Fréttablaðið - 07.04.2008, Blaðsíða 58
30 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
EVERTON - DERBY COUNTY 1-0
1-0 Leon Osman (56.).
MIDDLESBROUGH - MAN. UNITED 2-2
0-1 Cristiano Ronaldo (10.), 1-1 Alfonso Alves
(35.), 2-1 A. Alves (56.), 2-2 Wayne Rooney (74.)
STAÐA EFSTU LIÐA:
Man. United 33 24 5 4 70-17 77
Chelsea 33 22 8 3 58-23 74
Arsenal 33 20 11 2 63-27 71
Liverpool 33 17 12 4 57-25 63
Everton 33 18 6 9 49-27 60
Portsmouth 32 15 8 9 46-33 53
Enski bikarinn:
Cardiff-Barnsley 1-0
1-0 Joe Ledley (9.)
Meistaradeildin í handb.:
Ciudad Real-Hamburg 34-27 (18-14)
Ólafur Stefánsson skoraði 9/6 mörk fyrir Ciudad
í leiknum.
Kiel-Barcelona 41-31 (20-15)
ÚRSLIT
FORMÚLA 1 Fjörið hélt áfram í For-
múlunni í gær þegar Felipe Massa
vann kappaksturinn í Barein. Þar
með hefur mismunandi ökumaður
unnið hvert mót og tímabilið stefn-
ir í að verða opið og skemmtilegt.
Það voru liðsmenn Ferrari sem
opnuðu flestar kampavínsflöskur
enda varð Kimi Raikkonen annar
og hann er því kominn á topp stiga-
lista ökumanna en Lewis Hamil ton
varð að sætta sig við 13. sætið í
gær. Hann lenti í árekstri við sinn
gamla liðsfélaga, Fernando
Alonso, og það atvik mun eflaust
ekki bæta kalt samband á milli
þeirra.
Pólverjinn Robert Kubica varð
þriðji og félagi hans hjá BMW,
Nick Heidfeld, fjórði. Kovalainen
á McLaren kom fimmti í mark og
Toyota-ökumaðurinn Jarno Trulli
varð sjötti.
„Síðustu tvær vikur hafa ekki
verið auðveldar en svona er lífið
stundum,“ sagði Massa eftir kapp-
aksturinn en hann var gagnrýndur
harðlega fyrir að missa stjórn á
bíl sínum í Malasíu.
„Þetta var hvorki í fyrsta né síð-
asta skiptið sem maður lendir í
gagnrýni. Ég átti tvo vonda daga í
fyrri keppnunum tveimur en ég
vissi alltaf að við værum með
hraðskreiðan bíl. Ég elska þessa
braut hér enda annar sigur minn
hér í röð,“ sagði Massa.
- hbg
Felipe Massa vann kappaksturinn í Barein:
Dagur Ferrari-liðsins
KÁTUR Felipe Massa kann vel við sig í Barein og hann fagnaði grimmt eftir sigurinn.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Fyrri leikirnir í
undanúrslitum Meistaradeildar-
innar fóru fram í gær. Ciudad
Real lagði þýska liðið Hamburg,
34-27, á Spáni og Kiel flengdi
Barcelona í Þýskalandi, 41-31.
Ólafur Stefánsson og félagar
áttu í miklum vandræðum með að
hrista Hamburg af sér allan
leikinn og ljóst að það verður
barátta að verja sjö marka
forskotið. Ólafur spilaði mjög vel
í leiknum og var öryggið uppmál-
að á vítalínunni.
