægt að refsa þess-
um krotandi krökkum til að stoppa
þá af í eitt skipti fyrir öll?
„Það er svo sem ekki okkar að
ákveða. En okkur finnst sjálfsagt
að þeir krakkaormar sem næst í
skottið á fái að laga eftir sig
skemmdirnar.“
Af hverju viljið þið ekki koma
fram undir nafni?
„Við vissum að aðgerðirnar
myndu vekja mikla athygli, og við
vildum frekar að sú athygli beind-
ist að málstaðnum en okkur sjálf-
um.“
Eruð þið í sérstökum ofurhetju-
búningum þegar þið látið til skara
skríða?
„Eins og myndirnar sýna voru
búningarnir ekki tilbúnir, en verið
er að sauma á okkur búninga ekki
ósvipaða búningi íþróttaálfsins.
Með tækjabelti fyrir málningar-
bursta að sjálfsögðu. Einnig erum
við að vinna að því að setja máln-
ingarburstamerki á friðarsúluna
svo að hægt sé að kalla okkur út.“
Er von á að samtökin láti til sín
taka aftur?
„Það er von á því, en hvenær
veit enginn. Nema náttúrlega við.“
- glh
Ofurhetjubúningar saumaðir á
Góðverkasamtökin Betri bæ
LAPPAÐ UPP Á ÓGEÐSLEGAN MIÐBÆ Liðsmenn Góðverkasamtakanna að verki.