Leikur Kiel og Barcelona var
hreint út sagt stórkostleg
skemmtun. 72 mörk á 60 mínútum
segja sína sögu. Kiel náði mest 13
marka forystu en mörkin 10 ættu
að duga liðinu í úrslitin. - hbg
Meistaradeildin í handbolta:
Sigrar hjá Kiel
og Ciudad Real
ÓLAFUR STEFÁNSSON Spilaði vel gegn
Hamburg í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Það verða Cardiff og
Portsmouth sem mætast í
úrslitum ensku bikarkeppninnar
17. maí næstkomandi. Það varð
ljóst í gær þegar Cardiff lagði
Barnsley í seinni undan úrslita-
leiknum á Wembley. Joe Ledley
skoraði eina mark leiksins á 9.
mínútu með glæsilegu skoti í
teignum.
„Þetta eru stórkostleg tíðindi
fyrir Cardiff. Þetta er búið að
vera frábært tímabil og við
munum mæta fullir sjálfstrausts í
úrslitaleikinn sem við ætlum að
vinna,“ sagði Ledley eftir leikinn.
„Ég tel að við höfum átt skilið
að vinna. Við vörðumst vel og
vorum þéttir fyrir. Hvað varðar
markið þá var þetta erfiður bolti
að taka en ég lét vaða og heppnin
var með mér í þetta skiptið,“
sagði Ledley.
Niðurstaðan hlýtur að vera
grátleg fyrir Barnsley sem var
búið að ryðja bæði Chelsea og
Liverpool úr vegi sínum á leið í
undanúrslitin.
„Við fengum 80 mínútur til þess
að koma okkur aftur inn í leikinn
en það átti greinilega ekki að
gerast. Við erum engu að síður
gríðarlega stoltir af árangri
okkar í þessari keppni,“ sagði
Simon Davey, stjóri Barnsley,
eftir leikinn í gær. - hbg
Enski bikarinn:
Cardiff lagði
Barnsley
TILFINNINGAR Það féllu gleði- og sorg-
artár eftir leikinn í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Spennan heldur áfram að
magnast á toppi ensku úrvals-
deildarinnar en forysta Man. Utd.
er þrjú stig eftir leiki helgarinnar.
United sótti Middlesbrough heim
á Riverside í gær og varð að sætta
sig við jafntefli, 2-2, í skrautlegum
leik.
Cristiano Ronaldo kom United
yfir snemma í leiknum en Boro
neitaði að gefast upp og Afonso
Alves skoraði í tvígang. Wayne
Rooney jafnaði fyrir United. Loka-
mínútur leiksins voru æsilegar
þar sem United pressaði stíft og
Boro náði stórhættulegum skyndi-
sóknum. Inn vildi boltinn ekki og
því sættust liðin á skiptan hlut.
„Við hefðum vissulega getað
tapað þessum leik. Boro fékk færi
og varnarleikurinn hjá okkur var
mjög tæpur á köflum. Á móti hefð-
um við vel getað unnið leikinn líka
því við spiluðum stórkostlegan
fótbolta á stundum. Við litum vel
út í stöðunni 1-0 og Rooney var
óheppinn að vera dæmdur rang-
stæður þegar hann var það klár-
lega ekki,“ sagði Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man. Utd.
„Þeir fóru í 4-4-2, komust yfir og
í kjölfarið var boðið upp á stór-
kostlegan knattspyrnuleik. Bæði
lið sóttu af krafti og eiga mikið
hrós skilið fyrir að spila þetta
góðan fótbolta á þessum árstíma.
Þetta var hreint út sagt stórkost-
legur knattspyrnuleikur á að
horfa. Þó svo að forystan hafi
minnkað leggjum við ekkert árar í
bát. Þetta lið hefur sýnt sterkan
karakter á erfiðum stundum. Við
sendum stanslaust út skýr skila-
boð þess efnis að við berjumst í
hverja einustu mínútu af hverjum
leik. Hver veit nema þetta stig
skipti öllu máli þegar upp er stað-
ið.“
Man. Utd. varð fyrir miklu áfalli
þegar Rio Ferdinand haltraði af
velli. Óvíst er hvort hann geti leik-
ið gegn Roma í vikunni en eins og
menn muna meiddist Nemanja
Vidic í fyrri leiknum og því um
gríðarlegt áfall að ræða fyrir Unit-
ed. Ekki síst í ljósi þess að um
næstu helgi mætir liðið Arsenal
og svo bíður Chelsea 26. apríl.
„Vonandi eru meiðsli Rios ekki
alvarleg en hann var haltrandi of
lengi inni á vellinum. Það var
hættulegur leikur af okkar hálfu,“
sagði Ferguson. Gerard Pique
leysti Rio af hólmi og stóð sig vel.
„Strákurinn stóð sig hreint frá-
bærlega og hjálpaði okkur mikið,“
sagði Ferguson. henry@frettabladid.is
Chelsea nálgast United
Forysta Man. Utd. á toppi ensku úrvalsdeildarinnar er aðeins þrjú stig eftir að
United varð að sætta sig við jafntefli, 2-2, á útivelli gegn Middlesbrough. United
missti Rio Ferdinand meiddan af velli og óvissa er um þátttöku hans gegn Roma.
ÖSKRAÐ Stjórarnir Ferguson og South-
gate tóku vel á því á hliðarlínunni og
skiptust einnig á skotum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HART BARIST Aðstæður á Riverside voru skrautlegar en það hindraði liðin ekki í því
að spila frábæran fótbolta. Wayne Rooney sést hér í loftköstum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NBA Ótrúlegt gengi Boston Celtics
hélt áfram um helgina þegar liðið
pakkaði Charlotte Bobcats saman,
101-78, og það án stórstjarna
sinna. Um leið tryggði Boston sér
heimavallarrétt út úrslitakeppn-
ina.
Viðsnúningur Boston á milli
tímabila er lyginni líkastur og sá
mesti í sögu NBA-deildarinnar.
Árangur Boston í vetur er núna
61-15 en Celtics lauk tímabilinu
24-58 í fyrra. Liðið er því nú þegar
búið að vinna 37 fleiri leiki á þess-
ari leiktíð.
Metið í mesta viðsnúningi á milli
tímabila var í eigu Spurs sem fór
úr 20-62 í 56-26 leiktíðina 1997-98.
Það var árið sem Tim Duncan kom
til liðsins úr háskólavalinu. - hbg
NBA-deildin:
Boston tryggði
heimavallarrétt
BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir og
Helgi Jóhannesson urðu Íslands-
meistarar í gær eftir snarpa
úrslitaleiki í TBR-húsunum. Ragna
var að vinna sinn sjötta Íslands-
meistaratitil en Helgi sinn þriðja.
Ragna lagði Söru Jónsdóttur í
tveimur lotum í úrslitunum. Fyrri
lotuna vann Ragna örugglega, 21-
12, en Sara veitti Rögnu harða
keppni í annarri lotunni sem end-
aði með sigri Rögnu, 22-20. Ragna
því meistari sjötta árið í röð.
Það var meiri spenna í úrslita-
rimmunni hjá körlunum þar sem
Helgi Jóhannesson lagði Magnús
Inga Helgason. Helgi vann fyrstu
lotuna, 21-19, en Magnús Ingi jafn-
aði metin í annarri lotu með örugg-
um sigri, 21-13. Oddalotan var
spennandi en þar hafði Helgi
betur, 21-18.
Helgi og Magnús Ingi urðu síðan
meistarar í tvíliðaleik þar sem
þeir unnu gömlu brýnin Brodda
Kristjánsson og Þorstein Pál
Hængsson. Ragna og Katrín Atla-
dóttir unnu tvíliðaleik kvenna þar
sem þær mættu Söru Jónsdóttur
og Tinnu Helgadóttur. - hbg
Íslandsmeistaramótið í badminton:
Ragna og Helgi urðu
tvöfaldir meistarar
ÓVENJULEGUR SIGURKOSS Ragna fagnaði sigrinum í gær á óvenjulegan hátt er hún
smellti kossi á hnéð sem hefur angrað hana svo lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI